Alþýðublaðið - 19.01.1965, Síða 8

Alþýðublaðið - 19.01.1965, Síða 8
I i I i I J t I í I i I I VINNANDIHENDUR HÖNDIN er þjónn hugans, og með henni hefur maður gert það að veruleika í heimi sínum, sem hann hefur séð og fundið upp í huga sér. Með höndunum skapai; hann sinn heim. Og það er fyrst og fremst hendur verkamanna, sem þann heim skapa — hinar vinnandi hendur. — Á myndunum, sem hér fylgja með, er unnið við gerð klæða. Efst: Belti gatað, til vinstri: Lagt niður við kraga og til haegri: únnið við bakstykki. Grein um FYRSTA heildaryfirlit yfir handritamálið er veitt í bók, sem kom út í gær hjá forleggjaran- um Paul H. Hagerup. Bókin er skrifuð af formanni þingflokks íhaldsmanna, Poul Höller, og nefnist „De islandske Hándskrift er í dokumentarisk belysning.” ' í formála gerir Poul Möller grein fyrir tilgangi bókarinnar. Hann segir meðal annars: Þetta er ekki barátturit. Flestir, sem f.vlgzt hafa með hinum opinberu umræðum, þekkja afstöðu mína. Ekki er bókinni heldur ætlað að fella dóm, heldur að draga fram forsendur málsins. Síðan verður hver sá, sem bókina les, að draga sínar eigin ályktanir. í stórum dráttum stendur Poul Möller við loforð sitt um að gera bókina ekki að barátturiti, enda þótt ekki verði hjá því komizt, að andstaða hans gegn afhend- ingu handritanna setji nokkurn svip á frásögn hans. Þetta er þó ekki meira en svo, að þeir geta látið gott heita, sem eru fylgj- andi afhendingu handritanna. Kostur bókarinnar er fyrst og fremst hin skýra framsetning og blaðamannstilfinning fyrir því, sem er efst á badgi. Bókin var skrifuð á nokkrum síðastliðnum mánuðum og Poul Möller hefur tekizt að taka með meginatriði úr gangi málsins allt fram til áramótanna 1964-65. Poul Möller gefur sérlega gagnlegt yfirlit fyrir þá, sem vilja setja sig inn í handrita- málið. Hýsingar handritanna. eru einnig athyglisverðar, svo og fyrri kröfur um afhendingu ís- lenzkra handrita og annarra. Sérstakur kafli fjallar einnig um nýjustu handritarannsóknir, og svo kemur að sprengiefn- inu: Núverandi umræður um af- hendingu handritanna. ★ GJÖFIN MIKLA. Lestur á kafla Poul Möllers um undirbúning og meðferð frumvárpsins um afhendingu handritanna mundi varpa ljósi á sannleikann fyrir þá, sem telja hugmyndina um afhendingu vera samsæri sósíaldemókrata og ra- díkala, en margir andstæðingar afhendingarinnar hafa gefið það í skyn. Um þetta segir: Eftir að hin stóra nefnd, sem Vinstri stjórn Knud Kristensens skipaði, hafði lagt fram álit sitt í október 1951, lýsti Erik Eriksen forsætis- ráðherra yfir í ræðu, er hann setti Ríkisdaginn 7. okt. 1952, að ríkíssíjórnin hefði í hyggju að leggja fram; frumvarp um „afhendingu handrita úr dönsk- um söfnum til ísléndinga.” Ekki handritabók Poul skýrði hann nánar, hve langt væri ætlunin að ganga í þeirri afhendingu. Vitað er, að þáver- andi monntamálaráðherra, Fl. Hvidberg prófessor, hóf viðræS- ur við rektor Hafnarháskóla og þáverandi ambassador íslands, Sigurð Nordal, sem sjálfur var einn af fremstu sérfræðingum íslendinga í málinu. Þar sem viðræðurnar komust ekki á raun hæfan grundvöll, var hið boð- aða frumvarp aldrei lagt fram. Þegar í marz 1953 bjó þingið sig undir fyrri kosningarnar vegna stjórnarskrárbreytingar, og frá apríl til kosninganna í septem- ber beindist athygli ríkisstjórn- arinnar að kosningunum og stjórnarskrárbreytingunni, og -stöðvuðust viðræður um handrit- in að mestu á meðan. Úrslit kosninganna 22. sept- ember 1953 urðu þau, að Hans Hedtoft myndaði ríkisstjórn. — Þegar við setningu þingsins endurtók hann yfirlýsingu fyrir- rennara síns, Bomholt mennta- málaráðherra hóf nú samninga við íslenzku stjórnina. Varð nú komizt nærri samkomulagi og hugmyndin var sú, að stofnað y rði til sameiginlegs eignarréttar Dana og íslendinga. Fregnin um þetta mætti h-rðri andspyrnu á Alþingi og íslenzka stjórnin hafn aði hugmyndinni. Var hún þá lögð á hilluna. Hans Hedtoft lýsti yfir, að ríkisstjórnin mundi' ekki aðhafast frekar í málinu. Þessa yfirlýsingu staðfesti og eftirmaður hans, H. C. Hansen. ★ FRUMVARP JÖRGEN JÖRGENSENS. Po”i i'Töiier segir þessu næst, að almenningur hafi ekki heyrt Poul Möller og sohur hans skóða þeirn t-r Jón a> 8 19.jartúar 1965 — ALÞYÐUBLAÐIÐ /

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.