Alþýðublaðið - 26.02.1965, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 26.02.1965, Blaðsíða 7
 Frá verkalýðsfélögunum eftir Þorstein Pétursson Aðalfundur Sóknar: AÐALFUNDUR Starfsstúlkna- félags. Sóknar. var haldinn 17. þ. m. Formaður félagsins Margrét Auðunsdóttir flutti skýrslu stjórn arinnar og rakti í stórum drátt- um starf félagsins ó liðnu ári. Hagur félagsins er mjög góður og hrein peningaeign sjóða fé- lagsins rúmlega 800 þúsund krón ur, þar af 323 þúsund í Sjúkra- sjóði, þótt úr sjónum hefðu verið veittar rúmlega 200 þúsund krón Ur á síðasta ári. Meðlimir Sókn- ar eru nú um 900. Árgjaid yfir- standandi árs var ákveðið kr 500.00. Stjórn félagsins var öll endur kosin og er hún þannig skipuð: Mrb'grét: AuðunsdóStir, formað ur, Viktoria Guðmundsdóttir vara formaður, Sigríður Friðriksdótt ir ritari, Margrét Guðmundsdótt ir gjaldkeri -og Ása Björnsdóttir meðstjórnandi: í varastjórn eru: Ólafía Sumarliðadóttir, Kristín Sigurðardóttir og Guðlaug Jóns- - dóttir. Trúnaðarmannaráð skipa: Kristín Björnsdóttir, Inga Thor arensen, Lilja Jónsdóttir og Sól veig Sigurgeirsdóttir, til vara: Björg Jóhannsdóttir, Kristín Sig urðardóttir, Halldóra Sigurðar- dóttir. Endurskoðendur voru kjörnar: Soffía Jónsdóttir, Þór- Unn Guðmundsdóttir og til vara Vilborg Björnsdóttir. Á fundinum voru samþykktar skorinorðar tillögur um stytt- ingu vinnuyikunnar, hækkun kaups, lengingu orlofs og að skora á verkalýðsfélögin að búa sig sem bezt undir þá baráttu sem framundan er. Aðalfimdur Eining'ar: Aðalfundur verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri var haidinn 31. jan. s.l. Fullgildir félags- menn Einingar voru 649 í árs- lok. Eignaaukning á árinu 1964 nam kr. 155.000.00. Sjúkrasjóð- ur greiddi samanlagt kr. 140.000. 00 í bætur á sl. ári. Félagið rak barnaheimili um tveggja mánaða skeið á s.l. sumri, einnig sekkst félagið fyrir félagsmálanámskeið um á liðnu ári. . Stjórn félagsrns. var sjálfkjör- “’ en hana Björn Jónsson formaður, Rósberg G. Snædal rit an, Þórhaliur Einarsson varafor '“S’ .Vllborg GuSJónsdóttir BiÍrt^1 Þ-°S ni®ðsfjórnendur Bjorgvin Einar^son, Auður Sig- urpálsdóttir og| Adólf Davíðs- son. I tfunaðaripannaráð voru jornir: Arni Jónsson, Jónína Jonsdottir, Björn Hermannsson Gunnar Sigtry.ggsson, Freyja Ei- ríksdottir, Geir ívarsson, Gústaf Jonsson, Þórdís Brynjólfsdóttir Ingólfur Arnason Grundargötu J Magnúsdóttir, jó- hann Hannesson og Margrét Vil hjálmsdóttir. Árgjald karla var ákveðið kr. 700,00 og kvenna kr. 450,00. Iðja á Akureyri hélt aðalfund sinn 7. þ.m. Stjórn, Iðju fyrir yfirstandandi ár er þannig skipuð: Jón Ingimarsson formaður, Helgi Haraldsson vara formaður, Guðmundur Hjaltason ritari, Þorbjörg Brynjóífsdóttir gjaldkeri og Hallgrímur Jónsson meðstjórnandi. f trúnaðarmannaráð voru kjöm ir: Hjörleifur Hafliðason, Kjart an Sumarliðason, Gestur Jó- hannsson, Árni Ingólfsson, Frið- þjófur.Guðlaugsson og Adam Ing ólfsson. Fullgildir félagsmenn Iðju eru nú 666 og er Iðja, félag verk- smiðjufólks á Akureyri fjöl- mennasta verkalýðsfélag á Norð- ur- og Austurlandi. Eignir Iðju um síðustu áramót námp nálægt 2 milljónum króna og eignaaukn ing á s.l. ári hálf milljón króna. Járnsmiðir í Reykjavík Félag járniðnaðarmanna held ur aðalfund sinn á morgun kl. 4 e.h. í Samkomusal Landssmiðj unnar við Sölvhólsgötu. Pípulagningamenn Sveinafélag pípulagninga- manna hefur ákveðið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarmanna ráðs félagsins fyrir árið 1965 og rennur framboðsfrestur út kl. .8 í kvöld. Aðalfundur Dagsbrúnar Aðalfundur Verkamannafélags ins Dagsbrúnar verður haldinn sunnudaginn 28. þ.m. kl. 2 e.h. í Iðnó. Reikningar félagsins liggja frammi í skrifstofu félagsins. Ráðskonur: Hér áður fyrr voru varla til ráðskonur nema á sveitabæjum og einkaheimilum. Nú er þessi stétt orðin allfjölmenn og fjölg ar óðum. Við höfum auk hinna venjulegu heimilisráðskvenna ráðskonur í mötuneytum, veit- ingahúsum, félagsheimilum, ráðs konur við vegavinnu og allskonar viðleguvinnu. í verstöðvunum höfum við ráðskonur við báta þá sem þar hafa viðlegu o.s.frv. Ekki liggur alltaf ljóst fyrir hvaða kaup eigi að greiða ráðs- konum. Tvö verkalýðsfélög í Reykjavík hafa samning um kaup ráðskvenna í allskonar mötuneytum og Félag starfsfólk í veitingahúsum hefur samning um kaup ráðskvenna og matráðs kvenna í veitinga- og gistihúsum, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur samning um kaup matráðskvenna í sjúkrahúsum og hliðstæðum opinberum stofnun um. Alþýðusamband íslands hef ur samning um kaup ráðskvenna við vega- og brúargerð og annán samning við Landssíma íslands um sama efni. Mörg verkalýðs- félög utan Reykjavíkur hafa samninga um kaup ráðskvenna, en þó skortir mikið á að samn- ingar um kaup ráðskvenna við bátaflotann séu fyrir hendi í öll um verstöðvum. Fanggæzlur: Þegar við tölum um ráðskonur við bátaflotann, þá kemur okk- ur í hug að til er gamalt og gott starfsheiti um þetta starf, en ráðskonur við veiðiskip voru áður fyrr kallaðar fanggæzlur, þær gættu fangs og fjár og höfðu á hendi alla matseld til lianda skipshöfninni. Þetta ágæta starfs heiti má ekki leggjast niður með öllu. ■■■■■■■ Nýtízkulegt bað á sólvangi Nýlega var tekin í notkun á sjúkrahúsinu Sólvangi í Hafnar- firði baðvagn og baðlyfta, sem ekki mun hafa verið reynt hér lendis áður. Sjúklingum er ekið á þar til gerðum baðvagni yfir baðkerið- Þá er borðinn, sem sjúklingurinn liggur á lækkaður og baðkerinu jafnframt lyft í hæfilega hæð þann ig, að sá sem baðar, stendur upp réttur við vinnuna. Þegar baðinu er lokið er borð inn með sjúklingnum hækkaður og baðkerinu hleypt niður. Eftir að sjúklingurinn hefir ver ið þerraður og snyrtur, er honum eki$ í baðvagninum að rúmi sínu. Við þetta sparast mikið erfiði við böðun sjúklinga, sem ekki komast hjálparlaust í baðkerið og úr því. Hægt er einnig að nota baðlyft una án þess að nota baðvagninn Tæki þessi eru framleidd í Sví- þjóð og hefir Rafha í Hafnárfirði umboð fyrir þau. ÍSLENDINGNUM GEFIÐ höfuðlIkan af nonna Útgefndi Nonnabókanna, dr. Herder Dorneich, gaf hingað fyr ir nokkru síðan fyrir milligöngu Haraldar Hannessonar, hagfræð ings, höfuðlíkan úr gipsi af síra Jónf Sveinssyni, rithöfundi, (Nonna). Er þetta eina mynd þess arar tegundar, sem vitað er um að gerð hafi verið af Nonna í lifanda lífi- Frummynd þessa af- henti menntamálaráðuneytið Þjóð- minjasafni Ííilands til eignar og á(kvað jafnframt a.ð láta gcjra eirsteypu af .mynd'inni. Hefur eir- myndinni nú verið komið fyrir í anddyri Þjóðminjasafnsins. Stend- ur hún þar á stöpli úr japanskri eik, sem Skarphéðin Jóhannsson arkitekt hefur teiknað og er á stöplinum silfurplafji, með svo- hljóðandi álctrun: Pater Jón Sveinsson S.J. 16. nóv. 1857-«- 16. okt. 1944. Myndin er gerð af Franz Raab- Gefin íslendingum af dr. Herder Dorneich í Freiburg in Breisgiau, útgefanda, Nonnabók- anna.“ Dr. Herder Dorneich gaf annað eintak af áðurnefndri gipsmynd til Nonnahússins á Akureyri, sem er minjasafn um síra Jón Sveins son. Menntamálaráðuneytið 22. feb. 1965. o- Frá vinStxit Birg'iJ Thnrlacius ráðuneytisstjóri, dr. Kristján Eldjáni þjóðminjavörður, dr. Gylfi Þ- Gíslason menntamálai ráðherra, Jóhannes Gunnarssón bislcup, síra Sæmundur Vigfus- son og Haraldur Hannesson liag fræðingur. . ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 26. febrúar 1965 tJ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.