Alþýðublaðið - 13.06.1965, Blaðsíða 8
: : ::-x
og mynda þær bak og fyrir. Auk
þess fræddi hann okkur ítarlega
um reksturinn og sýndi okkur
lista og bækiinga yfir þær vör
ur, sem HAGKAUP hafa á boð
stólum.
Mikilvægur liður í starfsemi
HAGKAUPA er útgáfa og útbýt-
ing pöntunarlista, sem að'gerð og
öllum frágangi svipar allm.jög til
hinría „erlendu" príslista, sem all-
ir kannast við, og gengu lengi vel
um bæinn í gamla dága frá
einu heimili til annars. Þeir eru
■skemmtilega úr garði -gerðir. og
-allar fyrirsætur og ,.fyrirsátaru
HAGKAUPA eru .eftir því, sem
'verzlunaisijórinn hermir, af ís-
-lenzku bergi brotin. Sjálfur kveðst
verziunarstjórmn hafa fylgzt með
'gerð þeirra, sem kostað h'afi ærið
fé, og í mörgum tilfelluín ,stillt
fvrirmyndunum upþ“ áður en
smellt var af. Listar þessir koma
út fjórum til fimm. sinmvm á ári,
'—hinn stærsti og skraútlesasti —.
í þann mund, sem haustvertíð
'kaupmanna hefst almennt. Fyrir
ER EKKI kominn tími til, að neyt
endur hugsi sig tvisvar um áður
en þeir festa kaup á vörum í
verzlunum borgarinnar? Er ástæða
til að ýta frekar undir milliliða-
gróðann en orðið er? — Slíkar
spurningar hljóta að vakna í huga
þess, sem reikar um vistarver-
ur verzlunarfyrirtækisins HAG-
KAUPA Reykjavík og kynnist
þar verðlagi og viðskiptaháttum.
Og engum er láandi, þó að hann
spyrji svo.
„Svona verzlanir eru hvarvetna
ei-lendis, en þetta er sú fyrsta hér
á landf. Við hófum starfsemina
á'rið 1961 með svonefndu póst-
vþrzlunarfyrirkomulagi, — eða
„mail order“ eins og Ameríku-
menn nefna það, — og byrjuðum
Verzlanir HAGKAUPA við Mikla-
torg og Lækjargötu 4 í Reykja-
vík. Sú fyrrnefnda er í hinum
gömlu útihúsum Eskihlíðar.
í
' IPPlilIÍ'íílý::--
á því að senda pöntunarlista með
upplýsingum um verð og gerð ým-
issa vörutegunda að ógleymdri
mynd af þei-m á nær 11.000 heim-
ili á landinu. Nú. — þeir. s:m
hugðu á frekari viðskipti, sendu
svo um bæl peninga og pöntun á
þeirri vöru eða þeim vörum, sem
þeim lei-zt á, og fengu þær síðan
heimsendar. Nokkru síðar stofn-
settum við svo búð með „mail
order“ fyrirkomulagi í útihúsum
— nánar tiltekið fjósi og hlöðu —
Geirs bónda í Eskihlíð, og þar er
um við ennþá, en höfum að vísu
bætt annarri við í Lækjargötu 4
og h^fum auk þess flutt póstaf-
greiðslu okkar, verðmerkingu og
lager inn í Bolholt. Við verðmerkj
um allar þær vörur, sem frá okk-
ur fara, og lagerinn, sem við liggj-
um með, er óvenju umfanssmikill,
því að verzlunarfyrirkomulag okk-
ar krefst þess, að við höfum allt
af nægar vörur á boðstólum til að
fullnægja pöntunum.
Þetta póstverzlunarkerfi, sem
hefur gefi-ð mjög góða raun t. d.
í Banjlaríkjunum og á hinum Norð
urlöndunum, er að minnsta kosti
, í
í hinijm fyrrnefndu runnið upp úr
samaijarðvegi og hér: Upphaflega
komiá á fót í fjósum og hlöðum
og öðru slíku húsnæði, sem bæði
er ódýrt og lítt innréttað, en hef-
ur síðan smám saman færzt yfir
í smáverzlanir án glers, tréverks
og annars þess háttar umbúnaðar,
sem kostar mikið fé og okkur virð
ist að mestu þarflaust, og raunar
án tilveruréttar, þegar kostnaður
þess er lagður á neytendur eins
og nú t.'ðkast. Við spörum einnig
við okkur skrifstofu- og afgreiðslu-
fólk og leyfum fólki á þann hátt
að kanna og meta vörurnar sjálf-
stæðar en annars staðar er siður
og í þriðja lagi reynum við að
kaupa vörurnar í sem stærstum
stíl og sem mest frá framleiðend-
um sjálfum og leiðum þannig hjá
okkur hinn tröílaukna milliliða-
kostnað, sem hvílt hefur eins og
mara á flestum neytendum fram
að þessu. Og eftir því, sem var-
an er ódýrari í innkaupum, þeim
mun lægri eru innflutningstoll-
arnir á hverja einingu. Af öllu
þessu leiðir það, að við get.um selt
vörur ódýrar en flestir ef ekki all-
ir aðrir, sem nú fást við verzlun
hér á landi. Vöruverð okkar er t.
d. það hagstætt, að jafnvel for-
stöðumenn verzlana hafa komið
hingað og gert innkaup fyrir búð-
ir sínar. Sjálfir eru þeir of fáir
og smái-r til að gera hagstæð inn-
kaup. Og því er óhætt að slá föstu,
að í sumum tilfellum eru vörur
okkar helmingi ódýrari en ann-
arra verzlana og stundum meira“.
Svo fórus* verzlunarstjóra HAG
KAUPA við Miklatorg orð, er við
heimsóttum verzlun hans núna í
miðri þessari viku. Og hann lét
ekkj sitja við orðin tóm heldur
leyfði okkur að kanna vistar
verur fyrirfækisins hátt og lágt
HAGHAIJP er fyr
fendinga. Að vísu rá
uð vitfekipti um ske
var mun éfuPSkomns
HAGHAUPA hefur
sinn farið lækkandi,
á íslenzkum markc
sfarfsemi þessa eir
opnunni í dag.
listana greiðir fólk áskriftargjald,
sem er þó aðeins til málamynda,
— 25 krónur. Og til gamans má
geta þess, að HAGKAUP hafa efnt
til áskriftasafnana utan Reykja-
víkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar
og veitt verðlaun fyrir að safna
nýjum áskrifendum — 5 í sveit
eða 10 í kaupstað, — góða gripi,
svo sem fallega prjónanælon-
sloþpa. Þetta fyrirkomulag hefur
reynzt ágætlega og fer áskrifend-
um sífjölgancU bæði í sveltum og
bæjum.
Eins og sjá má bæði í verzlun-
um HAGKAUPA og vörulistum
verzlar fyrirtækið með allt mögu-
legt: Fatnað, búsáhöld, húsgögn,
járnvörur, sportáhöld, smávörur
og sælgæti. Almennar matvörur
■hafa þó ekki komizt þar á skrá
enn sem komið er sökum skorts
á aðstöðu til að veita þeim við-
töku og geyma þær svo að full-
nægjandi sé.
„Og við höfum í raun réttri orð-
ið fyrstir til að færa vöruverð
verzlana niður bér á landi, en það
ættj að vera höfuðmarkmið allrar
frjálsrar verzlunar og öllum til
hagsbóta. Áður var venjan sú að
allt hækkaði ár frá ári, en mark-
aðsverðið hefur lækkað og stund-
um stórlega fvrir okkar. tilstilli.
3 13. júní 1965 - ALÞYÐUBLAÐIÐ