Skólablaðið - 01.08.1920, Blaðsíða 5
SKÓLABLAÐIÐ
105
í sambandi viS þetta námsskeiö flutti M. M. leiöbeinandi.
fyrirlestra. NámsskeiSiö stóíS í fjóra mánuöi. Var gert ráö
fyrir, aö hægt væri aö taka á móti 250 kennurum, sem nem-
endum, en umsækjendur voru yfir 2000. Fjelög og nefndir á
Bretlandi, sem fást viö mentamál og uppeldi, eru farin aö
snúa athygli sinni að þessu máli. En þó þykir blaöi því, sem
jeg gat um áðan, og þetta er tekið upp úr, það merkilegra, að
á’hugi almennings sje einnig vaknaður. Þegar M. M. hjelt
fyrirlestur um þetta efni í „The Central Hall“ i Westminster,
þá var aðsóknin svo mikil, að þúsund manns urðu að snúa
frá; kvað það aldrei áður hafa komið fyrir, að fyrirlestur um
uppeldismál væri nándar nærri svo vel sóttur. Blaðið segir,
að það sje vonandi, að þetta sje vottur þess, að afstaða manna
til uppeldismálanna sje eitthvað að breytast, og að þau verði
ekki lengur hornrekan meðal ahiiennra nauðsynjamála. Sje
þá meiri von til, að þessum nýjustu umbótum á kenslu og
uppeldi, sem taka meira tillit til eðli barnsins en nokkuru sinni
áður hefir verið gert, verði gefið tækifæri til að sýna hvers
virði þær eru.
Síðan skýrir blaðið frá viðtali við M. M., og hvaða upplýs-
ingar hún hafi gefið um útbreiðslu kensluaðferða sinna. Sjer-
staklega hafa þær breiðst út á Spáni, þar sem M. M. hefir
starfað síðastliðin tvö ár. Stjórnin í Catalóníu á Spáni kom
fyrir tveim árum á stofn Montessori-kennaraskóla. Við hann
kenna þrír prófessorar frá háskólanum í Barcelona, með fimtán
aðstoðarkennurum. Barnaskóli með 120 börnum er í sambandi
við þennan kennaraskóla. I borginni eru einnig ýmsir barna-
skólar ríkisins farnir að fylgja Montessori-kensluaðferðunum.
Fyrsta tilefni þessa var það, að fyrir fimm árum fór hópur af
kennurum frá Spáni til Rómaborgar, til þess að hlusta á fyrir-
lestra M. M. Tveim árum síðar var hún svo fengin til að
hafa kennaranámsskeið í Barcelona. Svo vel hafa þessar að-
ferðir þótt gefast á Spáni, að borgarafjelagið í Barcelona hefir
skorað á stjórnina, að lögleiða Montessori-kensluaðferðirnar
í öllum skólum ríkisins. I munaðarleysingjaskóla með 600