Skólablaðið - 01.08.1920, Blaðsíða 6

Skólablaðið - 01.08.1920, Blaðsíða 6
SKÓLABLAÐIÐ joó börnum eru nú öll börn á milli þriggja og átta ára alin upp eftir Montessori-aSferSinni og sumum eldri telpunum hefir veriS kent aö kenna þeim yngri. í Ameríku eru Montessori-skólarnir einnig óSum aS útbreið- ast, og eru nú orönir þar um 4000. í Bogota í Suöur-Ameríku hafa auömenn komið á fót tilraunaskóla í þessum stíl og í Argentínu er verið aö stofna 500 Montessori-skóla. Frá Brasi- líu var M. M. nýbúin að fá pöntun um skólaáhöld handa 100 börnum. í Buenos Ayres er einn slíkur skóli. Sá skóli hefir í öllu fylgt fyrirmælum M. M., enda kvaö hann vera líkari stóru heimili en skóla. Annars segir M. M. aö fariö sje nú aö reyna skólafyrirkomu- lag sitt víösvegar um allan hnöttinn, sumstaöar á ólíklegustu stö'öum. Frá Shanghai á Indlandi hefir veriö beöið um enska kennara, sem þessum aöferöum fylgdu, og amerískir Mon- tessori-kenriarar hafa fariö til Honululu. Bók sú, sem M. M. hefir skrifaö á itölsku: „Montessori-aöferöin“, hefir veriö þýdd á þessi tungumál: ensku, frönsku, hollensku, þýsku, spönsku, catalónsku, rúmönsku, pólsku, rússnesku, kínversku, dönsku, japönsku og checkisku. Nú er veriö aö þýöa hana 'á finsku, sænsku, serbisku og hindusku. Einn indverski rajahinn hefir fengiö Montessori-kennara frá Ameríku handa sonum sínum. í Kina og Japan eru þegar margir Montessori-skólar, sömu- leiöis á Ceylon, þangaö hefir M. M. veriö beöin aö koma í fyrirlestraferð. í Palestínu er byrjað á tilraunum meö Mon- teSsori-skóla. Hvergi hefir þó þessum kenslumáílum verið tekiö með eins eldlegum áhuga og í Ástralíu og Nýja-Sjálandi; þar hafa sjálfar yfirstjórnir kenslumálanna gengist fyrir fram- gangi málsins. Á ítalíu eru nú til Montessori-skólar x Rómaborg, Mílano og Neapel. I Mílano fylgja nú oröið allir barnagaröar Mon- tessori- en ekki Fröbels-aðferöinni, sem öllum slíkum görðum befir verið stjórnaö eftir til þessa. Á Englandi útbreiöast nú Montessori-skólarnir óðum, í Lundúnum eru nú 400 rikisskólar

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.