BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Side 18
18
BPÖ BLAÐIÐ
■ Magnús Árnason framkvæmdastjóri Bílaieigunnar hf. í Kópavogi.
■ Portaróinn er sérstaklega rúmgóður.
Jeppi frá Portú
gal fyrir skreið
„Það verður alltaf markaður fyrír
jeppa á íslandi, þó ekki nema vegna
veðráttunnar, snjóþvngsla t.d. En það
sem háð hefur markaðnum hingað til er
það, að jeppar hafa verið talsvert dýrír.
Bændur og verktakar hafa á síðustu
árum notast við smábfla til að geta unnið
sín störf. Hér þarf að vera breyting á og
ég er nú að vinna að því að lækka
innkaupsverðið á Portarojeppanum."
Þetta segir Magnús Árnason fram-
kvæmdastjóri Bílaleigunnar hf. í Kópa-
vogi, en fyrirtækið hefur nýlega hafið
innflutning á jeppum frá Portúgal.
í Portúgal hefur verið blómlegur bíla-
iðnaður í mörgár. Þar eru samsetningar-
verksmiðjur fyrir fjöldan allan af
þekktum bílategundum. Framleiðandi
Portarojeppans hefur t.d. umboð fyrir
Daihatsu bíla, Citroen og Leyland og
setur þessa bíla saman í Portúgal. Port-
aro jeppinn er byggður á einingum úr
Daihatsu bílum, s.s. gírkassinn, vélin,
rafkerfið o.fl. Hönnun jeppans er þó að
langmestu leyti portúgölsk og verður að
segjast eins og er að tekist hefur ákaflega
vel til með þennan bíl.
En hvað er svona sérstakt við Portaro-
inn? Hefur hann upp á eitthvað það að
bjóöa sem aðrir jeppar hafa ekki? Fram-
boð jeppa hér á landi sem og í öllum
heiminum er mjög mikið úrval af góðum
bílum. Magnús svarar: „Portaróinn er
sérstaklega rúmgóður. Hann er gefinn
upp fyrir 9 manns í Portúgal, en hér á
landi hefur aðeins fengist leyfi fyrir 6
farþegum auk ökumanns, en það kann
þó að breytast. En það sem gerir bílinn
góðan eru frábærir aksturseiginleikar en
þeir byggjast meðal annars á fjaðrabún-
aðinum. Sjálfstæð fjöðrun er á framhjól-
um en fjaðrir eru ofan á afturhásingu og
festar utan á grindina og veldur það því,
að bíllinn verður stöðugari á vegum.
Nú, kúplingin er ein sú léttasta sem ég
hef fundið í jeppum, ef ekki sú alléttasta.
Stýrið er það alléttasta sem ég hef tekið
í fyrir utan vökvastýri og má merkilegt
heita að svona létt stýri skuli fyrirfinnast
í jeppa. Ég skal segja þér eitt, að ég
leitaði til verksmiðjanna um fylgihluti
með jeppanum og spurði hvort mögulegt
væri að fá í hann vökvastýri. Þeir sendu
mér um hæl símskeyti þar sem þeir
fullyrða að ekki þurfi vökvastýri í
jeppann, stýrið sé þegar mjög létt.“ Og
Magnús sýnir símskeyti þessum orðum
sínum til staðfestingar.
„{ sannleika sagt er þetta mjög góður
ferðabíll fyrir fjóra ásamt farangri. Allir
vita hversu erfitt er að ferðast í jeppum,
annað hvort eru þeir allt of stórir og eftir
því óhagkvæmir eða þá allt of litlir
þannig að varla komast fleiri fyrir en
bílstjóri og einn farþegi. Portarójeppinn
er enginn belgur, heldur tekur hann
meira en í fljótu bragði kann að virðast.
T.d. er hann mjög hagkvæmur fyrir
bílaleiguna mína. Á sumrin skipti ég
mjög mikið við útlendinga og hef hálf-
partinn átt í nokkrum vandræðum með
að útvega þeim nógu góða jeppa,
hentuga stærð fyrir fjóra ásamt farangri.
Eins og ég sagði áðan, þá er Portaróinn
prýðilegur fyrir fjóra og ég veit að hann
á eftir að reynast vel.“
- Hvenær kom fyrsti bíllinn til
landsins. „Hann kom nú ekki fyrr en 5.
febrúar en nú þegar er búið að aka þeim
bíl 2700 km og þeir sem hafa notað
hann, en bíllinn er leigðurút af Bílaleig-
unni hafa lokið upp einum munni um
ágæti bílsins. Nú að auki er hann með
dieselvél og er hann því hagkvæmur í
rekstri fyrir viðskiptavini Bílaleigunnar.
Sérstaklega hafa viðskiptavinirnir hrós-
að aksturseiginleikunum, þánnig að ég
er ekkert að fara með neinar staðleysur
hvað þá varðar.“
Portaro verksmiðjurnar í Portúgal eru
heimsþekktar fyrir framleiðslu sína á
jeppum og sannaðist það eftirminnilega
í hinni erfiðu Afríku rallkeppni jeppa
sem haldin var 4. júlí 1982. Þar sigraði
Portaróinn alla keppendur og segir það
meira en mörg orð um gæði og eiginleika
bílsins.
Vélagerðirnar sem fáanlegar eru:
Daihatsu diesel, Daihatsu turbó, Volvo
B23A bensín, Volvo B21 ET turbó.
Tæknilegar upplýsingar
Framleiðandi: Sociedade Electro Mec-
ania de Automoveis Lda Portugal.
Seljandi: Bílaleigan hf. Smiðjuvegur
44d, Kópavogi.
Vél: Daihatsu DG dtesel, rúmtak 2530
cc, 4 strokka, 72 hestöfl, 3600 RPM .
Rafkerfi: 12 volt
Bremsukerfi: Borðabremsur, tvívirkt
kerfi.
Dekkjastærð: 650x16, átta striga.
Þyngd: 1.652 kg
Lengd: 3.974 mm
Breidd: 1.784 mm
Hæð undir lægsta punkt: 230 mm
Hámarkshraði: 112 km.
ss-
■ Vélin er 72 hestöfl frá Daihatsu.
■ Hnnnunin er að langmestu leiti portúgölsk, en jeppinn er byggður í einingum úr Daihatsu bílum, t.d.
gírkassinn, vélin og rafkerfið.
■ Frábærir aksturseiginleikar byggjast m.a. á fjaðrabúnaðinum.