Alþýðublaðið - 21.05.1965, Síða 5
't
ÚRVALS
SULTA
FALLEGAR UMBÚÐIR!
BEINT Á BORÐIÐ
8 TEGUNDIR:
HINDBERJA SUI.TA
JARÐARBERJA SULTA
APPELSÍNU SULTA
APRÍKÓSU SULTA
SULTUÐ JARÐARBER
SULTUÐ SÓLBER
SULTUÐ TÍTUBER
SULTUÐ KIRSUBER
DRONNINGHOLM
Listamenn . ..
: Frh. af 2. síðu.
Þessir ungu listamenn eru
Andrei Khramstov baryton-
söngvari, hann syngur m. a.
rússnesk þjóðlög, nútímalög
og óperuaríur.
Listdansararnir eru Ludmila
Philina og Valeri Dolgallo, þau
eru bæði frá Mali leikhúsinu
í Leningrad. Þau dansa klass-
ískan ballett og einnig rúss-
neska dansa. Þess má geta að
Ludmila á í dag 22 ára afmælis
dag. Stanislav Linkevitsj leik
ur klassisk tónverk á harm-
óniku. Grigorij Pankov sýnir
töfrabrögð. Tatjana Malent-
jeva, lýriskur sópran. Valent-
in Bjeltsjenko, píanóleikari
hefur tvívegis sigrað í alþjóða
keppni píanóleikara, og Ana-
tolij Tikhonov, balalaikaleik-
ari.
Eins og fyrr segir, munu
listamennirnir fara út um land
og skemmta þar. í kvöld halda
þeir skemmtun á Selfossi. —
Síðar koma þeir fram á Akra-
nesi, Neskaupstað og í Vest-
mannaeyjum. Enn er ekki ráð
ið hvort þeir komi fram víðar
en vonir standa til að svo geti
orðið.
JARLINN . . .
Framh. af 1. síðu.
mætti ekki fyrir rétti heldur
flýði land. Þá sagði hann:
„Við getum ekkert gert fyrr
en Jarlinn kemur aftur til Bret-
lands. En þegar skipstjórinn stíg
ur fæti sínum hér á land á hann
á hættu- að verða handtekinn. En
skipið siglir oft á hafnir í þessurh
landshluta.”
Alþýðublaðið hafði samband við
framkvæmdastjóra útgerðarfélags
ins og kvað hann ástæðuna fyrir
því að skipið mátti ekki fara úr
höfn í Bridgewater vera gamia
skuld í Hull. En þegar hafi verið
búið að senda greiðsluna, þegar
Jarlinn fór úr höfn, en ekki hafi
verið búið að ganga endanlega frá
pappírum. Ekki hafi verið um að
ræða hafnargjöld í Bridgewater
eða að tollskoðun hafi ekki farið
fram. En þar sem þannig stóð á
flóði, að hefði skipið ekki farið
út á þrið.iudagskvöld hefði það
þurft að bíða í þrjá daga í við-
bót. Hafi því skipstjórinn ákveðið
að fara út á ytri höfnina og b:ða
þar frekari fyrirmæla.
Umboðsmenn skipsins telja að
þetta hafi verið rétt ákvörðun, en
fulltrúar frá brezka verzlunarráðu
neytinu eru á öðru máli. Úr þessu
verður skorið þegar skipið kemur
til Belfast á morgun, laugardag,
þar er brezkt yfirráðasvæði og
mun skiostiórinn mæta þar fyrir
rétti. Þaðan fer Jarlinn til London
á mánudag.
Mál betta hefur vakið athygli i
Englandi og voru ótal fréttamenn
frá blöðum og sjónvarpí á eftir
skininu, enda þykjast brezkir
áreiðanlega komast þarna í feitt,
þar sem brezkur skipstjóri lenti
nvlega í miög áþekku máii hér á
landi og það hefur aldrei komið
fyrir áður að löggæzla brezku
krúnunnar væri á eftir íslenzkum
skipstjóra, en sú íslenzka sífellt
að eltast við brezka landhelgis-
þrjóta.
Vakt og flug-
tími ákveðin
Reykjavík, 20. maí. — EG.
Flugmálastjóri, Agnar Kofoed-
Hansen, hefur kveðið upp úrskurð
um hver vera skuli vinnutími
flugmanna á Rolls Royce 400 flug
vélum Loftleiða, en deila reis um
það atriði, eftir að lög bundu
endi á verkfall flugmanna á flug
vélum af þessari gerð. Sættust
deiluaðilar á að hlíta úrskurði
flugmálastjóra.
Úrskurðurinn er á þá lund, að
vakttími skal vera óbreyttur, —
mest 17 klukkustundir í senn, en
hámarksflugtími á mánuði hverj-
um skal nú vera 95 klukkustundir
í stað 105 áður.
Flugmálastjóri lagði áherzlu á
það við fréttamenn í gær, að
þessi úrskurður væri auðvitað að
eins til bráðabirgða.
Forsœtisráðherra
í Mo í Rana
Mo í Rana, 20. maí. — (ntb).
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, hefur haft annasaman
dag í Mo í Rana. í morgun skoð-
aði hann, ásamt fylgdarliði sínu
járnverksmiðjurnar undir leið-
sögn Dagfins Efjestad, forstjóra.
Fatabúðin.
margar gerðir,
léttar — vandaðar,
Nýkomnar.
GEYSIR
Vetsurgötu 1.
Skipíið þar sem þjónustan er bezt.
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipliolti 35 — Reykjavík — Sími 18955
/ sveifinct
Oaflabuxur '
amcrískar og íslenzkar.
Peysur [
Blússur
margs konar. \
Nærföt
Sokkar
Nosur \
GúmmístlgvéB
Gúmmískór
Regnkápur
með hettu. \
Vinnuskyrtur
VinnuvettEingar
Húfur "l
LeÖurbelti
Vasahnífar
Handtöskur
GEYSIR h.f.
Handsláttuvélar
Hinir heimsþekktu þýzku hjólbarðar.
MJÚKIR - STERKIR
Ávallt til í miklu úrvali.
ÚTSÖLUR VÍÐA UM LAND.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
Vanir menn — fullkomin tæki.
ALÞÝÐUBLADIÐ - 21. maí 1965 gj