Skólablaðið - 01.12.1914, Side 2
178
SKOLABLAÐIÐ
skólar orðnir tveir; en lærdómsdeiidin stendur uppi með
undirbúning undir ambættismannaskólana.
Nú var ýmsu spáð um aðsókn að þessum Reykjavíkur-
skólum o: deildum hins almenna mentaskóla, bæði um það
hve mikil hún yrði, og eins um það hvaða fólk og hvaðan
af landinu sækti Reykjavíkurskólana. Margir héldu að eftir
nokkur ár yrði öll embættísmannastétt landsins Reykvíking-
ar, og þótti ilt til að hugsa. Hin nýja reglugerð kveður svo
á, að þeir sem teknir verði í lærdómsdeildina, séu ekki eldri
en 18 ára — nema þá með sérstöku leyfi stjórnarráðsins.
þetta óttuðust menn að leiða mundi til þess að fáir aðrir en
Reykvíkingar sæktu lærdómsdeildina, og auðvitað yrðu í
gagnfræðadeildinni nær því eingöngu Reykvíkingar, því að
drengir á 12 —15 ára aldri kæmu varla til náms til Reykja-
víkur. En hver raun hefur nú orðið á þessu ?
Aldrei hefur hinn almenni mentaskóli verið eins fjöl-
skipaður og á þessum vetri; eru nemendur nú um 150, í
lærdómsdeildinni 100 og í gagnfræðadeild 50. Af nemend-
um lærdómsdeildarinnar munu nálægt 45 vera Reykvikingar,
en 55 annarstaðar af landinu. En í gagnfræðadeildinni eru
einir 10 utanbæjarnemendur, og er það af ýmsum ástæðum
mjög svo eðlilegt. Af öilum nemendum skólans eru þá c. 85
úr Reykjavík og 65 annarstaðar að.
Reglugerðar ákvæðín um aldurstakmark ti! lærdómsdeild-
ar virðast því ekki hafa orðið til þess að bægja utanbæjar-
nemendum til neins baga frá lærdómsdeild mentaskólans, eins
og þeim hefur verið beitt; og þaö er tæplega ástæða til að
óttast að þau muni verða það eftirleiðis.
í blaðinu „Skinfaxi“ hefur nýlega staðið grein, sem ræðir
um þá óheppilegu ráðstöfun, að eldri mönnum en 18 ára
verði hér eftir meinað að ganga í lærdómsdeildina, og virð-
ist greinarhöfundurinn byggja ummæli sín á því að héreftir
verði engin undantekning gerð frá því aldurstakmarki, sem
reglugerð skólans hefur að geyma. Vér höfum átt kost á
að kynna oss brél stjórnarráðsins til rektors mentaskólans,
sem þessi ótti mun vera sprottinn af. Má af því sjá að
stjórnarráðið vill fara sem varlegast í að heimila undanþágur