Alþýðublaðið - 14.03.1965, Qupperneq 9
Að þjóðþingi Júlí-konungdæm-
isins dró Daumier dár; hann mótar
höggmyndir af þingmönnum og
teiknar eftir þeim; í þessum mynd-
um skopast hann óspart að drýldni
og býrahætti borgarans; sviftir
hræsnisskelinni af lögfræðingun-
um, sýnir almenningi inn í blend-
ið hugarfar þeirra; samt má segja,
að sumar myndirnar séu ekki
skopmyndir, t. d. myndin af Gui-
zot; ef til vill hefur hann haft sam-
úð með þessum lærða landa sín-
um og ekki séð ástæðu til að'hafa
í flimtingum kalvínskan strangleik
hans og nákvæmni; en mynd Dau-
miers ber miklu mildari svip en
til dæmis málverk Pauls Dela-
roche af Guizot.
En frönsk alþýða fékk ekki lengi
að njóta mynda Daumiers af
stjórnmálagörpum þessa tímabils.
Daumier var ófeiminn við að
draga upp spédrætti af Lúðvíki
Filippusi og sparaði ekki að hæð-
ast að smáborgaraskap þessa
manns, sem sat á konungstóli
Frakklands og hafði öll ráð í
fx-ammi til að draga að sér og sín-
um fé. Það fór enda svo, að Dau-
mier fékk fangelsisdóm af þessum
sökum.
-
ilii®
■MHi
f
I
■: II'|
Hann sneri sér þá að hinum
hversdagslega franska smáborg-
ara, sem nuddaði sinn pung fram
í andlátið; dró upp skrípamyndir
af lífi fjármálaspekulantanna og
okraranna; teiknaði þá gjarnan á
fundum í kauphöllinni. Daumier
varð allt að skopi; hann tók allar
stéttir fyrir; ekki var hann hrædd-
André-Mai-ie-Jean-Jacques Dupin, venjulega kallaður Dupin-Aine.
(1783 — 1865). Lög-fræðingur að mennt, framúrskarandi lögmaður og
málafy’gíumaður mikill. Hann var náinn samstarfsmaður Lúðvíks
Filiuppusar og ráðgjafi. 1832 varð hann meðlimur frönsku akademí-
unnar.
ur við að draga upp kýmilegar
myndir úr bóhemlífi aldarinnar
og hann dró jafnvel dár að öreig-
unum, enda þótt hann væri ákafur
fylgismaður þeirra í réttindabar-
áttunni.
Enda þótt verk Daumier hafi
verið skoðaðar um hríð sem hverj-
ar aðrar dægurflugur, hafa þau
meira gildi; þótt háðið sé beiskt,
þá býr djúp alvara undir niðri.
Hann vill líka hætta skopmynda-
teikningunni. 1862 segir hann
starfi sínu hjá Chavari lausu og
tekur til við að mála af fullum
krafti. En málverk hans féllu ekki
í kramið, hvorki hjá almenningi
eða gagnrýnendum; hann neyddist
til að snúa sér aftur að skopmynda
teikningunni vegna fjárskorts.
Það var ekki fyrr en að honum
látnum, að menn fóru að meta
verk hans að verðleikum, og þá
einkum málverk hans og högg-
myndir; hann mun alla tíð vera
talinn með mestu listamönnum í
kai'ikatúrteikningu, mótun högg-
mynda, sem sýna ljóst inn í hug-
skot majma og þtess tíma,
sem þeir lifðu á; og þótt margir
skopmyndateiknarar hafi ef til vill
náð tækni hans og eigi innsæi að
sama mæli og hann, mun hann
samt fara öðrum teiknurum.fyrir,
S. T.
Laurent Cunin, kallaður Cunin-Gridaine. (1778 — 1859). Framleið'-
andi og embætíismaður Tók virkan þátt I Júlí-byltingunni Hann
var ráðherra Lúðvíks Filippusar frá 1837 til 1848.
111
g
<ílll
Vortízkan /965
Fyrsta sending af hollenzkum
VORKÁPUM
og
DRÖGTUM
kemur í verzlunina á morgun.
Glæsilegt úrval.
B E R NHARD LAXDAL
Kjörgarði.
Æviniýra/höllin
er eins árs. — Komiff og sjáiff hvað hægt er aff fram-
leiffa i myrkri vetrarins. — Ótrúlegt og óvenjulega mik-
iff úrval af blómstrandi og' grænum plöntum.
Gróðurhús Poul V. Michelsen
Hveragerffi.
Á&PRESTAKALL
Stofnfundur Bræðrafélags Ásprestakalls
verðar haldinn í Safnaðarheimilinu, Sól-
heimum 13. þriðjudaginn 16. marz n.k. og
hefst kl. 8,30 síðdegis.
Undirbúningsnefnd.
TILBOÐ ÓSKAST
í nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensás-
vegi 9 mánudaginn. 15. marz kl. 1—3. Tilboðin verða opn-
uð í sk.rifstofu vorrr kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnaríiffseigna.
Röndótt gluggatja-ldaefni úr bómull.
Tvær tegundir: Stokkholm og 6050.
3 litir af hvorri tegund.
Breidd: 130 cm.
Verð kr. 49,00 pr. meter.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. marz 1965 9