BFÖ-blaðið - 01.12.1989, Qupperneq 13

BFÖ-blaðið - 01.12.1989, Qupperneq 13
Félagsstarfið Ráðstefna í borg finnska jólasveinsins Á öllum Norðurlöndunum nema í Dan- mörku eru starfrækt samskonar bindindisfé- lög og BFÖ er. Þau hafa samskonar markmið, þ.e. að stefna að bindindi og bættri umferðar- menningu. Þessi félög mynda með sér sam- norræn samtök er kallast „NORDISK UNION FOR ALKOHOLFRI TRAFIK“ skammstafað NUAT. Á sama hátt mynda ungmennadeildir þessara félaga norræn ung- mennasamtök fyrir félaga 25 ára og yngri. Þau nefnast NUAT-ungdom. Síðustu helgina í nóvemeber síðastliðnum, hélt NUAT-Ungdom ráðstefnu í Finnlandi. Tveir félagar BFÖ sóttu hana, Einar Guð- mundsson framkvæmdastjóri félagsins og Gunnar Sigurðsson, stjórnarformaður í ísa- fjarðardeild BFÖ. Ráðstefnan var haldin norðarlega í Finnlandi í höfuðborg Lapp- lands, Rovaniemi. Borgin, sem reyndar er ekki stór, liggur jafn norðarlega og Grímsey, og liggur því norðurheimskautsbaugur í gegn um hana. Einmitt á þeim stað í borginni hefur finnski jólasveinninn komið sér upp bjálka- kofa þar sem hann býr og hefur jafnframt smíðaverkstæði sitt. Þessa dagana er mikið að gera hjá honum, því margir vilja heimsækja hann. Má nefna börn frá París og jafnvel alla leið frá Japan, er koma flugleiðis til þess eins að sjá jólasveininn í Finnlandi. Þessi skemmtilega borg var staður ráð- stefnunnar. Hún stóð frá föstudagskvöldi og fram á sunnudag. Ungmenni víða að frá Norð- urlöndum voru samankomin til að ræða um umferðaröryggi og hvernig auka megi öryggið á norðlægum slóðum Norðurlandanna. Á þessum slóðum er langur og kaldur vetur og myrkur mestan hluta sólarhringsins, eins og við íslendingar þekkjum vel, og sumrin björt. Rætt var um hvernig best væri að varast þær hættur sem þessum aðstæðum fylgja. Finnsk- ur lögregluþjónn, sem þekkir þessi mál vel, var með mjög fróðlegt erindi um efnið og einn- ig um starfsemi finnsku lögreglunnar. Þar kom meðal annars í ljós að finnska lögreglan hefur nú undanfarið verið búin mjög góðum tækjum til að mæla vínandamagn hjá ölvuð- um ökumönnum. Ölvunarakstur er mikið vandamál í Finnlandi og hefur lögreglan þar nú skorið upp herör gegn ölvuðum ökumönn- um. Þá var einnig á ráðstefnunni rætt um mikil- vægi þess að lækka þurfi áfengismörk fyrir ökumenn. Aðildarfélög NUAT-Ungdom hafa það á stefnuskrá sinni að mörkin fari niður í 0 á öllum Norðurlöndum. Nýjar rannsóknir sýna það eindregið að strax á fyrsta sopa fari að gæta áhrifa hjá yngri ökumönnum og þeim sem sjaldan neyta áfengis. Að lokum ræddu ungmennin um það hvern- ig auka megi samstarf innan félaganna í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og íslandi. Margar góðar hugmyndir komu fram og er nú að sjá hvernig til tekst í framtíðinni. Norræna ráð- herranefndin greiddi ferðir íslendinganna á ráðstefnuna en BFÖ greiddi allt annað. Búast má við að NUAT-Ungdom standi fyrir fleiri ráðstefnum í vetur um hin ýmsu vandamál í umferðinni. E.G. Átakgegn ölvun við akstur í ráði er að Bindindisfélag ökumanna efni til ráðstefnu í mars 1990 um ölvun við akstur, ástand, horfur og úrbætur. Til undirbúnings ráðstefnunni er nú unnið að öflun gagna um þessi mál. Einn liður í því er könnun meðal þeirra sem teknir eru vegna gruns um ölvun- arakstur. Könnun þessi er gerð nú í desember í samvinnu við lögregluna í Reykjavík og Umferðarráð. Nánar verður sagt frá könnun- inni og ráðstefnunni í næsta blaði. □ 13

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.