Alþýðublaðið - 19.01.1965, Síða 14
EF listamenn eru vinsælir
meóal kollesra sinna, þá
eru þeir heldur hvergi ann
ars staðar vinsæiir. . . .
Kvenfélagið Aldan, lieldur fund
miðvikudaginn 20 jan. kl. 8.30 a'ð
Bárugötu 11.
Rætt verður um sumardvöl
kvenna og barna. Spilað.
Nessöfnuður. Séra Sigurjón Þ.
Árnason hefur biblíulestur í Nes
kirkju í dag kl. 8.30.
Bæði konur og karlar velkom-
án.
Bræðrafélagið.
Kvenfélag Ásprestahalls held-
Oir spilakvöld fyrir félagskonur
og gesti þeirra þriðjudaginn 19.
jan. kl. 8.30 síðd. í saínaðarheim
ilinu Sólheimum 12. Spiluð verð
«r félagsvist og verðlaun veitt;
kaffidrykkja^ Konur fjölmennið
og bjóðið eiginmönnunum með
ykkur.
Stjórnin.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af séra Stefáni Lárussyni í
Oddakirkju ungfrú Unnur Einars-
dóttir og Kristinn Gunnarsson
iðnnemi. Heimili þeirra er að
Hellu, Rangárvöllum. (Ljósm. Stu-
dio Gests, Laufásvegi 18).
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Helga Þ.
Sighvatsdóttir Greniteig 7, Kefla
vík og William Gray Atlanta
U.S.A.
Breiðfirðingafélagið, heldur fél-
agsvist og dans í Breiðfirðinga-
búð miðvikudaginn 20. jan. kl.
8.30. Allir velkomnir.
Stjómin.
SPARIFÉ
Frh. af 16. síðu.
jukust um 25.8 millj. Heildarinn-
stæður í bankanum námu í árslok
912 millj. kr.
Reksturshagnaður sparisjóðs-
deildar varð 3.2 millj. kr. Eigna-
aukning bankans á árinu varð 24.3
milij. kr., þar af eignaaukning
Stofnlánadeildar landbúnaðarins
23 millj. kr.
Er hrein eign stofnlánadeildar
nú 57.7 millj. kr. Búnaðarbankinn
setti á stofn þrjú ný útibú á árinu,
á Sauðárkróki, Stykkishólmi og
Hellu. Yfirtóku útibú þessi jafn-
framt starfsemi sparisjóða á við-
komandi stöðum. Starfrækir bank-
inn nú sex útibú utan Reykjavík-
ur. Hefur orðið mjög hagstæð þró
un hjá útibúum bankans á árinu,
og innlánaaukning útibúanna orð-
ið samtals rúmar 50 miUj. kr.
Veðdeild bankans lánaði á ár-
inu til jarðakaupa 83 lán, samtals
að fjárhæð 5.6 millj. kr. Er það
jafnhá upphæð og árið áður.
■ Stofnlánadeild landbúnaðarins
lánaði á árinu 1964 samtals 1399
lán, að fjárhæð 102, 5 millj. kr.
Er það jafnhá upphæð og deildin
lánaði árið áður.
Eftir var að afgreiða um ára-
mót lán, er nema munu rúmum 7
millj. kr. sem bankastjórnin hafði
samþykkt að veita, en annaðhvort
hafði ekki verið vitjað fyrir árslok
7.00
12.00
13.00
14.40
15.00
16.00
17.00
18.00
18.20
18.30
19.00
20.00
20.15
20.50
21.00
Þriðjudagrur 19. janúar
Morgunútvarp. í
Hádegisútvarp.
„Víð vinnuna“: Tónleikar.
„Við, sem heima sitjum":
Kristín Jósefsdóttir handavinnukennari tal-
ar um fatasaum.
Miðdegisútvarp.
Síðdegisútvarp.
Fréttir — Endurtekið tónlistarefni.
Tónlistartími barnanna
Jón G. Þórarinsson sér um tímann.
Veðurfregnir.
Þjóðlög frá ýmsum löndum.
Tilkynningar. — 19.30 Fréttir.
íslenzkt mál
Ásgéir Blöndal Magnússon cand. mag talar.
Á Indíánaslóðum:
Bryndís Víglundsdóttir flytur sjötta erindi
sitt með þjóðlegri tónlist Indína.
Tveir frægir fiðlumeistarar.
Nýtt þriðjudagsleikrit: „Greifinn af Monte
Kristó".
Sagan eftir Alexandre Dumas. Útvarpshand-
ritið gerði Eric Ewens. Þýðandi: Þórður Ein-
arsson. Leikstjóri: Flosi Ólafsson.
Fyrsti þáttur: Samsærið. Persónur og leik-
endur:
Edmond Dantes
Herra Morrel
Danglars
Pére Dantes
Caderousse
Mercédes
Fernand
Markgreifinn
Markgreifafrúin
Renée
de Villefort
Butin
Rúrik Haraldsson
Guðmundur Pálsson
Helgi Skúlason
Valur Gíslason
Valdemar Helgason
Kristbjörg Kjeld
Baldvin Halldórsson
Gestur Pálsson
Guðbjörg Þorbjarnard.
Bryndís Pétursdóttir
Ævar R. Kvaran
Klemenz Jónsson
21.40
22.00
22.10
22.30
23.20
Píanótónleikar.
Fréttir og veðufregnir.
Kvöldsagan: „Eldflugan dansar" eftir Elick
Moll; V. Guðjón Guðjónsson les.
Létt músik á síðkvöldi.
Dagskrárlok.
Allt í áttina.
Engir vita upp á hár.
en ýmsir koma fram með spár,
og halda, að þetta herrans ár
í heiminum muni ganga skár.
Kankvís.
eða einstök lánsskjöl vantaði.
Afstaða bankans gagnvart Seðla
bankanum hefur enn batnað mikið
á árinu 1964.
Innstæða á bundnum reikningi
var í árslok 158,8 millj. kr. og
hafði hækkað um 61.7 millj. kr. á
árinu.
Innstæða á viðskiptareikningi
var í árslok 63.5 millj. kr. og hafði
1 hækkað á árinu um 10 millj. kr.
Heildarinnistæða Búnaðarbank-
* ans í Seðlabankanum var því í
árslok 222 millj. kr.
Endurseldir afurðalánavíxlar
námu í árslok 60 millj. kr.
Yfirdráttarskuld við Seðlabank-
ann varð aldrei á árinu.
Bílar á Esju
Framhald. af 16. síðu.
komast yfir ýmsa kafla leiðar-
innar sem annars hefðu orðið
þeim ófærir með öllu
Efst á Esjunni var 13 stiga
frost á sunnudag og mikill skaf
renningur en við rætur fjalls-
ins var aðeins 6 stiga frost.
Farið var sömu Qeið niður og
urðu leiðangursmenn þá að
reka niður járnkarla í harð-
fennið og settu kaðla í bílanna
og héldu við þá niður bröttustu
skriðunar og harðfannirnar.
Ferðin niður tók um tvær og
hálfa klukkustund og komu leið
angursmenn niður í Mosfells-
sveit um sjöleitið á sunnudags-
kvöld.
HORFIÐ FRÁ
Frambald af síðn 16.
koma hinna litlu transistor útvarps
tækja hefði gert það að verkum,
að menn hefðu dregið notagildi
núverandi innheimtuaðferðar í
vafa, en þrátt fyrir það væri ekki
talin ástæða til að breyta til.
Þær reglur gilda nú um afnota
gjöld útvarpsins, að eitt afnota-
gjald er innheimt af hverri fjöl-
skyldu eða einhleyplngi burtséð
frá fjölda útvarpstækjanna á við-
komandi heimili.
Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarps
stjóri sagði, að árlega væri brýnt
fyrir mönnum að tilkynna til út-
varpsins ef breytingar yrðu á, ný
héimili stofnuð, eða aðrar fjöl-
skyldubreytingar, því slík tilkynn
ingaskylda hvílir á útvarpsnotend
um. Útvarpsstjóri sagði að lok-
um, að eftirlit með innheimtu af-
notagjalda yrði hert á næstunni,
þar sem gjaldheimtumenn teldu
að ekki kæmi allt til skila í þeim
efnum eins og lög mæla fyrir um.
Jarðskjálftar
Framhald. af 16. síðu.
Mjög vægur skjálfti fannst á
Hellu á Rangárvöllum 3. maí, og
annar 9. júní, ennfremur samtals
um 10 kippir á Húsavík dagana
1.—4. júlí.
Allmikill skjálfti varð skammt
úti af Skagafirði 11. júli, og fannst
hann um mikinn hluta Norður-
lands og til Vestfjarða.
Tuttugasta ágúst fundust nokkr-
ir snarpir jarðskjálftar suðvest-
anlands. Upptök þeirra voru f
Landssveit og ollu þeir nokkrum
skemmdum þar um slóðir. Enn
varð þama smáskjálfti 1. septem-
ber.
Seint f júlímánuði tók til starfa
ný jarðskjálftastöð á Akureyri,
sem landmælingastofnun Banda-
ríkjanna kostaði að miklu leyti.
Með starfsemi þessarar stöðvar
jókst mjög fjöldi jarðhræringa
víðs vegar að úr heiminum sem
sáust á jarðskjálftamælum hér-
lendis.
Austan grola, bjartviðri, frost 9—14 stig. í ga
var norðaustan átt á landinu. í Reykjavik var au:
an átt, 10 stiga frost, léttskýjað og skyggni ágæt
Króinn hennar Siggu
systur verður alveg
eins og H'Uliim, sagði
ég Huh, eins gott að
koma í veg fyrir Það,
hélt kellingin. ...
14 19. janúar 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ