Alþýðublaðið - 19.01.1965, Blaðsíða 9
PAUL MÖLLER, leiötogi
danskra íhaldsmanna, hefur
skrifað bók um handritamál-
iff, og hefur hún vakiff all-
mikla athygli í Danmörku.
Eftirfarandi ritdómur um
bókina birtist í stjórnarblaff-
inu Aktuelt fyrir nokkrum
dögum.
Gert viff hand rit í Árnasafni.
frekar unj málið, fyrr en 27.
apríl 1961, þegar Jörgen Jörg-
ensen iagði fram frumvarp sitt.
Möllei' lýsir síðan þeim viðræð-
um( sem fóru fram í sambandi
við fund Norðurlandaráðs í Kaup
mannahöfn 1961. Er frásögn sú
byggðú skýrslu K. B. Andersens,
núverandi menntamálaráðherra,
og því sem höfundur kallar
„næstum lögreglurannsókn” Dan
Larsen, ritstjóra við Berlingske
Aftenavis (sem sýnilega hefur
handrit í Árnasafni. í fylgd meff
Helgason prófessor.
haft mjög góðar heimildir um
málið).
Árangurinn af starfi Jörgen
Jörgensens varð sá að 10. júní
1961 var frumvarpið samþykkt
með 110 atkvæðum gegn 39, og
meðfylgjandi skýrsla með 110
gegn 40.
Eftir það var safnað undir-
skriftum undir frestun á stað-
festingu laganna samkvæmt 73.
gr. stjórnarskrárinnar, þar til
nýjar kosningar hefðu farið fram,
Poul Möller skrifar:
Þar eð aðeins 39 höfðu greitt
atkvæði gegn frumvarpinu,
vantaði óneitanlega nokkuð á til
að fá 60, ekki sízt af því að
þingmenn höfðu farið rakleitt
heim til sín eftir atkvæða-
greiðsluna.
Með því að senda símskeyti og
öðru hverju fréttir í útvarpinu,
skapaðist nokkur eftirvænting,
sem leiddi til þess aö kjósendur
og aðrir fengu áhuga og snéru
sér til þingmanna, sem þeir
þekktu. Á fjórða tímanum á
miðvikudag báru.st formanni í-
haldsflokksins sjö skeyti, hið
síðasta frá Grænlendingnum Nic.
Rosing. Þá gátu Ib Thyregod og
Poul Möller afhent forseta þings-
ins: 61 undirskrift. Undirskrif-
endur voru 31 ihaldsmaður (allir
nema Thestrop), 23 Vinstrimenn.
á þingi. ásamt sex óháðum og
Grænlendingnum.
Poul Möller hefur fátt að
segja um það, er K.B Andersen
flutti á nýjan leik frumvarp
Jörgensens. Hann segir: Það er
ástæða til að benda á\að mennta
málaráðherra lýsti yfir, að eins
langur tími væri til nefndarstarfa
og óskað yrði, og að gjarna mætti
leita að málamiðlun. Hvort Poul
Möller leitar að slíkri miðlun,
segir hann ekki.
Poul Möller fjallar einnig vel
um lagalega lilið málsins og læt
ur í Ijós athyglisverðar skoð-
anir. Hann telur, að því aðeins
komi nú til greina breytingar á
frumvarpi Jörgen Jörgensens,
sem K. B. Andersen hefur aft-
ur lagt fram, að svo almennt sam
komulag verði um þær, að ekki
skapizt hætta á að 60 þingmenn
gæti enn frestað framkvæmd
laganna. Verði frumvarpinu
breytt, telzt það vera ný lög og
má aítur beita ákvæðum stjórn-
arskrárinnar.
Um afstöðu Árnasafnsnefnd-
ar segir Möller ennfremur: —
Nefndin hefur áður sagt, að hún
muni leggja málið fyrir dómstól-
ana. Ekki er vitað, hvort nefnd-
in ætlar að krefjast skaðabóta
eða ónýtingar laganna á þeim
grundvelli, að þjóðarhagur krefj-
ist ekki skiptingar safnsins. Ef
til vill verða báðar kröfur gerð-
ar.
Poul Möller fullyrðir, að öðru
máli gegni um konunglega bóka
Framhald á 13. síffu.
STARFSFÓLK ÓSKAST
Viljum ráða til vinnu strax eða fljótlega
starfsfólk við eftírfarandi störf:
Ritara í söludeild. Viðkomandi þarf að hafa
skýra rithönd. Ráðningartími strax.
Stúlku til símavörzlu. Æskilegt, að viðkom-
andi hafi einhverja vélritunarkunnáttu.
Ráðningartími í febrúar.
Skrifstofustúlku. Viðkomandi þarf að hafa
sæmilega vélritunarkunnáttu og einhverja
þjálfun í meðferð algengra skrifstofuvéla.
Ráðningartími eftir samkomulagi.
Afgreiðslustúlku í kjötverzlun. Ráðningar-
tími strax.
Sendisveinn óskast til starfa strax. Æski-
legt, að viðkomandi hafi lítið mótorhjól eða
reiðhjól til afnota.
Nánari upplýsingar í skrifstofu félagsins,
Skúlagötu 20.
SLÁTURFÉI^AG SUÐURLANDS.
■ /
Samvinnuskólinn Bifröst
Inntökupróf í Samvinnuskólann verður haldið í Reykja-
vík síðari hluta septembermánaðar.
Umsóknir sendist Bifröst-fræffsludeild
Sambandshúsinu, Reykjavík eða
Samvinnuskólanum Bifröst, Borgarfirði fyrir 1. sept-
ember.
Skólastjóri.
Bifreibaeigendur
Réttingar, blettun og alsprautun.
Bifreiðaverkstæðið
Dugguvogi 7 — Símar 10154 og 30900.
TRÉSMIÐIR
óskast til vinnu við Borgarsjúkrahúsið í
Fossvogi. Löng vihna, innivinna.
Byggingaféiagið Brú h/f
Sími 16298.
SENDISVEINN
óskast fyrri hluta dags eða allan daginn.
H/F Eimskipafélag íslands.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 19. janúar 1965 9