Alþýðublaðið - 13.06.1965, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 13.06.1965, Blaðsíða 9
■■■ ■5 ■S! ■■■i! l■■!l 211 1-1= IB ii— li IKl! mW~\ Sem dæmi má nefna það, að prjónanælonskyrtur á markaði hér voru komnar upp í sex bundruð krónur þegar við byrjuðum að verzla,; en við færðum verðið nið- ur í 175 krónur. Og sólstóla t. d., — sem allir þurfa á að halda núna um vor- og sumartímann — selj- um við hélmingi- ódýrar en aðrar verzlauir. Um það getið þið sjálfii- sannfærzt?“. —fc - Óg ■ vegna þess- arar áskorupaj’ ráðamanna HAG- KÁUPA íór' AJþýðuWaðið á stúf- ána og kynnti sér verð þessarar vörutegundar’ í 'hokkrum verzlun- um. Mikið fét't. Nákvæmiega eins sólstólar og HAGKAUP selja á kr. 595 kostuðu í einni verzluninni kr. 1326 og : annarri 1405. Og sól- bekkir eins og HAGKAUP selja á kr. 695 kostuðu í einni gamal- kunnri og vinsælli verzlun í hjarta bofgarinnar aðeins kr. 1070! „Mikill hlutri viðskiptavina okk- ar er -utanbæjarfólk og lítur hér inn, þégar það á leið um. Annars fara viðskipti bæjarbúa við fyrir- tækið ' ört vaxandi og búðirnar sta póstverzíyn is- iku Danir hér svip- ið? en sú starfsemi ir»- — IVielí tilkemu vöruverð í fyrsta i en ekki hækkandi iði. Kynnið ykkur istæða fyrirtækis í standa aldrei tómar. Raunverulega erum við búnir að sprengja allt húsnæði utan af okkur og getum ekki bætt við okkur fleiri vöru- tegundum, þó að okkur iangi til þess. Viðskiptavinum okkar x-eyn- urn við að veita sem bezta þjón- ustu og hingað mega allir koma án þess að kaupa. í þessum til- gangi höfum við eingöngu hálfs- dagsfólk við afgreiðslustörfin: Hús mæður, sem vinna á tvískiptum vöktum frá kl. 9—1 og 1—6. Þess- ar konur hafa reynzt langtum bet- ur en yngri stúlkur, þær hafa betra vit á þeim vörum, sem á boðstólum eru, og eru undantekn- ingarlaust traustar, liprar og elsku legar". Svo segir verzlunarstjórinn um leið og hann býður okkur að svip- ast um í búðinni. Hann vekur einnig athygli okkar á því, að út- lit þéssarar verzlunar er gjörólíkt þeim, sem fólk á að venjast. Hér er engií^. tilkostnaður lagður í form og ytri búnað. Vörurnar eru lagðar á óheflaðar kassafjalir og í verzlunum HAGKAUPA er vör- unum frjálslega fyrir komið og fólk getur valiS og hafnað ótrnfl- að af afskiþtasömu afgreiðslufólki. eins lítil umbúnaður um þær og framast verður við komið. Hér er sælgæti í haugum með gjafvirði, stórir pokar, — fallegir sloppar á herðatrjám, einnig á ótrúlega lágu verði, — leikföng, — búsáhöld og yfirleitt allt, sem nöfnum tjáir að nefna. HAGKAUP hafa nú um f-mmtíu mánns' í vinnu og allir hafa nóg að gera. Allir virðast líka ráðnir i að gera viðskiptavinunum til geðs. „Við þurfum ekki fleiri búðir, en stærri búðir". segir verzlunarstjórinn, „En þetta er vitaskuld ekki komið fyllilega í gang ennþá. Þetta er allt á upp- byggingarstigi og tvö fyrstu árin var allt snarvitlaust. Við unnum þá til tólf á hverju einasta kvöldi og allar helgar. En þetta varð svo að vera. Það kostar óhemju mikla vinnu og þrotlaust erfiði að byggja upp verzlun sem þessa og afla henni almennra vinsælda. En þetta er á góðri leið með að tak- ast, og það, sem gleður okkur mest er það, hversu ánægðir viðskipta- Fnamhald á 15. síðu Málningarvörur Úti- og innimálning, mjög mikið úrval. Ódýrir penslar frá Tékkóslóvakiu. Ódýr enskur gólfdúkui’. — Límtegundir: Hoogo, empess, 716, c.t.a. 20. Jötungrip, filtpappi. Handverkfæri: járn- og trésagir, hami-ar, spartl, kíttisspaðar. — Mikið úrval af skrúfjárnum frá Sviss, hallamál, dúkahnífar, allur saumur. D. L. W. vegg- og gólfflísar. S E N D U M H E I M . Litaver sf. sími 30-2-80 (á horni Miklubrautar og Grensásvegar). rússklnnskápur ' ' ; _ • ‘ •; ý NÝ SENDING ENSKAR Sumarkápur og dragfir EINNIG HOLLENZKAR f Kápu- og dömubúðln Laugavegi 46. EINANGRUNARKORK t '* b 54 lVa”, 2”. 3“ og 4“ fyrirliggjandí. ! Jónsson & Júiíusson Hamarshúsinu vesturenda. — Sími 15-4-30. Benzínsala Hjólbarðaviðgerðir Opið alla daga frá kl. 8—23,30. Hjóibaröaverkstæöiö Hraunholt ■ Horni Liridargötu og Vitastígs. — Sími 2S900. 17. júní blöðrur og fiögg. í. Heildsölubfrgðir: FESTI, Frakkastíg Sími 10590. Sænskar sorplúgur Kr. 574,00. Verzlunin BRYNJA Laugavegi 29. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. jíiní 1965 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.