Alþýðublaðið - 30.01.1965, Side 2
r
BBstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Hitstjórnarfull-
toiU : Eiöur Guönason. — simar: 14900-14903 — Auglýsingasimi: 14906.
"ABsetur: Alþyöuhúsið viö Hverfisgötu, Keykjavjk. —Prentsmiöja Alþyöu-
bi iösins. — Askriftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakíö.
Ufgefandi: Alþýðuflokkurinn.
^ SELÁS
'f Í>AÐ HEFUR verið á allra vitorði um margra
u|ánaða skeið, að næstu hverfi Reykjavíkur, sem
kiyggð yrðu. væru í nágrenni við Selás. Kort af hin-
--- nýju hverfum hafa verið birt í blöðum og ráða-
enn bæjarins hafa virzt stoltir af hinni nýju út-
mslu. í samræmi við þetta hefur allmikið jarð-
rásk gerzt á hæðunum austan við gömlu rafstöð-
ina. Bæjarbúar hafa átt von á, að þarna mundi
innan skamms-rísa nýjasta borgarhverfið. Hefur
verið vaðið í alls kyns framkvæmdir þar efra tii
undirbúnings hinu nýja hverfi. Er raunar mikil
hyggð fyrir löngu komin á þessu svæði og mætti
taka meira tillit til hennar.
I Það er auðvelt að vera vitur eftirá. Það er auð
velt að hneykslast eftir að slys hafa viljað til. En
samt getur Alþýðublaðið ekki orða bundizt og verð
ur að finna alvarlega að því, að ekki skyldi sýnd við
leitni til að setja Ijós á götukafla, sem var malbik-
aður, þar sem umferð var mikil og byggð töluverð.
Vegir og götur eru á frumstæðu stigi á íslandi.
éh eru að breytast. Það er. nauðsyn, að betur verði
hngsáð um götulýsingu umhverfis bæinn en hing-
áo til hefur verið gert.
(
ILLGIRNI
FYRIR NOKKRUM DÖGUM birti Alþýðublað
ið ritstjórnargrein á þessum stað um verkföll og við
Horf þjóðarinnar til þeirra. Þessi grein var skrifuð
frá sjónarmiði verkalýðshreyfingarinnar og Al-
þýðuflokksins, og vakti nokkra athygli. Meðal ann
V,.áfs var birtur í Þjóðviljanum heill leiðari til að
bera lof á þessa Alþýðublaðsgrein.
,. ; j, í þessu sambandi var sérstaklega tekið fram í
Þjóðviljanum, að lof um Alþýðublaðið væri ekki
: sett fram af illvilja. Þannig var viðurkennt, að skrif
í' Þjjóðviljans um Alþýðublaðið mótist venjulega af
iHvilja og þurfi að taka sérstaklega fram, þegar svo
; á| ekki.
ý 3 Þjóðviljinn í gær birti árás á Alþýðublaðið og
ý er ekki tekið fram, að hún*sé birt án illvilja. Vérð-
; ur því að líta svo á, að greinin sé skrifuð af venju-
• légum illvilja til Alþýðublaðsins. Og mega þeir því
taka mark á henni, sem vilja.
Gagnrýni Þjóðviljans þess efnis, að Alþýðu-
hlaðið styðji ekki sjómenn í verkfalli þeirra, er
fjarstæða. Það hefur Alþýðublaðið gert á miklu
áhrifameiri hátt en Þjóðviljinn, þótt stóryrði og
skammir birtist ekki daglega á forsíðu Alþýðu-
bjaðsins. Það er varhugavert að ræða einstök at-
riði samninga, sem standa yfir. Hins vegar hefur
Alþýðublaðið veitt sjómannasamtökunum margvís
legan stuðning og hlotið fyrir það lof Þjóðviljans
„án illgirni“. Frekari vitnisburð þarf ekki að nefna
í þessu sambandi.
m
EEIIP—
B
©L
TI
ITlii
iiiimmmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiliiiniiiiiiiuiiiiimi iiMiiiiiiimiiimiiiiuiMil
+ Hundrað ræður ráðherra.
•$r Biaðamennirnir komust varla að.
'A' Góður þáttur í útvarpinu.
ýr Tvö aðdáendabréf.
iMimiiiniiii
iiiiiimimimmmmmmmiiimmmimiii 1111111111111111111111111111
GUNNAR SCHRAM fékk land-
búnaðarráðherra til þess að
svara spurningum tveggrja blada
manna á síðasta blaðamannafundi
í útvarpinu. — Þetta var að vísu
að ýmsu leyti fróðlegair þáttur
en heldur var liann óvenjulegrur
því að segja mátti, að landbúnaðar
ráðherra flytti huiidrað ræður og
blaðamennirnir fengju ekki leyfi
til að bera fram spurningar, enda
kom það oft fyrir að ráðherrann
greip fram í spurningarnar háif
sagðar og gerði með því hvort
tveggja í senn, að koma í veg
fyrir að spurningarnar væru born
ar fram til fulls og að trufla
spyrjemdurna.
ÞAÐ ER SKYLDA BLADA
MANNA á svona fundum í út-
varpinu, að sýna þeim( sem á að
svara fulla kurteisi og taka tll-
lit til þeirrar aðstöðu sem hann
er í. Það hefur heldur ekki borið
á því til þessa, að blaðamenn
hafi brotið þessa reglu. En þá
er það og skylda þess sem svar
ar að sýn.a spyrjendum sömu
kurteisi, annars fer þátturinn út
um þúfur. Þá er það og heldur
hvimleitt, iað heyra snuprur til
blaðámanna, að spurningar (,eigi
ekki við“. •
ÞAÐ VAR VITANLEGA sjálf-
sagt mál, að landbúnaðarráðherra
hefði tækifæri til að svara spurn
ingum á þann hátt, sem honum
þótti nauðsynlegt til þess að upp
lýsa málin, en of langt var því
miður gengið að þessu sinni —
og þar með náði þátturinn ekki
þeim tilgan.gi, sem ætla<st vter
til. En við skulum vona að betur
takist næst. Ég vil tafca það fram
að hér er ekki verið að gagn-
rýna stjórnina á þættinum. Stjórn
andinn hefur sýnt, að hann er
fullkomlega starfi sínu vaxinn.
UM EINN ÞÁTT í útvarpinu
hef ég fengið tvö bréf. Hér eru
þau: „Ég legg ekki í vana minn
að skrifa þér, en ég get ekki ann
að en beðið þig að þakka fyrir
þátt Tage Amendrup í útvarpinu
Noregsvaka
í Kópavogi
NORRÆNA félagið í Kópavogi
efnir til Noregsvöku í Félags-
heimili Köpavogs sunnudaginn 31.
janúar og hefst hún kl. 20,30.
Odd Didriksen, sendikennari, mun
flytja erindi um nofska skáldið
Terje Vesaas, og skáldið sjálft
lesa upp lir vérkum sinum af 'seg-
ulbándi. Ingvar Jonasson fiðlu-
leikari, mun leika norsk lög. Frí-
mann Jónasson, fyrrveraédi skóla
stjóri, flytur erindi: Minningar
frá Þrándheimi. Er Þrándheimur
vinábær Kópavogs. Þá verður
• sýnd fögur lítkvikmynd frá Þránd
heimi og slðan "verður almennur
söngur norskrá laga. Félagsménn
í Kóþavogi eru livaltir til þess
að fjölmenna á vökuna, og Norð-
mönnúm hér á landi er sérstak-
■ lega boðið. «
á sunnudgg. Þetta er tvímælaiaust
einn bezti þátur útvarpsins sem
komið hefur. og ég man eftir.
Þátturinn sýnir að hægt er að
setja isaman dagsskrá þar sem
allir hafa ánægju af efninu.
Kváeðaflutningurinn var svo sér-
staklega smekklegur og lagið sem
flutt var með var svo hugljúft
að ég hefi hefi raulað það fyrir
munni mér síðan. Það gleymdist
vízt !að geta höfundar. Hver er
hann?
K.F. SKRIFAR „Flestir skrifa
þér til að rífast, eða kvarta, en
sumir þó til að geta þess sem vel
er gert og ég ætla að hrósa einum
þætti er kom í útvarpinu síðast
liðinn sunnudag og hét „Hvað er
svo glatt“ en hefði átt að heita
„Eitthvað fyrir alla“„ Því hann
var svo fjölbreyttur og vandað-
ur að ekki finnst annar slíkur hjá
þeirri virðulegu stofnun. Kvæði
kvöldsins var frábært, flutning-
ur og lagið, eins söngur þeirra
Guðmundar og Svölu. Þættirnir
úr Þjóðleikhúsinu og Iðnó ágæt
ir sérstaklega sá úr Þjóðleikhús
inu.
ER EKKI HÆGT að hafa svona
þátt vikúlega. Hann myndi halda
fólki heima, og þegar útvarpiŒ
hefur sýnt að það geti komið meŒ
gott prógram, þá er því engin
vorkunn. Ef ég á að finna att
þættinum, er það að lengri þögn
hefði mátt hafa eftir kvæðl
kvöidsins. Ég komst í svo mikla
stemmingu að kynning næsta atf
iðis verkaði truflandi á mig. £
endurteknu efni næst, ætla ég að
biðja útvarpið að leika þáttinn
aftur, því ég ætila mér að hlusta
á hann þá og svo mun um flelrT*
SHOBSTÍBII
Sæfúni 4 - Síml 16-2-27
BilHna er smurður fljódl of
fcUn aUar tegaudlr it
Auglýsið í Alþýðublaðínu
Auglýsingasíminn 14906
Afgreiðslufólk -
Hlaðfreyjur
LOFTLEIÐIR H.F. vilja ráða til sín frá 1. anríl eða 1.
maí n k. allmarga menn og konur á aldrinum 19—30 ára
til að starfa í farþegaafgreiðslu félagsins á Keflavíkur-
flugvelli. Er hér bæði um afgreiðslustörf að ræða og svo-
nefnd hlaðfreyjustörf. Umsækjendur skulu hafa gott vald
á ensku og einhverju Norðurlandamálanna, en æskllegt
er að þeir hafi einnig nokkra kunnáttu í þýzku eða
frönsku. Atvinna sú, er hér um ræðir, er ýmist hugsuð
til frambúðar eða sem sumarstarf, en þá þarf viðkomandi
helzt að geta starfað til 1. nóvember n,k.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins, Lækjar-
götu 2 og R.eykjavíkurflugvelli, svo og hjá umboðsmönn-
um félagsins út um land.
Umsókntr skúlu hafa borizt ráðningárdeild félagsins fyrir
10. febrúár n.k.
2 30. janúar 1965 - AIÞÝÐUBLAÐIÐ