Alþýðublaðið - 04.08.1965, Side 9
SKRÍPALEIKUR I
PORTÚGAL
FORSETAKOSNINGAR fóru ný-
lega fram í Portúgal. Kosningarn-
ar hafa ef tii vill haft sínar já-
kvæðu hliðar: Enginn þurfti að
vaka eftir úrslitunum. Allt hafði
verið ákveðið löngu áður en kosn-
ingarnar fóru fram.
Forsetinn var heldur ekki kos-
inn beinni kosningu að þessu
sinni. Fram til ársins 1958 var um
beina „kosningu” að ræða, en at-
burðir, sem gerðust í kosninga-
baráttunni og voru Salazar ein-
ræðisherra óþægilegir, urðu þess
valdandi, að hann breytti kosn-
ingafyrirkomulaginu og hætti
smám samam tilraunum sínum til
að telja þjóðinni og sérstaklega
útlendingum trú um, að lýðræði
ríkti í Portúgal.
Mótframbjóðandanum árið 1958,
Humberto Delgádo hershöfðingja,
tókst að tryggja sér nær fjórðung
atkvæða þrátt fyrir alla þá erfið-
leika, sem yfirvöldin ollu honum.
Fyrir þennan glæp var Delgado
syiptur stöðu sinni, ofsóttur af
yfirvöldunum og að lokum varð
hann að biðja um hæli sem pólit-
ískur flóttamaður í sendiráði
BrasUíu í Lissabon og síðar í Bras-
ilíu.
í apríl sl. fannst lík Delgados
skammt frá landamærum Spánar
og Portúgals. Hörðum andstæðingi
Salazars hafði verið rutt úr vegi.
★ Einn flokkur
Aðeins einn stjórnmálaflokkur,
Þjóðarsambandið, er leyfður í
Portúgal. Blöð og útvarp eru háð
strangri ritskoðun og eru verk-
færi í höndum einræðisstjórnar
ínnar. Pólitísk áróðursspjöld eru
bönnuð, stjórnmálafundir eru ekki
leyfðir og stjórnarandstæðingar,
aðallega stúdentar, prófessorar og
verkamenn, eru dæmdir í þunga
refsingu fyrir „undirróðursstarf
semi”.
Forseti Portúgals hefur sára-
lítU áhrif. Samt ákvað stjórnin
1959, að þjóðin skyldi ekki lengur
kjósa forsetann heldur takmark-
aður hópur kjörmanna. Kjörmenn
þessir eru meðlimir þjóðþingsins,
fulltrúar samvinnufélaga og full-
trúár bæiar- og sveitarstiórna.
Einræðisstjórnin ákveður fyrir-
fram hverjir eiga skuli sæti á
þessari kjörmannasamkundu, og
kjörmenn kjósa samkvæmt vilja
stjórnarinnar.
Frambjóðandi stjórnarinnar,
Americo Thomas, fyrrverandi for-
seti og aðmíráll, Var því endur
kjörinn forseti landsins til næstu
sjö ára.
★ Obileiörn stefna
Á sama tíma og þróunin stefnir
víðast hvar í heiminum í átt til
frjálslyndari stjórnarhátta reyna
yfirvöldin í Portúgal að synda á
móti straumnum. Þetta á ekki að-
eins við um stjórnmálaþróunina í
landinu sjálfu heldur einnig um
afstöðu Portúgals til nýlendnanna.
Þannig áttu fulltrúar „landsvæða
Portúgals handan hafsins” sæti á
kjörmannaþinginu, sem kaus for-
setann á dögunum. Öll ríki heims
nema Portúgal kalla þessi land-
svæði sínu rétta nafni, þ. e. portú-
galskar nýlendur. Á sama tíma og
fyrrverandi nýlenduveldi hafa
'með friði og spekt veitt nýlend-
um sínum sjálfstæði og halda á-
fram að gera það, ríghalda Portú
galar enn í kredduna um, að
portúgölsku nýlendurnar séu „óað-
skiljanlegur hluti móðurlandsins".
SALAZAR
— einvaldur í 35 ár
Þessi afstaða er Portúgölum
mikil byrði — og einnig banda-
mönnum þeirra. En þótt Portúgal
sé aðili að Aalantshafsbandalag-
inu viðurkennir ekkert NATO-
ríki nýlendustefnu Portúgala.
Þ'etta hefur skýrt verið tekið fram,
bæði innan NATO og ekki sízt á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Norðmenn gerðu t. d. ljósa grein
fyrir afstöðu sinni — og margra
annarra, er portúgölsku nýlend-
urnar voru tvívegis teknar til um-
ræðu í Öryggisráðinu 1963—’64.
★ Stefnu andmælt
a
Afstaða sú, sem Norðmenn
gerðu grein fyrir, var í stuttu máli
á þessa leið: Norðmenn geta ekki
fallizt á, að landsvæði undir
stjórn Portúgala séu hluti af
Portúgal. Söguleg þróun og þjóð-
félagsleg uppbygging á landsvæð
um þessum styðja ekki þessa stað- )
hæfingu. Norðmenn halda því
fram, að þessi landsvæði njóti
ekki sjálfstjórnar innan ramma
stofnskrár SÞ. Norðmenn telja, að
samkvæmt stofnskránni séu Portú-
galar skuldbundnin til að búa
þessi landsvæði undir sjálfstjórn
og að það sé verkefni SÞ að
trj’ggja það að þróunin í átt til
sjálfstjórnar hefjist sem fyrst. Af
þessu komi fram, að íbúar portú
gölsku landsvæðanna eigi kröfu til
sjálfsákvörðunarréttar. Ennfrem-
ur> telja Norðmenn, að tími sé
kominn til þess að Öryggisráðið
lýsi því ótvírætt yfir, að gera
verði þjóðunum á portúgölsku
landsvæðunum kleift, að öðlast
sjálfsákvörðunarrétt og að ráðið
hvetji Portúgala formlega til að
viðurkenna þennan rétt og koma
því til leiðar, að neyta megi þessa
réttan.
Þetta gerðist 1963. Flest ríki
heims eru áreiðanlega sammála
Norðmönnum, en Portúgalar
halda í „landsvæði” sín. Vonandi
er, bæði fvrir Portúgala og banda-
menn þeirra, að landið breyti
stefnu sinni, bæði inn á við og
gagnvart Afríku, áður en það verð
ur um seinan.
Tony Curtis, 40 ára (allir halda
að hann sé miklu yngri.) á að
leika aðalhlutverkið í nýrri mynd
sem nú á að fara að taka og nefn
ist „My last Duchess" (Síðasta
hertogaynjan mín). Framleiðendur
myndarinnar hafa enn ekki ákveð
ið, hver hertogaynjan verður, en
þessar koma til greina: Leslie
Caron, Claudia Cardinale, Jeanne
Moreau og Jean Simmons.
Claudia Cardinale, 26 ára, og
Birgitte Bardot, 30 ára, gerðu báð
ar löndum sínum þann sóma á
dögunum að vera viðstaddar opn
un jarðganganna undir Mont Blanc
við Courmayer (milli Frakklands
og Ítalíu), Þó að þær hafi verið
samhuga í þetta skiptið eru þæn
í verunni verstu fjandkonur.
ÚTSALA ÚTSALA
Sumarútsalan hefst í dag
Tízkuvörur á stórlækkuðu verði hjá
BÁRU Austurstræti 14.
FRÁ HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN: i
Auglýsing til umsækjenda um
íbúðalán hjá Byggingasjóði
ríkisins.
í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
um húsnæðismál við kjarasamninga verka-
lýðsfélaga og vinnuveitenda í júlí sl. er nauð ,
synlegt að allir lánsumsækjendur, er eiga
fyrirliggjandi viðurkennda lánsumsókn og
byrjað hafa byggingaframkvæmdir (og/eða
gert kaup á íbúðum) leggi nú þegar eða eigi
síðar en 15. september n.k. fram vottorð
byggingafulltrúa (eða oddvita) um hvenær
framkvæmdir hófust við húsið (eða botnplata
var steypt) — hafi umsækje'ndur ekki þegar
lagt fram slíkt vottorð.
. ' . |
Ennfremur skal fram tekið:
1) Að umrædd vottorð ber lánsumsækjend-
um að leggja fram, hvort sem þeir hafa
keypt íbúðir sínar í smíðum eða byggt
þær sjálfir.
2) Sameiginlegum vottorðum fyrir fjölbýlis-
hús er nauðsynlegt að jafnframt fylgi
nafnaskrá yfir lánsumsækjendur í viðkom
andi húsi.
3) Þeir íbúðaeigendur, sem áður hafa fengið
einhverja úrlausn lánsumsókna sinna, en
telja sig eiga, með hliðsjón af fyrrnefndri
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, rétt til
frekari lánveitinga, ber einnig að leggja |
fram vottorð um hvenær byrjunarfram-
kvæmdir þeirra hófust (eða botnplata var
steypt) ásamt viðbótarlánsumsókn, fyrir
hinn tilgreinda tíma þ.e. 15. september
1965. — Eftir þann tíma verður slíkum
umsóknum ekki veitt móttaka.
Reykjavík, 1. ágúst 1965.
Húsnæðismálastofnun rikisins.
Benzínsalð Hjólbarðaviðgerðir
Opið alla daga frá kl. 8—23,30.
Hjólbarðaverkstæðið Hraunholt
Hornl Lindargötu ðg Vitastígs. — Síxui 23900. " \
ALÞVÐUBLAÐIÐ — 4. ágúst 1965 §