Alþýðublaðið - 23.03.1965, Síða 7
Ur Hampiðjunni
;ð 1962, sem að vísu reyndust
óframkvæmanlegar, urðu til þess
að ambassador Dana í Reykjavík
var látinn persónulega og bréf-
Iega mótmæla varnarráðstöfun-
um fyrir íslenzkan veiðarfæra-
iðnað. En árið 1961 hafði 83% af
öllum innflutningi til íslands af
umræddum vörum, komið frá
Danmörku.
Á tímum bátagjaldeyris 1952-
1960, varð aðalhnignunartímabil
íslenzkra veiðarfæraiðnaðarins,
en á þeim árum stuðluðu islenzk
stjórnarvöld óbeinlínis að upp-
byggingu veiðarfæraiðnaðar í
Danmörku fyrir íslenzka útgerð.
Árið 1960 voru t. d. 95% af öllum
fiskilínum, sem notaðar voru á
íslandi, innfluttar frá Danmörku
og hafði verið svipað hlutfall um
nokkurra ára skeið. En það ár
var innflutningurinn á sömu
vöru frá Noregi aðeins 2Ví>% af
notkuninni. Samt tóku Norð-
menn þátt í undirboði til íslands
og seldu langt undir verði á sömu
vöru á heimsmarkaði.
Ekki er vitað, að Danir hafi
reynt að hafa afskipti af starfs-
skilyrðum veiðarfæraiðnaðarins
í Noregi eða óskað betri sam-
keppnisaðs'öðu, eða hvort sam-
vinna er um að keppa ekki við
heimamarkað hvors annars. Hins
vegar er Ijóst, að samstarf þess
ara aðila gagnvart íslandi er með
ólíkindum.
Hinn 1. okt. sl. endurtóku þess
ar bræðraþjóðir leikinn frá 1960
og lækkuðu verð á fiskilínum og
köðlum til íslands, án tillits til
eigin framleiðslukostnaðar eða
birgða. Það er ef til vill tilviljun,
að þetta gerist á sama tíma og
vegið er að íslenzkum veiðar
færaiðnaði úr annarri átt, en það
minnir óneitanlega á liðinn tíma,
en þá heppnaðist að gera fram-
farirnar hér minni en áætlað var.
Nú eru fyrir hendi ákvæði í 28.
gr. tollskrárlaganna, sem íslenzk
stjórnarvöld geta notað, ef þau
vilja verja innlendan iðnað fyrir
undirboðum, sem sönnuð eru af
starfsmönnum utanríkisþjónust-
unnar og á annan hátt.
Allt þetta mál er mjög athyglis
vert fyrir áhugamenn um vax-
andi innlendan iðnað, sem hlýt-
ur að taka upp framleiðslu á
rekstrar og neyzluvörum, er hafa
svo til eingöngu verið fluttar inn
fyrir milligöngu voldugra aðila
hér og erlendis. Það eru ekki
Japanir eða Portúgalar, sem geta
ráðið því, hvort Norðmenn hafa
veiðarfæraiðnað eða ekki. Norska
Stórþingið hefur taliö þann iðn-
að sjálfsagðan fyir fiskveiðiþjóð
og gert ráðstafanir samkvæmt
því.
Hvað myndu íslenzk stjómar-
völd gera, ef t. d. Portúgalar byð-
ust til að selja hingað sement
fyrir hálfvirði í eitt til tvö ár,
meðan verið væri að leggja
starfsemi sementsverksmiðjunn-
ar niður og tækniþjálfað starfs-
fólk hennar dreifðist í annan at-
vinnurekstur? Það er hliðstætt
þessu, sem verið er að gera við
síðustu veiðarfæraverksmiðjuna
og tilræðið mun heppnast, nema
stjórnarvöld taki upp jákvæða
stefnu gagnvart þeim iðnaði,
sem hefur verið mismunað næst-
um í hvert einasta skipti, sem
efnahagsráðstafanir hafa verið
gerðar til bjargar öðrum atvinnu
rekstri.
Nú mætti spyrja, hvaða gagn
væri að veiðarfæraiðnaði hlið-
stæðum þeim, sem Norðmenn
hafa komið upp hjá sér? Svar
við þessu er ekki hægt að rök-
styðja í stuttu máli, en lauslega
skýringu gefur eftirfarandi:
Innflutningur samkv. hagskýrslum 1964.
Tollskr. nr. Tonn
59—50—01 Fiskinet úr gerviþr áðum 769,1
59—05—02 Fiskinet úr öðrum efnum 7,2
59—04—01 Færi og línur » 282,8
59—04—02 Kaðlar 632,8
59—04—03 Öngultaumar 17,5
C.i.f.verð kr.
145.746 þús.
1.332 þús.
11.649 þús.
30.044 þús,
3.581 þús.
Ef þessu til viðbótar er mið
að við að öll veiðarfæri verði
flutt inn, eins og þróunin virðist
nú benda til,mun ársinnflutning
urinn nema um 230.millj.kr. Ekki
er hægt að greina af innflutnings
skyrslum, hvað af innfluttum
Alls 1.709,4 192.352 þús. ■
netum úr gervlefnum eru úr ny-
lon, terrylent, polyethylene eða
polp prophylene, en hráefnisverð
á þessum vörum er misjafnt.
Hins vegar er meðalinnflutnings
verð á þeirri. vöru um kr, 189.50
Framh. á bls. 9'
Auglýsinga- og skilfagerðin
er flutt á Grundarstig 11. Sími 23442. Skrif-
stofan. Sími 36744.
Matthias Ólafsson heima, simi 22783.
Auglýsinga- og skiltagerðin
Grundarstíg 11.
GJALDKERI ■ BÓKHALD
Opinber stofnun óskar að ráða karlmann til gjaldkera-
og bókhaldsstarfa. — Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun, fyrri störf og meðmæli, sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir 30. marz n.k., merkt ÁBYGGILEGUR.
Kúselgnin, Veslurbraut 9 í Hafnarfirði
fil sölu
Húsið er 2ja hæða steinhús, á hornlóð á góðum stað í
Vesturbænum. Á efri hæð eru 5 herbergi, eldhús og bað,
á neðri hæð er verzlunarhúsnæði, og hefur þar verið
rekin verzlun um árabil. — Ræktuð afgirt lóð. — Til
mála 'finur að selja hvora hæðina fyrir sig.
Nánari upplýsingar gefa undirritaðir:
EIRÍKUR PÁLSSON, lögfræðingur,
Suðurgötu 51, Hafnarfirði. — Sími 50036.
ÁRNI GUNNLAUGSSON, hrl.,
Austurgötu 10, Hafnarfirði. — Simi 50764,
kl. 10—12 og 4—6.
Þerstorp
— decorctive lamincte
Sænska harðplastið er viðurkenm! gæðc
vara, en samt ódýrt.
Yfir 60 litir og mynstur
að veíja úr.
^rUiJio^eiíí
HAinm
(600D HÖDSEKEEPING MTUTI^
GVAMtAJtlTJL'MBS
RffURD 01 MORIT OR RiPlAClMIHT
. if «01 |» aHMJRMIII WIIH Ilti .
SUKDíRW^ '
SMIÐJUBUÐIN
við Háteigsveg.
Sími 21222.
,1
5
Auglýsingasími
ALÞÝÐUBLAÐSINS
er 14906
ALÞýÐUBLADIÐ - 23. marz 1965,,