Alþýðublaðið - 01.05.1965, Síða 5

Alþýðublaðið - 01.05.1965, Síða 5
 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiimimiiiiMiiiiiiii s 1111111111(11111!^ Stefnan er skýrt, en varlega mörkuð Jón Si&urðsson — ÞAÐ sem mest.verð ur rætt og hugsað um í ná inni framtíð í verkalýðs- hreyfingunni eru kaup- gjaldsmálin og þeir samn ingar sem fram undan eru við atvinnurekendur, sagði Jón Sigurðsson, for maður Sjómannasam- bandsins, er Alþýðublað- ið innti hann frétta úr verkalýðsbaráttunni í sambandi við-1. maí. Jón benti á að þessir samn ingar væru að kalla á næstu grösum, flest veríkalýðsfélög hefðu samninga lau'sa í byrjun júní, — einkum verkamenn og verkakonur, önnur hefði samn inga bundna nokkuð lengur. — Það er þá ekki nema um mánuður, þar til að þessu er komið. Hvað líður undirbún- ingi? Eru viðræður hafnar? — Viðræður við atvinnurek- endur eru ekki hafnar, en farið er lítiliega að ræða við ríkis- stjórnina- Það hefur ekki verið dregin nein dul á það af hálfu verkalýðshreyfingarinnar að þess er vænzt að fresturinn verði notaður vel. Það verði byrjað snemma á raunveruleg um samningaviðræðum, svo að ekki þurfi að koma til stöðvun ar því að stöðvun er alltaf dýr ust. Um það er engum blöðum að fletta. r — Hver er meginstefnan hjá verkalýðshreyfingunni? — Hún er alveg skýr, og má segja að hún sé varlega mörk uð. Eins og . frá hefur verið skýrt í Alþýðublaðinu, þá var haldin ráðstefna í marzlok að tilhlutan Alþýðusambands- stjórnar til þess að ræða kaup- gjaldsmálin almennt og þó fyrst og fremst væntanlega samninga í vor. Ráðstefnan stóð yfir 1 tvo daga og mættir voru fulltrúar frá helztu félög um víðs vegar að af landinu. Um það var alger samstaða að full þörf væri á kjarabótum vegna aukinnar dýrtíðar, að auka þyrfti rauntekjur á tíma- einingu. Ályktunin sem gerð var á ráðstefnunni um kaup- gjaldsmál var mjög hógvær. Enda þótt ekki væri nokkur á greiningur um að kjarabætur væru bráðnauðsynlegar, þá er ekkert því til fyrirstöðu að því er séð verður að vei’kafólk muni fallast á að þær verði að ein- hvérju í formi lækkaðra skatta eða annars sem hækkar tekjur, þó ekki sé um að ræða beina kauphækkun- Öllum er hvort eð er ljóst að mikil bein kaup liækkun veldur dýrtíð hækkandi vöruverð mundi fylgja í kjölfar ið. — Þessi mál eru í höndum sameiginlegrar nefndar sem verkalýðsfélögin hafa kosið sér, er það ekki? — Jú, það er auðvitað æski legt að verkalýðsfélögin geti staðið saman að þessari samn ingsgerð. Ráðstefnan káus nefnd til að hafa á hendi for ustu í samningaumleitununum, og er vonandi að innan hennar verði gott samstarf. Æskilegast Rætt við Jón Sigurðsson, for- mann Sjómanna sambandsins af öllu er að samkomulag tak ist um það sem nefndin getur fallizt á, og um það yrði sam ið- Hins vegar er samningsrétt urinn í höndum hvei's félags fyr ir sig. Hvert félag verður að taka lokaákvörðunina. Samn- inganefndin hefur ekkert umboð til að gera heildarsamninga, þó að raunverulega þyrfti svo að vera. Þannig verður það vafa laust í framtíðinni, eð a að minnsta kosti um að ræða stærri samningsheildir heldur en nú er. Að því er nú i raun inni stefnt með fleiri og sterk ari sérgreinasamböndum. Þau eru nú sem óðast að festast í sessi og auka sína starfsemi- — Hvað viltu helzt segja um skipulagsmál verkalýðshreyfing arinnar? — Málin hafa nú tekið dálítið aðra stefnu en ég og fleiri ósk uðum. Við hefðum. viljað koma á róttækri skipulagsbreytingu þannig að félögum yrði ekki hóp að saman eftir atvinnugi-einum, heldur yrði Alþýðusambandið allt skipulagt á nýjan leik eftir vinnustöðum, þeir saman sem saman vinna. En eins og nú er þá er\i menn á sama vinnustað oft í mörgum féjögum. — Um þetta voru .ekki skiptar skoð anir eftir stjórnmátalegum sjón armiðum. Hér kom annað til. Framhaid á 8. síðu. Trésmiðaíélag Reykjavíkur hvetur meðlimi sína til að | taka þátt í hátíðahöldurn | dagsins. | Gleðilega hátíð. ' STJÓRNIN. C £ iiiMitMHiiiiiiumimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHMiiiiiiiiiMiiiiiiiMiiiiiiiiiiHMiiMiiiiimiiimmmiiiiiMiiiiMtiiiHiiiiiii E C | Sendum öllu vinnandi fólki | til sjávar og sveita » | beztu árnaðaróskir í tilefni dagsins f Kaupfélag Þingeyinga | Húsavík. <IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIMMIII|llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIMIIIIIIIIIIIIIinillll “ | /ð/o, félag | verksmiðjufólks flytur öllum félagsmönnum sínum bcztu árnaðaróskir í tilefni 1. maí. Stjórn Iðju. *'k iiiiiiiiiiiimiiiiiniiiiiiiiiimiiiiiiiiinimiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiimiiiiiiimimimniMiiiiiiMiiiiiii 11111111111111111 ALÞÝOUBLAÐÍÐ - 1. maí 1965 5 u.v'.úA CdiM ídhll X MMiMmmrtmiiimMmiiimitiiiiiiiiiimiimiiinmiUl

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.