Alþýðublaðið - 14.03.1965, Page 4
Gólfteppi
margs konar
mjög falleg
TEPPADREGLAR
3 mtr. á breidd
mjög fallegir litir
GANGADREGLAR
alls konar
TEPPAFILT
GÓLFMOTTUR
Nýkomið
Saumum — límum -
földum fljótt og vel.
Geysir h.f,
Teppa- og dregladeildin.
Þjóf ar, lík og
falar konur
iReykjavík, 12. marz OÓ.
Leikfélag Reykjavíkur frumsýn
: ir n.k. miðvikudag skopleikinn
Þjófar, lík og falar konur, eftir
italann Dario Fo. Þessi rithöfund
;tir er enn lítið þekktur hér á
,‘landi, enda hafa verk hans ekki
‘áður verið leikin á ísl sviði.
Sveinn Einarsson, leikhússtjóri
hélt í dag fund með blaðamönn
um og gerði í stuttu máli grein
fyrir höfundinum og verkum lians
Viðstaddh- voru einnig leikstjór-
inn, Cristian Lund og umboðsmað
ur Dario Fo á Norðurlöndum Ber
.•lil Bunden, en hann er hingað kom
inn í tilefni frumsýrtingarinar.
Dario Fo er sannkallaður þús
und þjala smiður í leiklistinni.
Hann rekur sitt eigið leikhús í
Mílanó. Hann semur lekritin sem
þar eru sýnd, teiknar leiktjöld, er
leikstjóri og aðalleikari. Lelk-
rit hans eru öll samin fyrir eigin
leikflokk og sé yfir höfuð um
nokkur aðalhlutverk að ræða,
skrifar hann þau fyrir sjálfan sig
og eiginkonu sína, sem auðvitað
er leikkona. Leikrit hans l'afa á
síðustu árum borist um allan
heim og eru nú leikin í mörgum
leikhúsum bæði austan hafs og
vestan. Dairo Fo hefur endurvakið
skopleikina og hefur hann orðið
fyrir áhrifum bæði frá gamalli
ítalskri leiklistarhefð og nútíma
höfundum, en fyrst og fremst eru
leikrit hans skrifuð og sviðsett í
hans eigin persónulega stíl.
Hann hefur nú skrifað fimm leik
rit og átta einþáttunga.
Þjófar, liíc og falar konur eru
þrír samantengdir einþáttungar
Á yfirborðinu eru þeir fjörugir
og gamansamir, með dönsum og
söngvum, en með alvarlegum und
irtóni.
Eins og sagt hefur verið frá
í Alþýðublaðinu er leikstjórinn
ungur Svíi, sem starfar að jafn
aði sem leikstjóri við Borgarleik
húsið í Stokkhólmi. Þýðinguna
gerði Sveinn Einarsson. Látbragðs
leikur og dansar eru samdir og
æfðir af Lilju Hallgrímsdóttur.
Atli Heimir Sveinsson hefur æft
tónlistina. Leiktjöld gerir Stein
þór Sigurðsson. Leikendur eru
alls 14, en ekki er um að.ræða
nein aðalhlutverk eða aukahlut.
verk. Leikararnir eru: Gísli Hall
dórsson, Brynjólfur Jóhannesson,
Haraldur Björnsson, Guðmundur
Páls'on, Guðrún Ásmundsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Bríet Héðins
dóttir, Erlingur Gíslason, Arnar
Jónsson, Borgar Garðarsson, Pétur
Einarsson, Jóhann Pálsson, Bjarni;
Steingrímsson og Valgerðui' Dan.
Ein og fyrr segir er staddur
hér á landi umboðsmaður höfundar
Bunden. Þetta er. í fyrsta sinn sem
liann kemur til íslands, en þó er
hann ekki með öllu ókunnur ís
lenzkum háttum, og hafði hann
or.ð á því að sér fyndist hann
kannast furðu vel við ríg hér á
landi, en Bunden er vel lesinn
í ísl. bókmenntum og hefur hann
m.a. þýtt sex af bókum G.unnars
Gunnarssonar á sænsku, meðal
þeirra er Fjallkirkjan.
/ð /
FRAMA
Framboðsfrestur til stjórnar-
kjörs í Bifreiðastjórafélaginu
Frama var útrunninn kl. 5 e.h.
11. marz sl.
Fram kom aðeins einn listi ■ í
hvorri deild og var því sjálfkjör
ið í báðum deildum.
Stjórnir deilda er-u þannig:
Sjólfseignarmannadeild:
Formaður, Bergsteinn Guðjóns
son, varaformaður, Kristján Þor
geirsson, Ritari, Jakob Þorsteins
son, Meðstjórnendur, Narfi Hjart-
arson og Jón Vilhjálmsson, vara
stjórnendur, Rósmundur Tómas-
son og Guðmundur Ámundason,
Trúnaðarmannaráð, Karl Þórðar-
son, Jens Pálsson, Einar Helgason
og Hörður Guðmundsson.
Varamenn í trúnaðarmannaráð,
Skúli Skúlason og Haraldur Guð-
jónsson, endurskoðandi, Tryggvi
Kristjánsson, varaendurskoðandi
Þorvaldur Þorvaldsson.
Launþegadeild:
Formaður, Pétur Kristjónsson,
varaformaður Jóhann Þorgilsson,
ritari Einar Steindórsson, vara-
stjórnendur, Helgi Gústafsson og
Már Nlkulásson, trúnaðarmanna-
ráð, Valgeir Sighvatsson, Svavar
Þorvaldsson, Gísli Guðmundsson,
og Þórir Kardsson.
Varamenn í trúnaðarmannaráði
Jón M. Jóhannsson og Bjarni Guð
mundsson, endurskoðandi, Guð-
mundur Sigurjónsson, varaendur
skoðandi Þórir Guðmundsson.
F.h. Bifreiðastjórafélagsins Frama
Bergsteinn Guðjónsson
TILBOÐ ÓSKAST
í eftirfarandi:
1. Ford ’42 pallbíll
2. Gaz 157, stigabíll, ætlaður til viðhalds götuljósa.
3. Graco, smurstöð, byggð á tengivagn.
4. 12 tonna grjótpallur og sturtur.
Tækin verða til sýnis í Vélamiðstöð ■ Reykjavíkur-
borgar, Skúlatúni 1.
Tilboð verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonarstræti 8,
þriðjudaginn 16. marz n.k. kl. 16.00,
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Adalfundur
Sjómannadagsráðs 1965
Aðálfimd'ur Sjómannadagsráðs Reykjavíkur
og Hafnarf jarðar hefur verið ákveðinn sunnu
daginn 21. marz n.k. og hefst hann kl. 13,30
að Hrafnistu.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Kristinn Guðnason h.f.
KLAPPARSTÍG 25-27. - SÍMAR 12314 & 21965.
•~4 14. marz 1965 - AIÞÝÐU8LAÐIÐ