Alþýðublaðið - 14.03.1965, Síða 13
TUNGLFERÐ
Washington, 13. marz (NTB-Re-
uter).
Bandaríkjanienn munu skjóta
fyrsta Gemini-g-eimhylldnu, sem
síðar á að flytija tvo menn til
tunglsins, 20 marz nk. aS þvi er
bandaríska greimvísfindastíjfciunin
tirkynnir, geimfararnir, en annar
þeirra verður Virgil Grissom, fara
þrjá hringi umhverfis jörðu og
lenda á Karibahafi.
Stofnunin tilkynnti í nótt að
nýrri tunglflaug, Ranger LX yrði
skotið frá Kennedyhöfða 21. marz
Síðasta Rangerflaugin tók 7.000
vtelheppnaðar myndir af tunglinu
í 10 mín í síðasta mánuði. Mynd-
irnar koma að notum við skipu-
langningu tunglferðar mannaðs
geimskips.
Johnson ræðir
við Wallace
MONTGOMERY, Alabama, 13.
marz (NTB-Reuter). — Ríkisstjór-
inn í Alabama, George Wallace,
hefur farið þess á Ieit við John-
son forseta að þeir haldi fund með
sér til að ræða kynþáttaólguna í
ríkinu. Seinna var sagt, að John-
son forseti hefði fallizt á að hitta
Wallace í Hvíta húsinu.
Gerðar voru tilraunir til nýrra
mótmælaaðgerða fyrir utan Hvíta |
húsið í gær vegna atburðanna í
Selma, en lögreglan dreifði mann !s
fjöldanum, sem krafðist þess að
sambandsstjórnin skærist í leik-
inn í Alabama. Tilraunir til mót
mælaaðgerða voru einnig gerðar
í Selma í gær, en ekki kom til al-
varlegra átaka. Hrottaskapur lög
reglunnar í mótmælaaðgerðunum
sl. sunnudag sætti mikilli gagn-
rýni vitna í yfirheyrslum fyrir al-
ríkisdómstólnum í Selma í gær.
ALLTAF FJÖLGAR V0LKSWAGEN
Volkswagen er ekkert tízkufyrirbæri. —
Hann hefur verið eftirsóttasti fjölskyldu-
bíilinn hér á landi sl. 10 ár, vegna útlits,
gæða og frábærrar reynslu. —
Myndin er tekin á Rya-hnytingar námskeiði Kvenfélags Alþýðuflokksins.
Þessum árangri hefur Volkswagen náð
vegna þess að aldrei hefur verið hvikað frá
takmarkinu um hinn fullkomna bíl. Ekki
breytingar, heldur enduTbætur. Volks
wagen er einnig ódýrasti f jölskyldubíllinn
í smum stærðar- og gæðaflokki. Hann er
örugg fjárfesting. Volkswagen er í hærra
endursöluverði en nokkur önnur bílateg-
und. Varahlutir í Volkswagen eru alltaf
fyrirliggjandi.
Volkswagen er 5 manna bfll.
Volkswagen er fjölskyldubíll.
Volkswagen eru allir vegir færir.
FERÐIST í VOLKSWAGEN
Sími
212*0
Iheildverzluni n
HEKLA hf
Laugavegi
170-172
Námskeið í
KVENEELAG Alþýðuflokksins
hefur undanfarið haft námskeið
fyrir félagskonur og fleiri í gerð
Rýa-teppa, motta og púða. Þrjár
félagskonur, þær Bergþóra Guð-
mundsdóttir, Ingveldur Jónsdótt
ir og Kristbjörg Eggertsdóttir
hafa kennt Rýa-hnútinn. Mikil
aðsókn hefur verið að þessu
námskeiði og hafa færri konur
komizt að en óskað hafa.
Hin svokallaða Rýa-handa-
vinna er að verða vinsæl hér á
landi, og má segja, að það megi
furðu gegna hve seint íslenzkar
konur tileinki sér þennan ágæta
og fagra heimilisiðnað, en mun-
ir gerðir með Rýa-hnút eru fagr-
ir og ekki mikill kostnaður þegar
þeir eru unnir á heimilunum
sjálfum.
Talið er að Rýa-hnýting sé
ævaforn heimilisiðnaður. Hefur
sannazt með forminjauppgreftri
að rýa-hnýting var iðkuð fyrir
fimm þúsund árum. Súmerar í
hinni fornu Mesópótamíu, gerðu
muni með þessum hætti. — Ekki
er vitað með vissu hvenær þessi
heimilisiðnaður kom til Norður-
landa, en þó er kunnugt, að vík-
ingar klæddu sig í varnarflíkur
úr ull, sem spunnin var, og band-
ið síðan hnýtt á þennan hátt.
Rýa-hnýting getur orðið mjög
fjölbreytilegur og listrænn heim
ilisiðnaður. Sjálf hnýtingin er
auðlærð og fljótunnin. En til
þess að um fagran listmun verði
að ræða, þarf listrænt auga fyrir
munstri og litavali. Skemmtileg-
ast er að hver kona skapi sér
sitt eigið munstur og velji síðan
litina. En vitanlega getur hún
stuðzt að öðru leyti við teikning-
ar og munstur og valið síðan
litina. ij-
Séð um efniskaup og stjórnað
námskeiðinu.
LEIKHÚS
Framhald. af 16. síSu.
an lagt leið sína til Eyja aðallega
af þessum ástæðum Með byggingu
sérstaks leikhúss mundi rætast
verulega úr þessu vandamáli.
„Við finnum hvað sárast til
húsnæðisvandræðanna í Eyjum,
þegar við komum á staði eins og
Hornafjörð", sagði frú Unnur Guð-
jónsdóttir í stuttu samtali við blað-
ið, þegar hún kom til Reykjavíkur
í gærmorgun. í Hornafirði stend*
ur nýtízkulegt, glæsilegt félags-
heimili með fullkomnu leiksviði
og öllu, sem til þarf. Við hugsum
þess vegna gott til þess að geta
reist yfir leikstarfsemina í Eyj-
um og þykir reyndar tími til kom-
inh.
Leikfélagið sýndi í gærkvöldi í
Tjarnarbæ í Reykjavík sjónleikinn
„Fórnarlambið", og sýnir aftur I
kvöld á sama stað kl. 8.30.
LAXVEIÐ AR..
Framh. af bls. 1.
upp á það, að sífellt fjölgar þeim
dögum sem árnar eru óleigðar, því
að þeir sem þær eru ætlaðar hafa
ekki lengur áhuga á þeim.
Fyrir nokkrum árum tók mjög
að bera á að menn tóku laxár á
leigu allt veiðitímabilið og seldu
síðan veiðileyfi fyrir dag í senn.
Þá hefur þetta sjálfsagt verið
gróðavegur, en síðustu tvö árin
hefur þessi starfsemi lagst að
mestu niður því útkoman hefur
ekki reynst hagkvæm, þar sem
færri og færri sáu sér fært að
kaupa veiðidag.
Árið 1963 fór fyrst að verða
vart við þessa veiðitregðu að marki
og jókst hún mikið í fyrra og eins
og fyrr segir er eftirspurnin í ár
minni en nokkru sinni áður. Sýnist
því tími til kominn að eigendur
laxveiðláa fari að gera upp við
sig hvort að ósköp venjulegir ís-
lendingar séu ekki jafngóðir við-
skiptamenn og auðugir útlending-
ar, eða að búa svo um hnútana
að þessir eftirsóttu auðmenn sæk-
ist eins mikið eftir íslenzka laxin-
um og sózt er eftir þeim.
Áðalfundur kven-
félags Alþýðu-
flokks Hafnarfj.
Kvenfélag Aí'þýðuftokksins
í Hafnarfirði heldur aðal-
fund mánudaginn 15. marz
s.d. í Alþýðuhúsinu. Fundar-
éfni: Venjuleg aðalfundar
störf.
Bingó og kaffidrykkja.
Stjórnin.
Bridgekvöld
★ ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur Bridgekv- t a
mánudagskvöld kl. 8,30 í Lindarbæ. — Félagsmenn eru hvattir til
að mæta vel og stundvíslega.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. marz 1965 13