Alþýðublaðið - 17.03.1965, Síða 4

Alþýðublaðið - 17.03.1965, Síða 4
Hvar kaupiö þér fallegri sófasett Etna, Mílan og Gairo eru nöfn á vönduðum, stíihreinum og þægilegum sófasettum Fást w I syn beri til að AlþingL og ríkis- stjórn marki ákveðna stefnu í iðn- aðarmálum, þannig að áframhald- andi uppbygging iðnaðarins verði ekki tilviljanakennd. Slík fastmót- uð stefna er öllum nauðsynleg sem taka verða ákvarðanir fram í tím- ann. Hún er nauðsynleg þeim sem í atvinnurekstrinum standa og hún er engu að síður nauðsynleg lána- stofnunum, svo að þær geti mark- áð útlánastefnu sína samkvæmt henni. Hér á landi er það mjög algengt að fyrirtæki, hvort heldur er í sjávarútvegi, landbúnaði iðnaði eða verzlun, séu mörg og smá Það hefur sína kosti að fyrirtæki séu lítil • og skapi sem flestum mögu- leika til að vera sjálfstæðir, en það hefur líka sína miklu ókosti nú á öld tækninnar.- Lítil fyrirtæki hafa ekki bolmagn til að hagnýta sér nýjustu tækni, og eiga því oft erf- itt með að standast samkeppni. Þrátt fyrir síaukinn fólksfjölda í heiminum eykst framleiðslumagn- ið enn þá hraðar, þannig að sam- keppnin heldur áfram að aukast. Við íslendingar sem erum fámenn en vel.. menntuð þjóð, hljótum í framtíðinni að leggja ekki fyrst og fremst áherzlu á magn framleiðsl- unnar, heldur á það að íslenzk framleiðsla verði framar öllu þekkt fyrir gæði. Ræðu sinni lauk Gunnar me8 þessum orðum: „Við sem iðnaðar vörur framleiðum í þessu landi, gerum ekki kröfur til neinna sér« réttinda. Við gerum einungis þá sjálfsögðu kröf að njóta sömu réttinda og viðurkenningar sent aðrir atvinnuvegir þjóðarinnar." Aðalfundi FÍI verður haldiB áfram á fimmtudag og lýkur hon- um á laugardag. Innan félagsins eru nú 178 fyrlr tæki, 11 gengu inn á árinu en fimm voru numin brott af félaga- skrá. Á fundinum var lýst stjórnar kjöri. Formaður félagsins var endur kjörinn Gunnar J. Friðriksson. Með honum í stjórn eru nú: Árnl Kristjánsson, Á^björn Björnsson Sveinn Guðmundsson og Ásbjörn Sigurjónsson. í varastjórn erus Haukur Eggertsson og Bjarnl Björnsson. Kjörnir voru í gær hinar ýmsu starfsnefndir fundarins. Mun álit þeirra liggja fyrir, er fundurinn heldur áfram störfum á fimmtu dag. IÐNAÐUR Framhald af síðu 16. lega. Hvað við kæmi minnkandi tollvernd ,sem mikið væri kvartað yfir, sagði Jóhann, að iðnaðurinn yrði að fá sinn tíma til að aðlagast breyttum aðstæðum. Yrði það að- eins gert með meiri tækni, fjár- 1 magni og framleiðslugetu. íslenzk- j ur iðnaður hefur sýnt það á mörg- um sviðum að hann er yel sam- ] keppnisfær við erlendan og væri skammsýni af íslendingum að gera sér þetta ekki ljóst og nefndi ráð- herrann sérstaklega útgerðarmenn. í þessu sambandi vegna kaupa þeirra á veiðarfærum. Reykjavík, 16;, marz EG. EFRI DEILD: ! ! Gunnar Thoroddsen fjármála ; ; ráðherra (S) mælti fyrir frum varpi um 6,6% hækkun eftir- f launa opinberra starfsmanna !; til samræmis við kauphækkan ir. Málinu var vísað til 2. um- ræðu og nefndar. Frumvarp til laga um breyt i ingu á lögum um verkamanna ' bústaði var samþykkt við 3. I, umræðu og verður nú sent > neðri deild. !'■ » ! Jarðræktarlög komu til 2. ; umræðu og mæltl Bjartmar ! Guðmundsson fyrir nefndará- >. liti. TiTlögur Framsóknarmanna ! um hækkun á allrnörgum. lið- ís um frumvarpsins voru felldar. I; NEÐRI DEILD: Frumvarp um lífeyrissjóð hjúkrunarfólks kom til 2. um ræðu og mælti Davíð Ólafsson fyrir nefndaráliti og breyting artillögu á þá, lund, að í stað orðsins hjúkrunarfólks kæmu . orðin hjúkrunarkvenna og hj.úkrunarmanna., Bjarni Benediktsson, forsætis ráðherra . (S). kvaðst eindregið mótmæla, þessari breytingartil lögu því samkvæmt fornri mál venju hér á landi væru konur menn. Varð úr, að málinu var frpstað. Matthías Á. Mathiesen mælti fyrir frumvarpi um heimild til að selja Garðahreppi Qand. Einar Olgeirsson (K) benti á að nefrltiin, sem málið fengi ætti að atliuga, livort ekk; væri rétt að, setja skilyrði um að lireppurinn mætti ekki selja landiðaftur. Málinu var vísað ti!2. umræðu og nefndar. í setningarræðu sinni rakti Gunn ar J. Friðriksson þróun ísl- iðnað- ar á sl. ári og ræddi um vandamál ísl. iðnaðar. Sagði hann að emi lægi elcki fyrir skýrslur um iðn- aðarframleiðsluna ánð 1964, væri ekki hægt að gera endanlega grein fyrir henni en hins vegar mætti gcra sér nokkra hugmynd um iðn- aðarframleiðsluna á grundvelli talna Hagstofunnar um starfs- mannahald í ýmsum greinum. — Benda þær tölur til að starfs- mannahaldið hafi minnkað tölu- vert frá árunum á undan. Sam- drátturinn virðist hafa orðið hvað mestur í vefjariðnaðinum og má fyrst og fremst rekja það.til minnkandi veiðarfæraframleiðslu. Samdráttur í matvælaiðnaðinum hefur orðið mestur í kexfram- leiðslu. Framleiðsla í veiðarfæra- iðnaði hefur dregizt svo saman, að vart verður annað sagt, en að- mjög alvarlega horfi um framtíð hans á íslandi. Að því er veiðar- færa- og fataiðnað snertir, bæt- ist ofan á þessa örðugleika, að nokkuð hefur orðið vart við und- irbið eðg „dumping", svo og vpx- andi innflutning frá Austurlönd- um, þar sem vinnuafl er mjög dýrt. Breyta þarf lögum um undir- boðs- og jöfnunartolla á þann vég, að tollyfirvöldum sé falið aS háfa á því nánar gætur hvort vör- ur eru fluttar til landsins á undir- boðsverði, og að tollayfirvöldin fái heimild til að stöðva tollaaf- greiðslu á slíkum innflutningi meðan rannsókn fer fram. í heild má segja að brýna nauð- Arndís Björnsdóttir sjötug EIN AF ÁSTSÆLUSTU leikkonum þessa lands, Arndís Björns- dóttir, er sjötug í dag. Arndísi er óþarft að kynna. Þær eru ófáar stundirnar sem hún hefur skemmt landsmönnum, bæði á sviði og í úívarpi. Hún kom fyrst fram árið 1919, í leikritinu „Mállausa konan“ eftir Anatole France. Síðan rak hvert hlut- verkið annað, fyrst í Iðnó og síðan í Þjóðleikhúsinu, þegar það var stofnað, en Arndís hefur' verið þar fastráðinn leikari frá upphafi. í blaðaviðtali fyrir nokkrum árum Iét Arndís þess getið í gamni, að hún hefði hætt að telja hlutverkin sín, þegar hún var komin upp í 120. Af liinum mörgu og fjölbreytilegu hlut verkum, sem Arndís hefur leikið, er óhætt að fullyrða, að. mestar vinsældir hafi hún hlotið í hlutverki kerlingarinnar í „Gullna hliðinu“ eftir Davíð Stefánsson. Síðasta hlutverkið, sem Arndís lék hjá Þjóðleikhúsinu var hlutverk Ásu í Pétri Gaut. — Alþýðublaðið óskar Arndísi Björnsdóttur til hamingju með afmæiið og þakkar henni fyrir hönd lesenda sinna margar ógleymanlegar stundir. 4 17. iwz 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.