BFÖ-blaðið - 01.12.1989, Qupperneq 8
Heilbrigt líf - án áfengis, 3. hluti:
Lífsstíll fólks á öllum aldri
Enn leggjum við tvær spurn-
ingar fyrir nokkra þekkta lands-
menn, sem velja heilbrigt líf- án
áfengis. Spurt er:
1. Hver er afstaða þín til áfengis
og hvað ræður henni?
2. Hvað finnstþér brýnast að gera
í áfengisvörnum?
Ásgeir Jóhannesson
forstjóri:
1. Það fellur betur að mínum lífs-
máta að vera bindindismaður og
ég tel það farsælla fyrir flesta
aðila, þegar í heild er skoðað að
haga því með svipuðum hætti.
Það hefur reynst mér farsælt og
ég vænti, að slíkt mætti einnig
verða fleirum til farsældar.
2. í opinberum móttökum ætti
fyrst og fremst að leggja áherslu á
að bera fram óáfenga drykki fyrir
gesti, en ekki eins og nú er venja
að bjóða fyrst og fremst áfenga
drykki, og láta þá gesti, sem ekki
neyta áfengis, bíða langtímum
saman eftir veitingum og þjón-
ustu við sitt hæfi. Þeir, sem ekki
reykja, fá nú víða betri aðbúnað
en aðrir á vinnustöðum og ferða-
lögum. Hvers vegna skyldi sá hátt-
ur ekki einnig á hafður í þjónustu
við þá, sem ekki neyta áfengis?
Davíð B. Gíslason
handknattleiksmaður:
1. Það hefur aldrei komið til
greina af minni hálfu að nota
áfengi. Áfengisneysla er vitleysa,
hún stofnar til óþarfa áhættu og
peningaeyðslu. Þar sem ég er
íþróttamaður af lífi og sál legg ég
áherslu á heilbrigt líferni og það
er líf án áfengis og reykinga. Ég
vil þó geta þess að ég hef aldrei
orðið fyrir þrýstingi frá foreldrum
að vera bindindismaður, þetta er
mín ákvörðun. Ég hef að vísu
dreypt tungunni í léttvín en ég tel
það hinn mesta óþverra í saman-
burði við gos og aðra slíka drykki.
Margir krakkar á mínum aldri
þjást af feimni sem ég tel aðal-
ástæðu fyrir drykkju þeirra, þau
fela sig á bak við áfengið.
2. Það ætti að tvöfalda verð á
áfengi, þá aukast tekjur ríkissjóðs
og dregur úr þeim kostnaði sem
áfengisneysla hefur í för með sér.
Einnig mætti hafa strangari
gæslu við skemmtistaði og auka
fræðslu um skaðsemi áfengis og
gildi íþrótta. Þá þyrfti að láta
fleira fólk koma fram í fjölmiðlum
og segja frá slæmri reynslu sinni
af notkun áfengis svo sem eftir
slys og annað álíka, slíkar frá-
sagnir hafa áhrif á aðra.
Davíð Á. Gunnarsson
forstjóri:
1. Ég veit hreinlega ekki, af
hverju ég er bindindismaður.
Spurningin ber með sér, að það sé
eitthvað sérstakt við að vera bind-
indismaður.