Vestri - 26.08.1912, Side 1
Ritstjóri: Kr. H. Jónsson,
ÍSAFJÖRÐUR, 26. A G Ú S T 1912.
33* tbi.
Símfregnir.
22. ágúst.
Frumvarpi um einkasölu á steinolíu vísað frá með rökstuddri
dagskrá, og frumvarpið þar með úr sögunni á þessu þingi.
Jón Ólafs'-on flytur frumvarp um einkaheimild fyrir stjórnina
að panta og útvega steinolíu fyrir kaupmenn og verslunaríélög.
Stjórnarskráimálið var til umræðu í n. d. i gær. Samþykt
rökstudd dagskrá: að með því ný sambandslög væru ef til vill
væntanleg sýndist rétt að fresta stjórnarskrármálinu að sinni.
Farmgjaldsfrumvarpið verður væctanlega afgreitt sem lög frá
alþingi í dag.
Fyrirspurn Valtýs Guðmundssonar um viðskiftaráðunautinn lá
fyrir í gær. Langar og heitar umræður, ræða Valtýs mjög ýtarleg.
Loks var samþykt rökstudd cagskrá til stjórnarinnar að annast um
að ráðunauturinn fylgdi erindisbréfinu og láta athuga vel ferðas
kostnaðarreikninga hans.
24, s. m,
Lög afgreidd frá alþingi:
Breytingar á lögum um rithöfundarétt.
Um toll á síldarlýsi o. fl.
Um ritsímai og talsímakerfi.
Um vörutoll (farmgjald).
Breytingar á lögum um Landsbankann, afgreiðslustofa erlendis
og bankaútbú á Austurlandi (í stað Seyðisfirði).
Um vatnsveitingar í löggiltum kaupstöðum.
Breytingar á lögum um lendingarsjóði (2 kr. af hlut).
Um bólusetningar.
Um fast þingfararkaup alþingismanna og hækkun dagpeninga.
Ura yfirsetukvennaskóla í Reykjavík.
Avarp til konungs samþykkt fyrir luktum dyrum.
Þingsályktunartillaga um að skora á ráðherra að leita sam-
komulags við Dani í sambandsmálinu samþ. í sam. þingi með 31
atkv. gegn 4 (Sk., Bj., Bened. og Þorl.), nokkrir þinngmenn voru
fjarverandi.
Þingsáiyktunartilfaga um að skora á stjórnina að safna skýrsl-
um og ransaka fyrir næsta þing hvort tiltækilegt sé að landsjóður
taki að sér einkaeölu á steinolíu, samþ. í n. d.
Fundir verða haldnir í báðum deildum a mánudagsmorguninn
og þingi verður slitið kl. 12.
26. s. m.
Alþiugi slitið í dag kl. 12.
Lög afgreidd frá Alþingi: Um eftirlit með skipum og bátum
og öryggi þeirra. — Um heimild fyrir stjórnina að selja íslensku
verslunarfélagi eða íslendingi einkasölurétt á steinolíu.
Þingmenn Flúovetninga, Skagfirðinga og Stetán í Fagraskógi
fóru í dag með Reykjavíkinni til Borgarness. Aðrir þingmeDn
norðan og austan at landi tara með Austra, en þingmenn at Vest-
urlandi með Ceres.
Ráðherra siglir væntanlega með Botníu 27. n. m.
XI. árg.
Aukaþingið.
Því er nú slitið í dag eins og
getið er um í símfregnum í blað-
inu.
Sjáifsagt eru misjafnir dómar
u.m afrek þess. Tíminn hefir verið
stuttur og ýms þau mál er það
hefir haft með höndum skorti
undirbúning.
Merkuatu tíðindi á þessu þingi
má óefað telja stjót narskiftin. —
Ekki svo að skilja að allar líkur
vo u til þess að ráðherraskifti
yrðu á þinginu. Kristján Jónsson
tók það aldrei að sér nema til
bráðabirgða, og síðustu kosn-
ingar fóru á þá leið að sjálfsagt
var að heimastjórnarmaður tæki
aftur við stjórninni, og þá var
auðvitað engum líklegri á að
skipa en H. Hafstein; hann var
reyndur í því starfi og hafði
rækt það af dugnaði og í fullu
samræmi við stefnu þess flokks
er studdi hann að völdum.
Hitt er meira umvert að hann
nú nýtur ekki einungis fylgis alls
heimastjórnarflokksins og flestra
flokksleysingja á þingi, heldur
og einnig meginþorra sjáhstæðis-
flokksins.
Þegar H. Hafstein lét af völd-
um var það tyrir þá sök að meiri
hluti þingsins vildi halda aðra
leið í sambandsmálinu, tók þvert
fyrir alt samkomulag í því máli
og samþykti vantraustsyfirlýsingu
á ráðherra lyrir störf hans í því.
En nú er hann einmitt kjörinn
ráðherra og nýtur fylfeis flestra
þingmanna at því, að þeir treysta
henum allra manna best í því
máli. Þetta hefir reynslan kent
mönnum á þessum stutta tíma.
Annað aðalmál þingsins hefir
verið að bæta úr fjárhagsvand-
ræðunum. Þar virðast skoðan-
irnar hafa verið fremur skiftar,
en þó hefir lánast að koma sér
saman um leið sem bætir úr
bráðustu nauðsyn, og það er
aðalatriðið. Hitt hefir minna að
segja hvort sú leið reynist svo
heppileg að þjóðinnilítist að halda
hana tramvegis. En þá koma
dagar og þá koma ráð, og mikils
er um það vert að ráða bót á
því að landið haldi áfram að
safna skuldum til fastra árlegra
útgjalda.
Það mál sem þingið var aðal
lega boðað til, stjórnarskrármálið,
hefir attur á móti verið látið hvíla
sig. Þar sem þingið nær óskift
vill taka aftur upp samningsum-
leitanir um sambandsmálið hatði
það fulla ástæðu til að fresta
stjórnarskrármálinu, þar til séð
yrði hvort horfur eru á að sam-
bandsmálinu verði bráðlega ráðið
til lykta.
Að því er hin önnur frumvörp
þingsins snertir. hafa fæst þeirra
neina stórvægilega þýðiagu.
Það sem mest er um vert er
það, að þetta þing hefir sameinað
kraftana til að reyna að ná því
takmarki, sem við höfum lengi
kept að, en mistum svo hrapal-
lega af við næstsíðustu kosning
ar fyrir flokkadrætti og sundur-
lyndi í landinu.
Ný áfengislög í Færeyjum.
Ný áfengislög hafa verið sam-
þykt fyrir Færeyjar og eru þau
að eins endurbætt útgáfa aflög-
unum frá 1903, sem heita má að
hafi útrýmt allri áfengisnautn í
Færeyjum.
Aðalatriðið í þeim lögum var
atkvæðagreiðslau um áfengis
verslun og árangurinn varð sá
að hún var bönnuð; örfá atkvæði
yfirleitt með áfengissölunni.
Síðan hefir áfengi ekki fengist
í Færeyjum annarstaðar en í
lyfjabúðinni Örfáir pöntuðu sér
áfengi frá útlöndum.
Effersöe þingmaður Færeyinga
hefir átt tal um þetta atriði við
danskan blaðamann, og segir að
lögin frá 1903 hafi aðeinsverið
tilraun, en þau hafi reynst rnjög
vel og unuið mikið gagn.
Amlmaðurinn í eyjunum hefir
safnað skýrslu frá öllum embætt-
ismönnum og sveitarstjórnum í
eyjunutn, og öllum ber þeim
saman um að áfengisnautn hafi
þverrað mjög og að sjóskaði,
sem svo oft átti sér stað áður,
því sjómenn höfðu áfengi með
sér á sjóinn, hafi ekki kornið
fyrir síðan vegna áfengisnautnar.
Einnig hefir nautn víns og
brennivíns minkað. Áður var
drukkið um 4,28 iítrar á mann, en
nú að eins i,iB lítri, minsta vín-
nautn í Norðurálfunni.
Auðvitað hefir við og við átt
sér stað launsala, en þó svo lítið
að þess hefir ekki gætt. Eftir-
litið hefir verið lagt í hendur
alþýðunnar og sjaldan verið
sektað fyrir brot. Nýju lögin
taka strangara á brotum og miða
að því að koma í veg fyrir að
launsala geti átt sér stað.
Af nýmælum í lögunum má
nefna bann gegn að panta áfengi
hjá umferðasölum, og ákvæði um
eftirlit á þeim stöðum sem veittir
eru á óáfengir drykkir.
Við hátíðahöld og gestaboð
hefir áfengis sjaldan verið neytt,
það hefir aldrei verið siður í
Færeyjum að geta ekkirent niður
bita, nema skola hann niður með
víni eða öli.
t Wllllain Booth, yfirforingi
Hjálpræðishersins andaðist 20.
þ. m.
Míðstjórn sambandsflokksins
skipa: Jón Magnússon, Jón Ólats-
son, Þorsteinn Gíslason, Ágúst
Flygenring, Sigurður Hjörleifsson
Jens Páísson og Guðm. Björns-
son.
Hcimastjómarflokkurinn held-
ur áfram að vera til og hafa verið
kosnir f miðstjórn hans: Jón
Þorláksson, Jón Magnússon, Egg-
ert Claessen, Jón Ólafsson, Ágúst
Flygenring, Guðmundur Björns-
son og Þorsteinn Gíslason.