Alþýðublaðið - 14.03.1965, Síða 3

Alþýðublaðið - 14.03.1965, Síða 3
MWWmWWWMWWWWWWWWWiWMIKMMMMMMiMHWWWWWWHWWWWW* GUÐ OG MENN tMMMMMMtiMMMHMMMM tMMMMMMMMMMMtlMMMI Sigurbjörn Einarsson, bisHup: UM ÁRSINS HRING. Úr stól — frá altari — yfir mold um. Setbergr, Reykjavík, 1964.277 bls. „Jesús Kristur er undrið í sögunni," segir Sigurbjörn bisk up Einarsson í predikun á pásk um: ,(Guði sé lof, því það undur leyslr gáturnar og vandann. Að trúa á hann er ekki að sam- þykkja furðulegar staðhæfingar heldur að þiggja dásamlega auð legð, vita það, að Guð er mik- ill Guð, sem gjörir dásemdar- verk i elsku sinni( sem hefur búið oss afdráttarlausa hjálp í Jesú Kristi, sem brýzt gegnum hverja ófæru til þess að hjálpa, gegnum kvöl og smán, ef því er að skipta, gegn myrkri hat urs og blindni, líður krossins píslir heldur en að sleppa veg villtu, blinduðu bami, leggur sjálfan dauðann að velli- Vér eigum frelsara, sem ég og þú og hver annar veikur, skammsýnn og isyndugur maður getur flúið til og átt athvarf hjá í allri neyð, óbrigðult undursamlega blessað og máttugt athvarf.“ Trúin rem fagnaðarrík full- vissa, auðlegð hjarta og hugar isem endurleysi líf mannsins, veiti því merkingu og inntak: þessi hugmynd kveður við eins og stef í ræðum Sigurbjarnar Einarssonar, í nýjum og nýjum tilbrigðum. Og móti þessari dýrð arsýn lausnarans kemur sýn hins ófullkomna manns á jörðinni — eins og henni er til að mynda lýst í minnlngarræðu um Hall- grím Pétursson: „En maðurinn er ekki heldur og getur ekki verið markmið í sjálfum sér, meðan hann veit ekki, hvað hann er sjálfur, með an líf hans er rammað þeim rún um, sem hylja öll þess dýpri rök. Á meðan er maðurinn að- eins þankastrik í eyðifleti, að- eins nóta, sem af ókunnri or- sök ómar í myrkrinu, aðeins marklaust brot úr hendingu eða eins konar angursárt og óskilj anlegt atómljóð. — Maðurinn án Guðs er án merkingar og markmiðs, og hvemig má hann þá veita neinu merking, sem hann aðhefst, eða verða annars mið?“ Boðun sem þessi, þessi hug- sýn mannsins og gu®s hans kann að þykja tilkomumikil, fall eg; hún er líka víða flutt með sannfæringu og skáldlegum þrótti í ræðum biskups. Án ails efa h?fa þær margar notið sín vel á sínum stað og stundu, í kirkjunni. frammi fyrir trúandi söfnuði. En á bókinni vekja þær óneitanlega upp spurningar um predikun sem bókmenntagrein og um gildi og tilgang predikunar í daelegu lífi. Er predikarinn einuneis ’ð tjá áheyrendum sín um skáldlega sýn — eða vill hann takast á við vandamál líð andi stundar? Víkja þessar ræð ur, eða minnsta kosti einhver þeirra, að viðfangsefni sem enginn kemst undan, sem alla varða? Knýja þær áheyranda sinn, og nú flesanda, til and- svara og afstöðu, með eða móti, spyrja þær einhverrar þeirrar spurningar sem hann hijóti að svara? Eða ér prédikun einung- is tækifæri til að taia almenn um orðum, meir eða minna fallega eftir lagni predikar- ans, um mannlífið og guð- dóminn samsinna grónum siða- skoðunum, sVara þörf manní fyrir kvaðalaust guðsorð? — Þessar spurningar taka vitaskulc ekki til biskupsbókar einnar þær varða kirkjuna alla, stöðt hennar og hlutverk. En ræðu safn æðsta kennimanns okkai ætti með sínrnn hætti að svar; þeirri spurningu hver sé röd< kirkjunnar í daglegu lífi nú ; dögum- „Það er ómótmælanleg stað- reynd og margföid reynsla, að trúin breytir illu í gott, vantrú in snýr góðu til ills,“ segir Sig urbjörn Einarsson í ræðu 1. des ember 1958: „Trú er heiðríkja, vantrú þoka. Ef auga þitt er heilt, þá ertu allur í birtu. Krist inn maður er ekki fullkominn, fjarri því( en hann hefur augu, hann á bjarma inni fyrirt hann lifir í öðru umhverfi, stærra, með skýrari línum og heiðari himni. Heilt auga eða sjúkt — það er trú eða vantrú. Heilt auga sér margt sem hið sjúka sér ekki, margt illyrmi, sem leyn SIGURBJORN EINARSSON ist í þembum, gruggugum poll um, vilpum og Fúlutjörnum. Kristinn maður sér margt( sem öðrum dylst eða sér i villandi ljósi. Hann lýtur ekki að haug- sytru eða klóaksorpi í þeirri trú, að það sé uppspretta, jafn vel þótt slíkar eiturveitur séu auglýstar sem lífdaggir listar, frjálslyndis og menningar". Þetta eru afdráttarlaus orð — en hálfkveðin lieimsádeila. Stað hæfingar, ekki rökræða. Ádeil- an er persónuleg hugsmíð, mynd liking, — alveg eins og fagn- aðarerindi hans að sínu leyti. Og miklu lengra en þetta kemst Sigurbjörn Einarsson ekki í á- minningu eða umvöndun; á- deilu hans þarf enginn að sinna því að ekki er veitzt að neinu sérstöku. Svo mikið er víst að sá verður fyrir vonbrigðum sem væntir sér róttækrar umræðu.hug leikinna samtíðarefna, daglegr ar reynslu, óleystra daglegra við fangsefna í ræðum hans. Hin há leitari boðun hans, sá heiði krist indómur sem hann lýsir, er fall eg; en hún er fjarlæg, dálitið óviðkomandi; hana brestur rót- festu hver-dagslífs, hversdags- máls og reynslu; henni er ekki gefið tungutak sem knýi til á- heyrnar. Trúaðir ilesendur njóta líklega vel ræðulistar Sigurbjam ar Einarssonar hér í bókinni. En þeim sem trúardaufir em eða trúlausir miðlar hún engu nýju. Það er alkunna að Sigurbjörn biskup lætur sér annt um veg og virðing kirkjunnar; ást hans á kirkjunni sem stofnun, sögu hennar og arfhelgi birtist viða í ræðum hans. „Það er eitthvað bilað, sem ekki verður bætt, þeg ar helgin missir mál í hjarta mannsins, þegar altarið hverfur augum hans,“ segir hann í ræðu við alþingissetningu. Boðun hans er að menn hverfi aftur til kirkjunnar, lúti henni i lotning; þar bíður þeirra endurlausn kri-tindómsins eins og Sigur- björn Einarsson megnar að skilja' hann og skýra. En hvernig verða færðar sönnur á þetta úrræði, þennan veg; hvemig fær kirkjan feallað menn til sín lifandi röddu? Þá spurning ræðir bisk up ekki- Samt hlýtur hún að vera eitthvert brýnasta vanda- mál kirkjunnar í dag; bók Sigur bjarnar Einarssonar ber því sjálf ljóst vitni. Ó.J. UNDIRBÚNINGUR að næstu listahátíð í Edinborg er nú í full um gangi. Stendur hátíðin í ár dagana 22. áeúst til 11. septem ber og er að vanda boðið upp á geysimikla fiölbrevtni í hljóm- list, leiklist og málaralist. Hátíð- in ber með réttu sitt rétta nafn „Alþjóðleea lis+ahátíðin f Edin- borg‘,‘ því auk Breta koma þarna fram í ár listamenn frá Þýzka- landi, Frakklandi. Ítalíu og Ind- landi og er bá enn ekki fvllilega gengið frá öllu bví, sem sýna á óg flytja á hátíðinni. Nú er það svo, að við fá lönd hafa íslendingar beinni og ódýr- ari samgöngur en Skotland og væri þvi ekki úr vegi að benda mönnum hér heima á nokkuð af því helzta, sem þegar er ákveð ið að flytja á hátíðinni, ef nokkr um lífsnautnarmönnum, sem ekki telja sumarleyfi sínu betur var- ið í Nýhöfninni í Kaupmanna- höfn eða hiá heilögum Páli í Hamborg eða öðrum ábekktum stöðum, kynni að þykja nokkur fróðleikur í því, hvaða lystisemd ir þeim eru boðnar á næstu grös- um. Ef við byrjum þá á hljómsveit um þeim, sem ákveðið er að leiki í Edinborg á næstu hátíð, þá ber fyrst að nefna The Scottish / / EOINBORGARHAIIÐIN ISUMAR National Orchestra, sem ásamt hinum nýstofnaða Scottish Festi- vail Chorus mun hefja hátíðina með flutningi á áttundu sim- fóniu Gustavs Mahlers undir stjóm Alexanders Gibsons- Sim- fóníuhliómsveit útvarpsins í Hamborg kemur nú fram í fyrsta sinn á hátíðinni og stjórna henni þeir Hans Schmidt-Isserstedt og Pierre Boulez. Þá kemur B.B.C. Concert Orchestra undir stjórn Vilem Tausky einnig fram í fyrsta sinn. Hollenzka kammer- hljómsveitin kemur nú aftur, en henni stjórnar Szymon Goldberg og er hann jafnframt sólófiðlu- leikari, og loks er ákveðið að New Philharmonia Orchestra leiiki und^r stjóm þeirra Sir John. Barbiroíli og Carlo Maria Giulini. ÖPERUR. Óperusýningar í King's Theatre hefjast á sýningu á Don Giovanni eftir Mozart. Söngfólk verður mestmegnis ítalskt og stjórnandi Carlo Maria Giulini. Ennfremur verður flutt óperan „Le Pescatrici“ eftir Haydn — sýnd í fyrsta sinn í 150 ár. Stjórn andi verður Alberto Erede. Þess • ar sýningar eru settar upp í samvinnu við listahátíðina í Hol- landi, þar sem þær verða sýnd- ar í júní og júlí. Þessar sýning- ar verða á fyrstu tveim vikum hátíðarinnar en auk þess verða þrjár sýningar á óperunni Al- bert Herring eftir Banjamin Britten. Síðustu viku hátíðarinnar verð Uf svo Ríkisóperan í Bayera 1 * King's Theatre á ferðinni með tvær óperur: Intermezzo eftir Richard Strauss verður flutt í* fyrsta sinn á Bretlandseyjum, en ; auk þess verður sýnd Cosí Fan Tutte eftir Mozart. Leikstjólri beggja þessara ópera verður Rud olf Hartmann, en Hans Gierster stjóraar Mozart og Mainbard von Zallinger þeirri eftir Strauss. Að Framhald á 10 síðu. Úr Princess Street( aðalgötu Edinborgar. Á myndinni er minn ismerkið um Walter Scott. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 14. marz 1965 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.