Alþýðublaðið - 19.01.1965, Side 4
800
AFMÆLISSÝNING
ARA
KAUPSTEFNAN
28.FEBRr9.MARZ 1965 LEIPZIG
í þágu frjálsra heimsviðskipta og tækhiframfara
9000 sýningaraðriar frá 70 þjóðlöndum sýna fullkomnustu fram-
leiðslu á sviði tækni- og neyzluvarnings.
Greinilegt yfirlit nýtízku heimsframleiðslu og nýtizku framleiðslu-
hátta.
Ráðstefnur vísindamanna. Umræðufundir og mót tæknisérfræðinga.
Úrvalsdagskrá Íistahátíðar.
Uppiýsingar og kaupstefnuskírteini veitir Kaupstefnan — Reykja-
vík, Lækjargötu 6 og Pósthússtræti 13 eða á landamærum Þýzka
Alþýðulýðveldisins.
Þýðingarmesta miðstöð viðskipta austurs og vesturs.
Hannes á hornínu
Pramhaid af 2. síðu
Um og skapið var ekki upp á
•narga fiska. Mér var sagt, að
aldrei seldist eins mikið af brenni
vjni og þessa daga kulda myrk-
urs og vonbrigða.
EN AFTUR KVIKNUÐU ljósin
Og enn streymdi heita vatnið um
æðarnar. Heimiiin urðu björt og
**íý °g skapið mýktist. Og við
Iiéldum áfram á framfarabraut
og hraðinn óx — og hann heldur
ófram að vaxa svo að mann sundl
ar við. Og enn erum við jafn-
óyiðbúin, ekki aðeins í hinu verk
*ega heldur og andlega. Og allt
ttptta sést glögglega þegar við
skyggnumst um bekki í þjóðlífinu
VIÐ HRUKKUM ENN einu sinni
við um áramótin síðustu. Gamia
ísland steyptist yfir byggð og ból
qg án þess að gera hoð á .undan
sér, Og við stóðum undrandi og
óviðbúin eins og áður: Ljós slökkn
uðu, hitaveitaa silaðist um æðarn
or og kom að litlu gagni í mörg
Um hverfum, jafnvel síminn sagði
Stopp. Þúsund bifreiðir voru í hnút
á leiðinn milli Rekjavíkur og
Hafnarfjarðar og þar ríkti óþolin
toæði, reiði^ tillitsleysi, frekja og
fjtjórnleysi svo að jafnvel björg-
unarmenn komust ekki að.
EN I BIFREIÐUM Sat vanbúið
fóik, silkibuxnagopar, nylonsokk
ar, götóttir hælaháir skór, blánefj
aðir, grenja’ndi krakkar bölvandi
bílstjórar í einkabílum og leigu-
bílum, sem kenndu öllum öðrum
en sjálfum sér um vandræðin.
Þeir ýttu á bensíngjöfina í sífellu
og reyndu að ryðjast áfram þar
lil þeir sátu fastir og bensínið
þraut. Það lenti allt í vitleysu. .
Enn einu sinn vorum við ekki við
búnir, við höfðum steingleymt
því hvar við eigum heima. Við
erum á sífelldum þanspretti alla
daga og fram á nætur.
ÞETTA GENGUR eins og rauð
ur þráður gegnum allar okkar at-
hafnir í verklegu og andlegu til-
' liti.
Hannes á horninu
LÓAN
Tek aff mér hvers konar þýSingar
úr og á ensku.
EIÐUR GUÐNASON,
llggiltur dómtúlkur og skjal»
þýBantli.
Skipholti ál — Sími 32933.
Framhald af 1. sfðu
Þorbjörn Sigurgeirsson sagði
þá hafa farið til að gera
ýmsar mælingar vísincjalegs
eðlis. Þeir hefðu m. a. gert
hitamælingar, tekið gassýnis
horn, mælt leiðni í bráðna
berginu og rafmagnið í gufu-
mekkinum, sem myndast þar
sem hraunið rennur í sjó
fram.
Einnig voru gerðar þyngd-
armælingar. Vísindamenn-
irnir klifu og upp á gígbarm
inn, og skyggndust eins og
þeir gátu ofan í kraumandi
gíginn. Þorbjörn kvað skorp
una vera svo þykka þar að
ekki væri hætta á að menn
stigu niður úr.
Hinsvegar mættu þeir
gæta sin að fá ekki á sig
hraunslettur úr gígnum, því
að þar ólgar allt og kraum-
ar. Aðspurður kvað Þor-
björn Surtsey ennþá vera
næststærsta í eyjaklasanum,
en eiga töluvert eftir til að
ná Heimaey. Hann sagði, og
að þeir hefðu ekki orðið var
ir við neitt óvenjulegt eða
nýstárlegt.
Björn sagði, að iendingin
liefði gengið ágætlega. Það
kæmi m. a. til, að Lóan
hefði sérlega breið hjól, og
þyrfti stutta flugbraut. Lóan
er önnur vélin sem lendir í
Surtsey, en hin var lítil eins
hreyfilsvél fró Birni, sem
hafði stutta viðdvöl.
Einangrunargíer
Framleitt einungis úr
úrvalsgleri. - 5 ára ábyrgö.
Pantið tímanlega.
Korkiðjan h.f.
Skúlagötu 57 — Simi 23200.
4 19. janúar 1965 - ALÞÝÐUBLADIO
AKTUELT
Framhald á 4. síðu
snúast óvenjulega skelegglega
gegn Poul Möller í þessu máli.
Bent er á þá einkennilegu stað-
reynd, að þessi formaður ílialds-
manna hafi 1952 opinskátt fallizt
á yfirlýsingu þáverandi samsteypu
stjórnar vinstrimanna og íhalds-
manna, sem gefin var í þingsetn-
ingarræðu og var þess efnis, að
lagt mundi fram frumvarp um af-
hendingu handrit úr dönskum söfn
um til íslands.
Vitað er af ummælum Erik Erik
sens, að hann stendur ótvírætt við
afstöðu sína frá þeim tíma og telur
sér skylt að st.yðja hið danska fram
tak. „Fynd Tidende" spyrja,
hvort Poul Möller telji, að íhalds
flokknum verði gagn að bók hans.
Ef til Vill mættu menn leyfa
sér að spyrja áreitnislaust, hvort
hinn íhaldssami leiðtogi telji, að
bandalagi Vinstriflokksins og
íhaldsflokksins verði gagn af
þeirri sömu bók? Við finnum til
svo mikillar skyidu gagnvart hinni
norrænu hugsjón, að við aldrei
þessu vant munum harma það, ef
íhaldshluti stjórnarandstöðunnar
ætlar raunverulega að ganga sínar
eigin götur í þessu msli“.
SAMIÐ
Framhald. af 16. siðu.
Bíldudal, Þingeyri, Flateyri, Suð-
ureyri, Bolungayík, Hnífsdal, Isa-
firði, Súðavík og Hólmavík.
Hinir nýju samningar fela í sér
um 16% hækkun á hlutartrygg-
ingu sem nú verður tíu þúsund
krónur á mánuði. Almennir kaup-
iiðir hækka um 5% og er það
ákvæði afturvirkt og gildir einnig
um síðustu haustvertíð. Þá hækk-
aði orlof einnig í samræmi við
nýju oriofslögin, og útgerðarmenn
munu hér eftir greiða í sjúkrasjóði
félaganna 1% af hlutartryggingu.
Ákvæði um. skiptaprósentu eru
óbreytt, en í hinum nýju samning
um er ákvæði á þá lund, að ef
skiptaprósenta hækkar hjá þeim fé
lögum, sem nú eru í vinnudeilu,
þá hækki hún á sömu lund á Vest-
fjörðum og eins ef verður um
meiri hækkun á kaupgjaldsliðum
syðra þá breytist þau ákvæði í Vest
fjarðasamningunm til samræmis.
Varðskipið Þór flutti fulltrúa fé-
laganna til ísafjarðar og skilaði
þeim iielm aftur að fundi lokn-
Um.
Hvalfjörður
Frh. af 1. síðu.
mark, ef kjarnorkustyrjöld bryt«
ist út.
Aðmírállinn benti á í upphafi
svars síns, að erfitt væri að segja
hvað ske mundi í kjarnorkustyrj
öld, þar eð það vissi raunar eng-
inn. En eftir því að dæma, sem
rússneskir herforingjar og vís-
indamenn hefðu ritað og látið um
mælt, mundi ísland vissulega
verða að teljast ólíklegt og mjög
minniháttar skotmark ef til slíkr
ar styrjaldar kæmil Mundi því
að likindum verða fyrr ráðist á
fjölda marga staði aðra en ísland
þótt svo hér væri herstöð.
Weymouth aðmíráll sagði a8
lokum, 'að ekki væri að vænta
neinna moiriháttar breytinga á
störfum eða stjórn varnarliðsins
við yfirmannaskiptin. Hér væru
eins og áður rúmlega 3000 varnar
liðsmenn og stæði ekki fyrir dyr
um að fjölga eða fækka í' lliðinu
hér.
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússningarsandur
og vikursandur, sigtaður eða
ósigtaður við húsdyrnar eða
kominn upp á hvaða hæð sem
er, eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN við ElliSavog sf.
Sími 41920.
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásveg 18, sími 1-99-45.
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina!
BlLASKOÐUN
Skúlagötu 32. Sími 13-109 I
SPILAKVÖLD I HAFMARF6RÐI
SPILAKVÖLD Alþýðuflokksfélagslns í Hafnarfirði hefjast að
nýju næstkomandi fimmtudagskvöld 21. janúar kl. 8,30 e. h. í Al-
þýðuhúsinu. Spiluð verður félagsvist. Benedikt Gröndal alþingis-
maður flytur ávarp. Guðmundur Þórarinsson sýnir litskuggamynd-
ir. Sameiginleg kaffidrykkja. — Vegna mikillar þátttöku er fólk
beðið að mæta stundvíslega.
FÉLAGSFUNDUR í FUJ
í KVÖLD kl. 9 flytur Þorsteinn Pétursson erindi á vegum Félags
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík um vinnulöggjöfina. Félagar eru
hvattir til þess að mæta stundvíslega.