Alþýðublaðið - 26.02.1965, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 26.02.1965, Blaðsíða 14
A Frá Guðspekifélagri íslands. Stúkan Dögun heldur fund föstudaginn 26. þ.m. í Guðspeki- félagshúsinu, og hefst hann kl. 20-30. Kristján Fr. Guðmundsson flytur erindi: „Sólarhringur“, og Sigvaldi Hjálmarsson flytur er- indi: . Hvað er einfalt lif“. Frið- björn Jónsson syngur einsöng við undirleik Jóns S. Jónssonar. Kaffi veitingar eftir fundinn. Allif vél- komnir. Áheit á Strandakirkju. Kr. 200.00 frá Klöru. Kr. 500-00 frá I. Sigurðard. HIÐ VINSÆLA barnaleikrit Almansor konungson eftir Ólöfu Árna- dóttur, sem Leikfélag Reykjavíkpr sýnir um þessar mundir, virðist ætla að njóta mikilla vinsælda. Aðsókn hefur verið góð og fögnuður hinna ungu leikhúsgesta mikill. Sýningar eru sem kunnugt er í Tjarnarbæ og næsta sýning er á sunnudag klukkan 3. Mér finnst að Vísir ætti að fá orðu fyrir að slá mennt- skælingana svona gersam- lega út í skelfingunni. En það er kannski miklu þægi- legra að farast í eldgosi en kjarnorkustyrjöld . . . Minningarspjöld úr Minningar- sjóði Maríu Jónsdóttur flugfreyju fást I Óculus, Austurstræti 7, Snyrtistofunni Valhöll, Laugaveg 25 og Lýsing h.f., Hverfisgötu 64. Börnum og unglingum lnnan 16 ára er óheimill aðgangur að dans- veitinga- og sölustöðum éftir kl. 20. Bókasafn Seltjarnarness er oplð mánudaga kl. 17,15—19 og 20—22, miðvikudaga kl. 17,15—19 og föst'i daga kl. 17.15—19 og 20—22, Mæðrafélagið. Aðalfundur félagsins verður föstudáginn 26. febrúar í Aðal- stræti 12. kl. 8,30. Aðalfundarstörf og kvikmyndasýning- Föstudagur 26. febrjar 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.30 „Við vinnuna“: Tónleikar. 14.40 „Við, sem heima sitjum": Árni Tryggvason les söguna „Það er gaman að lifa“ eftir Finn Söeborg, í þýðingu Ás- laugar Árnadóttur (10). 15.00 Miðdegisútvarp. 16.00 Síðdegisútvarp. 17.00 Fréttir — Endurtekið tónlistarefni. 17.40 Framburðarkennsla í esperanto og spænsku 18.00 Sögur frá ýmsum löndum, þáttur fyrir börn og unglinga í umsjá Alans Bouchers. Sverrir Hólmarsson les þýðingu sína á sögunni „Frumbyggjar". 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar — 19.30 Fréttir. 20.00 Efst á baugi Björgvin Guðmundsson og Tómas Karlsson tala um erlend málefni. 20.30 Siðir og samtið Jóhann Hannesson prófessor grelnir frá kenn ingum Aristótelesar um dyggðina. 20.45 Lög og réttur Logi Guðbrandsson og Magnús Thoroddsen lögfræðingar hafa flutning þáttari-ns með höndum. 21.10 Einsöngur í útvarpssal: Sigurveig Hjaltested syngur. 21.30 Útvarpssagan: „Hrafnhetta" eftir Guðmund Daníelsson. Höfundur Ies (13). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 21.10 Lestur Passíusálma Séra Erlendur Sigmundsson les ellefta sálm. 22.10 „Beinagrindin", smásaga eftir Rabindranath Tagore í þýðingu Sveins Sigurðssonar. Elín Guðjónsdóttir les. 22.45 Næturhljómleikar. 23.30 Dagskrárlok. Þáttur um lögfræðileg efni liefur í vetur verið í umsjá tveggja ungra lögfræðinga, Loga Guð- brandssonar og Magnúsar Thoroddsens. Þátt- urinn nefnist Lög og réttur og er í kvöld klukk- an 20.45. EEdgosahætta í Reykjavík Eldgosa-skelfing upp er risin umhverfis sjálfa Reykjavfk. Því flýjum vér, til að forðast slysin, og fylgjum deifbýlis-pólitík. Allir sjá, hvílík ógnar skyssa er uppbygging húsa á þessum stað. Ég er svo öldungis yfir mig hissa, að Ingólfi skyldi leyfast það! KANKVÍS. Stöðvið heiminn — hér fer ég út, hinn vinsæli söngleikur, sem Þjóð- leikhúsið sýnir um þessar mundir, verður sýndur í kvöld í 22. sinn. Aðalhlutverkin eru sem kunnugt er Ieikin af þeim Bessa Bjarnasyni og Völu Kristjánsson. Myndin er af Bessa í hlutverki Litla karls. <1----------------------------- ELDUR ADGERÐALEYS- IS í ATVINNUMÁLUM ÓGN AR SIGLFIRÐINGUM. Fimm dálka fyrirsögn í Tímanum í gær. T Hægviðri og skýjað. í gær var hægviðri um allt land, norðanlands og vestan var skýjað. í Reykja- vík var logn og alskýjað og fjögurra stiga hiti. Það var mikil blessun, þegar þú fæddist, sagði kallinn við mig í gær. — Þá hætti kellingin að spila á píanóið . . . 14 26. febrúar 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.