Alþýðublaðið - 21.05.1965, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 21.05.1965, Blaðsíða 7
Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnar- umdæmi Keflavíkurflugvallar Samkvnímt umferðarlögum tilkynnist, að aðalskoðun bif- reiðu fer fram, sem hér segir: Mánudaginn 24. mai ... Þriðjudaginn 25. maí Miðvikudaginn 26. maí Föstudaginn 28. maí .. J-1 —100 J-101 - 150 J-151 — 200 J-201 — 300 Skoðun fer fram við lögreglustöðina ofangreinda daga, frá kl. 9—12 og 13-16,30. Við skcðun skal bifreiðaskattur greiddur og sýnd skil- riki fyrir að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og ennfremur skulu fullgild ökuskírteini lögð fram. Vanræki einhver að færa bifreið til skoðunar á áður aug- lýstum tíma, sætir sá ábyrgð skv. mnferðarlögum nr. 26/1958 og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til henn- ar næsi. Geti biireiðareigandi eða umráðamaður bifreiðar ekki fært hana til skoðunar á áður auglýstum tíma, ber hon- um að tilkynna mér það bréflega. Athygli skal vakin á, að umdæmismerki bifreiða skulu vera vel læsileg og er því þeim, er þurfa að endurnýja númeraspjöld bifreiða sinna, ráðlagt að gera það nú þegar. í>eir, er hafa útvarpstæki í bifreiðum, skulu hafa greitt afnotagjöld þeirra, áður en skoðun fer fram. Þetta tilkynnist öllum, er hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, 18. maí 1965. BJÖRN INGVARSSON Auglýsing um dráttarvexti Með lnnni almennu vaxtabreytingu, sem tók gildi við innlánsstofnanir um s.l. áramót, var ákveðin sú regla, að heimilt væri að taka 1% dráttarvexti á mánuði eða fyrir b) ot úr mánuði af öllum lánum nema víxlum. Var þá tekiC fram 1 tilkynningu Seðlabankans, dags. 30. des- ember s.l., að leitað yrði nauðsynlegrar lagaheimildar þannig, að sömu reglu mætti taka upp um vixla. Hinn 10 þ. m. voru afgreidd frá ALþingi lög um bi'eyt- ingar á lögum um víxla og tékka, sem voru staðfest í dag. Fela þau í sér, að Seðlabankanum er falið að ákveða dráttarvexti af þessum skuldaskjölum. í framhaldi þessa, með tilvísun til 13. gr. laga nr. 10/1961, sbr. nefndar breytingar á víxla- og tékkalög- um, hefur bankastjórnin ákveðið, að höfðu samráði við bankaráðið, að dráttarvextir (vanskilavextir) af víxlum og tékkum við innlánsstofnanir skuli vera 1% á mánuði eða fyrir brot úr mánuði, en þóknun, sem nam fjár- hæðar vixils eða tékka, fellur niður. Með mánuði er átt við hvert ,30 daga tímabil. Gildir vaxtabreytingin frá og með í tíag. A það skal bent, að í lánsviðskiptum utan innlánsstofn- ana, er heimilt að áskilja þá vexti, sem Seðlabanki leyfir innlánsstofnunum að taka hæsta. 18. maí 1965, SEÐLABANKI ÍSLANDS Látið okkur stilla og herða upp nýju bifreiðina! BÍLASKOÐUN Skúlagötu 32. Siml 13-10* Látið okkur ryðverja og hljóðeinangra bifreiðina með TECTYL! RYÐVÖRN Grensásveg 18, siml 1-99-4*. SMURT BRAUÐ Snlttur. Oplð frð kl. 9—23.30. Brauðstofan Vesturgótu 2*. Sfmi 16012 Áskriftasíminn er 14900 ODDUR í DAG verður gerð frá Nes- kirkju útför Odds Halldórssonar, Karlagötu 24. Hann andaðist á Landakotsspítala 14: maí s.l. Odd ur var fæddur að Reykjadalskoti í Hrunamannahreppi 12. febrúar 1890, og var því 75 ára, er hann lézt. Á uppvaxtarárum sínum vandist hann á öll algeng störf og aðeins 15 ára gamall heldur hann að heiman til Eyrarbakka ^ sjó- vinnu. Hafa kunnugir tjáð mér að hann hafi á unglingsárum sín um reynzt foreldrum sínum styrk stoð. Árið 1926 flyzt Oddur til Reykjavíkur og hér í borg bjó hann til dauðadags. Hér stundaði hann alla algenga vinnu, jæði til lands og sjávar, og fór m.a. þrett án vertíðir á togara, en s.l. 22 ár var hann starfsmaður Rafmagns veitu Reykjavíkur. Hinn 3. janú- ar 1931 gekk hann að eiga eftir- lifandi konu sína Áslaugu Guð jónsdóttur frá Stokkseyri og varð þeim þriggja sona auðið. Synirn ir eru Halldór Gísli, stýrimaður hjá Skipaútgerð rikisins, Guðjón, verzlunarstjóri í Málaranum, kvæntur Gíslínu Kristjánsdóttur tíg Bjarni, nemandi í gagnfræða skóla. Þetta er í stórum dráttum æviferill Odds hejtins Halldórss. Það er ekki ætlun mín með þess- pm fátæklegu minningarorðum, að skrifa um hann langt mál, enda væri það sízt að skapi hins látna vinar míns. En að leiðarlokum langar mig til að þakka hoiium Minningarorð: HALLDÓRSSON samfylgdina, tryggð hans og vin áttu. Það varð ekki hlutskipti Odds heitins í lífinu að hasla sér víða völl, enda hafði liann ekki löngun til slíks. Þó veit ég, að hann saknaði þess mjög að eiga ekki kost á, nema mjög takmörk uðu námi á unglingsárum sínum. Hafði hann eitt sinn orð á því við mig, að ólík væri aðstaða æskunnar í dag, eða jafnaldra hans. Gladdist hann innilega þeirri breytingu. Þetta reyndi hann að bæta sér að nokkru með ODDUR ÖALLDÓRSSON lestri góðra bóka. í öll dagfarð var hann prúður og stilltur og alúðleg framkoma honum svo eðlileg að til þess vár tekið. Hann> var í eðli sínu dulur maður, og flíkaði líttl ttlfinningum sínunt Hann hafði ríka samúð með öllum þeim, er minna máttu sín. Oddur heitinn var einstakur eljumaður sívinnandi öllum stundum. Störf sin öll vann hann af trúmennski* og kostgæfni. Hann var sannur gæfumaður í þess orðs beztu merk ingu. Stærsta hamingja hans var að eignast tryggan og góðan lífs förunaut, sem virti hann og skildi. Við hlið sinnar ágætu konv^ naut hann sín bezt eftir dagsiná önn. Bjó hún honum indælt heirrie ili, sem var honum sannkallaður griðastaður. Ég minnist fjöl- margra ánægjustunda á heimiH þeirra hjóna. Voru þau samhent í rausn og myndarskap og munij margir geta um það borið. í dag er Oddur heitinn lagður til hinztu hvildar, að enduðu góðu ævistarfi. Vandanrenn og vin ir kveðja hann með söknuði og þakka honum samfylgdina. Eftir stendur í hugum þeirra minning hugljúfs drengskaparmantis. Sam, úðarkveðjur send: ég ekkju hans, sonum, tengdadóttur og sonar- dætrunum tveim, og bið þeimj blessunar. Blessuð sé minning Odds Hall- dórssonar. V Témas Sturlaugsson. ALÞÝÐUBLAÐiÐ - 21. maí 1965 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.