Alþýðublaðið - 14.03.1965, Síða 6
TÍZKUKLÆÐSKERINN Don Loop í Holly-
wood er nýlega búinn að sýna vortízkuna
sína — og í kokkteilpartíinu, sem hann þá
hélt, sagði hann:
— Eins og þið sjáið getur hvaða stjarna,
sem er, fengið fullnægt sínum smekk hjá
mér — allar nema Jane Mansfield, Kim
Novak og Sabrine. Ég hef aldrei þorað að
fara út í það að sníða klæði á þau kven-
legu orrustuskip.
— ★ ~
MAÐURINN, sem fann upp hin ætu „kramarhús" fyrir ís, David
Avayou, lézt fyrir skemmstu, 82 ára að aldri.
Það v.ar á árinu 1904, er hann starfaði við stóru sýninguna í St.
Loui-s, að hinn tyrknesk fæddi Ávayou tók eftir því, að allir borðuðu
ísinn sinn með teskeiðum og af diskum. Honum kom i liug, að í
Frakklandi hafi hann séð ís borinn fram í pappírskramarhúsum —
síðan er þekkt og notað um allan heim.
og þar með var hann kominn á sporið með hið æta kramarhús, sem
— ★ ~
GOTUSALANUM Solomon Graveley í Jóhannesarborg í Suður-
Afríku hefur venð bönnuð frekari starfsemi.
Hann seldi blöð og ávexti, hann burstaði skó, hann klippti menn og
hann skirifaði ástarbréf fyrir þá, sem ekki kunnu að skrifa — og allt
þetta lét lögreglan sér vel líka, en henni fannst kasta tólfunum, þeg
ar hann setti upp straubretti á gangstéttinni og málaði skilti: „Ég
pressa buxurnar yðar á meðan þér bíðið“ — og tengdi straujárnið
við götuljós!
— ★ —
HVER er bezta eiginkona í heimi? Margir
munu svara Liz Taylor, þegar þeir lesa það,
sem á eftir fer.
Hún, sem fékk jú 6000 krónur á mínút-
una, þegar hún lék Cleopötru, hefur til-
kynnt, að hún muni leika ókeypis í hverri
þeirri mynd, þar sem eiginmaður hennar,
Richard Burton, leikur aðalhlutverkið.
En það eru jú til hundingjar, sem telja,
að þetta stafi fremur af skattamálum en
ástamálum.
AMERÍSKIR verkamenn hafa komizt að raun um, að það getur borg-
að sig að gera tiilögur um bættar starfsaðferðir og setja þær í „hug-
myndakassa" þá, sem þar eru í mörgum verksmiðjum. General Mot-
ors greiddi þannig á s.l. ári 360 milljónir króna til 172.369 verka-
manna í Bandaríkjunum og Kanada fyrir hugmyndir, sem þeir höfðu
komið fram með.
Þannig keypti einn verkamaður sér hús og bjó það húsgögnum fyrir
hluta af þeim nákga 2 milljónum króna, sem hann fékk fyrir 36 hug-
myndir, sem hann hafði sett í „hugmyndakassann".
Mods: beztklæddu
Englendingarnir
í LONDON, og ef til vill víðar
í Bretlandi, skiptast unglingar
af verkamannastéttum gjama í
tvo hópa, sem talsvert hefur
heyrzt um í fréttum, the Mods
og the Rockers. Hefur gjarna
komið til átaka milli bessara
hópa. Höfuðmunurinn á þessum
flokkum mun vera sá, að Mods
leggja hvað mest upp úr fínum
fötum, en hinir eru leðurjakka-
strákar.
Mods (orðið er að sjálfsögðu
stytt úr (,modern“ eða nýtízku-
legur) eyða sumir hverjir meira
en helmingi kaups síns í fatnað
og skelfast ekkert meira en að
vera „rytjulegir" í útliti. Þeir
eru sennilega, þegar allt kem-
ur til alls, einhverjir bezt klæddu
menn í Bretlandi.
Þessri piltar eru svo hreinleg-
ir með sig, að vitað er um fjölda
þeirra, er þvo á sér hárið fjórum
sinnum í vrku og skjótast jafn
vel heim í matartímanum til að
skipta um skyrtu, ef svo ber und
ir. Þetta eru flest piltar á aldrin-
um 15 til 20 ára, sem flestir
hverjir eru farnir að vinna fyrir
sæmilegu kaupi. Þeir búa flest-
ir hjá foreldrum sínum ennþá
greiða aðeins lítið heim, en eyða
kannski helmingi kaups síns eða
meiru í fatnað.
wwwwwvvvwwwwwww
& !!
wvvwwvwwwwvvwvvvvvvvww
Á SEINNI árum hefur það
færzt mjög í vöxt, aff
skemmtiferðamenn leggi leið
sína til Júgóslavíu, enda mun
það land vera eitt ódýrasta
ferðamannaland í Evrópu eft
ir að verðlagið var sprengt
upp á Spáni. En það er fleira
upp á Spáni. Einnig draga að
sér falleg klaustur og kirkj-
ur í suðurhluta landsins, að-
allega í Makedóníu og Serb-
íu. I mörgum kirkjunum
eru freskómyndir og myndir
af þeim mönnum, sem stofn-
settu þær. Á mefffylgjandi
mynd sé^ kirkja St. Jovans
viff Ohridvatn.
6 14. marz 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Talsvert er af verzlunum í
London, sem settar hafa verið
sérstaklega á stofn til að upp-
fylla þarfir þessara ungmenna.
Flestar slíkar búðir eru < Carna
by Street, skamrrit frá Picca-
di.lly. Þessi gata mun nú vera
eins konar sjöundi himinn fyrir
Mods, og þó að gatan dragi að
sér líka talsvert af kynvillingum,
þá setja Mods orðið enn meiri
svip á hana.
Maður, sem á sjö búðir við
götuna, bendir á þá staðreynd,
að síðan herskylda var afnumin
sé talsvert rhiklu meira af ung-
mennum nú, sem séu farriir að
vinna og hafi nokkurt fé handa
á milli, og hafi það leitt til mjög
aukinna viðskipta.
Einn ungur Mod sasði hreint
íílt við blaðamarfn New York
Times: „Við viljum ekki líta út
eins og feður okkar. Ég vill vera
fínn“.
Eins og aðrir Mods notar
þessi ungi maður hvorki áfengi
né tóbak og eyðir talsverðu af
tíma sínum í að skoða í búðar-
glugfga. Þ^sar hann og vinir
hans1 sjá ditthvað, sem þeim
finnst lítið til um, kalla þeir
það „plebeiískt" eða lágstéttar-
legt.
Mörgum fullorðnum i Bret-
landi hættir til að afskrifa þessa
ungu menn sem spjátrunga, en
svo mikið er víst, að þeir hafa
þegar haft geysileg áhrif á ensk
an fataiðnað, þannig að a.m.k.
eitt fyi-irtæki, sem leggur höfuð-
álierzlu á framleiðslu fatnaðar
fyrir unglinga, hefur aukið um-
setningu sína um 40% síðan
1960, og það stafar mest af þess-
um ungu verkamannasonum, sem
vilja hefja sig upp úr litleyjinu
og grámuggunni, sem oft hefur
viljað vera einkenni verkamanna
hverfanna í Bretlandi.
— En það tifar, sagði maður-
inn.
— Já, það gera allar klukkur.
— Já, en þegar ég kom með
þetta í viðgerð var það áttaviti.
★
— Eg er eitthvað svo aumur,
að ég held, að ég verði að fara
til taugalæknis, sagði frægi tauga
læknirinn.
— Já, en þú ert sjálfur tauga
læknir.
— Já, en ég er alltof dýr.
★
Fuglafangarinn Ahmed Kuc-
uki í Tyrklandi, sem er 100 ára
gamall, eignaðist nýlega þrett
ánda bam sitt. Móðirin er 35
ára og þriðja kona hans.
★
Einn af fimmburunum, sem
fæddust i Mozambique ( nóvem
ber s. 1., er dáinn úr hitasótt.
Hinum fjórum líður ágætiega.
★
Douglas LC-9, „ódýra“ þotan,
sem gengur fyrir steinolíu fór
fyrir skemmstu jómfrúarflug
s.itt frá Long Beach í Kaliforníu.
Véiin notaði aðeins 3.500 fet af
flugbrautinni í flugtaki og 5.
000 fet í lendingu.
★
Dómari einn í Ástralíu vakn-
aði upp við vondan draum um
daginn. Honum var á það bent,
að hann hefði enn ekki kveðið
upp dóm í máli, sem flutt var
1960. Aumingja dómarinn varð
að biðjast afsökunar. Ilann hafðr
steingleymt að kvæða upp dóm-
inn, þó að hann hefði fvrir lif-
andi iöngu verið búinn að semjg
hánn.
— ★ —
KÝR ein í Tervo í Kupio í
Finnlandi eignaðist um daginn
fjora kálfa. Bömin á bænum
skírðu þá þegar í stað „The
Beatles" — þó að aðeins tveir
þeirra væm nautkálfar. Það: er
mjög sjaldgæft, að kýr eignist
fjórbura.