Skólablaðið - 01.12.1914, Síða 9

Skólablaðið - 01.12.1914, Síða 9
SKÓLABLAÐID 185 þessi bók ætti að vera góður gestur á hvert heimili á landinu, bæði við sjó og til sveita. Hver sem kemur t'rá út- löndum tekur fljótt eftir því, hve autt og bert og nakið er kringum híbýlin okkar, ekkert blóm enginn runnur, ekkert tré; eini gróðurinn kál og kartöflugras þær vikur ársins, sem sá gróður stendur, en allan annan ársins tíma svart moldar- flag í hans stað. Enn eru þess dæmi að viðbjóðslegai^ opn- ar safngryfjur séu beint framundan bæjardyrunum. En þó að svo sé ekki, eru hlöðin ekki til prýði. Víðast hvar er það siðurinn að ríða heim að bæjardyruin og fara þar af baki; á hlaðinu er forin í mjóalegg og hvergi auðið að stíga fæd nema á bæjarstéttina, oft örmjóa. Ljótast og óvistlegast heima við bæinn, þar sem mest væri ástæðan til að viðhafa alt hreinlæti og prýða eftir föngum til að gera þar sem unaðs- legast og vistlegast — og heilnæmast. Bókin er skrifuð til að vekja athygli á þessu og til að leið- beina í því að gróðursetja tré, runna og blómjurdr við manna- híbýlin, byggingu skrúðgarða til heimilisprýði og jurtagarða tii heimilisnota. Seinni árin er farið að bera á því að einstaka maður hefur hug á að prýða kringum bæinn sinn, og nokkur reynsla er fengin fyrir því hvað best má lánast að gróðursetja. En all- an fjöldann skortir þekkingu til að framkvæma nokkuð veru- legt. Bjarkir eru þeim góður ráðgjafi, bæði að því er snert- ið undirbúning jarðvegsins, gróðursetning og jurtaval. Skóla- blaðið hefur áður flutt ritgerðir um ræktun skólagaróa, og hvatt kennara til að prýða á þann hátt kringum skólasetrin, en um leið fá börnunum tækifæri til að kynnast blómrækt og trjárækt, og bent á það, að þó að sá tími ársins, sem skólar standa hér á landi, sé ekki vel til þeirrar vinnu fall- inn, þá muni ekki frágangssök að kalla börnin saman dag og dag að sumrinu til að læra til þessara hluta og starfa að garðræktinni. Margur kennarinn mun hafa getað haft van- kunnáttuna í þessu sér til afsökunar. Kaupið Bjarkir og lesið með athygli og þér munuð ekki leita árangurslaust að því sem þér þurfið að vita.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.