Alþýðublaðið - 05.08.1965, Qupperneq 1
Fimmtudagur 5. ágúst - 45. árg. - 172. tbl. — VERÐ 5 KR.
ÞETTA ER EKKI HÆGT
HERRA BORGARSTJÓRI!
KLUKKAN VAR EITT í Hlíðahverfi,
þeger bjaðamaðurinn vaknafíi við há-
vaða og skrölt fyrir utan gluggann. Hann
áttaði sig ekki strax á því, hvað var að
gerast. Fyrst heyrði hann glamur í blikki
og hróp og köll, eins og fjöldi manns
j væri á ferð. Svo kom vélarhljóð og loks
þungir dynkir: 'Búmm, búmm, búmm.
j Þegar hann leit út um gluggann, sá
hann, hvers kyns var. Sorphreinsunar-
bíll stóð á götunni, og fjöldi grannvax-
in)na veilkamanna þaut fram og aftur
með tunnur á kerrum, og hrópaði hver
á annan eins og fuglar í bjargi.
Forvitni blaðamanns-
I ins var vakin. Af hverju
i láta mennirnir svona?
Hví hafa þeir svo hátt?
Gömlu mennirnir, sem
hirða sorpið í Reykjavík
á dagirin, hafa ekki svona
i hátt, þeir láta ekki eins
og ærslabelgir.
Klæddur brókum og
frakka yfir náttfötin fór blaðamaðurinn
út á götu til að athuga þessa háværu næt
urverkamenn, sem vafalaust hafa vakið
alla þá, sem sízt skyldi trufla. Og viti
menn! Verkamennirnir reyndust vera
drengir rétt yiir fermingu! Aðspurðir
sögðust þeir allir vera 14 og 15 ára gaml
ir. Nei, það var enginn orðinn 16 ára,
nema bílstjórinn á sorpbílnum. Hann var
um fimmtugt.
Drengirnir hópuðust umhverfis blaða-
manninn og voru hinir fúsustu áð segja
frá högum sínum. Þeir kváðust mæta til
vinnu klukkan átta á kvöldin og vinna
til fjögur um nóttina. Mest var stolt
þeirra yfir kaupinu. Þeir sögðust hafa 75
krónur á tímann og bjuggust við að hafa
yfir 4000 á viku. Það verða 16—17.000
krónur á mánuði.
Blaðamaðurinn bað drengina að reyna
að vekja ekki öll gamalmenni í Hlíða-
hverfi og skreið í ból sitt — hugsi. Hann
ákvað, áður en hann sofnaði, þegar sorp
bíllinn var að hverfa fyrir næsta horn,
að leggja nokkrar spurningar fyrir borg
arstjórann í Reykjavík, sem meirihluti
Reykvíkinga hefur kosið til að stjóma
málum eins og sorphreinsun. Og hér
koma spurningarnar:
1) Munduð þér, herra borgarstjóri, telja
það hollt og gott fyrir 14 ára son yðar,
að hann ynni við sorphreinsun frá
klukkan 8 að kvöldi til klukkan 4 um
nótt, meðan þér svæfuð værum
svefni?
2) Finnst yður það skynsamlegt skipu-
lag hjá Reykjavíkurborg, að láta full
tíða menn vinna við sorphreinsun á
daginn, en 14 og 15 ára unglinga
vinna alla nóttina?
3) Vitið þér, herra borgarstjóri, íif
hverju atvinnurekendur á íslandi eru
svo tregir til að greiða mannsæman<li
kaup fyrir dagvinnu, þegar fermingc r
börn fá 16.000 á mánuði fyrir 8 tíma
næturvinnu?
4) Eruð þér sannfærður um, að engin
önnur leið sé til að hreinsa sorp Reyk
víkinga en þessi — að láta 14—15 áia
böm halda vöku fyrir fólki að nætvr
lagi?
5) Getur verið, að þessi næturvinra
stafi af því, að Reykjavíkurborg eigi
ekki nægilega marga sorpbíla til £ð
láta drengina að minnsta kosti vinna
að degi en ekki nóttu?
6) Viljið þér, herra borgarstjóri, leyfa A1
þýðublaðinu að birta skýringar yðar
á þessari barnasorphreinsun að nætur
lagi — og svara um leið þeim þeim
spumingum, sem hér hafa verið lagð-
ar fram?
13 ára telpa bjargar
ungbarni frá drukknun
iWWWmWWMHWWWMWWWWWWWWWMWWitWM
ÞJÓÐHÁTfÐ
Alþýðublaðið er í dag helgað Vestmanuaeyjum í ti'efm
af Þjóðhátiðinni, sem verður um næstu helgi. Sjá greinar og
myndir inni í blaðinu.
ísafirði — BS ♦
J'YRIR nokkru síðan bjargaði 13
ára gömul ísfirak telpa, Aðalheið-
ur Steinsdóttir, Tangagötu 10,
éins árs gömlum dreng frá drukkn-
un.
Aðallieiður var á gangi ásamt
tveimur stallsystrum sínum í nánd
vsð svonefnda Dokkubryggju.en sú
bryggja er norðanvert á tangan-
um, sem ísafjarðarkaupstaður
stendur á. Þá heyrðu þær hrópað
Krn. á 14. sfOu.