Alþýðublaðið - 05.09.1965, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.09.1965, Blaðsíða 4
Ritstjórai: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull- trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900- 14903 — Auglýsingasími: 14906. Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðu- blaðsins, — Askriftargjaid kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið. Utgefancli: Alþýðuflokkurinn. Lítill og stór LOFTLEIÐIR hafa nýlega haldið hér árlegan fund með þeim, sem ivieita forstöðu skrifstofum fé- lagsins í öðrum löndum. Er þetta fjölmennur hópur, skipaður bæði íslendingum og erlendum starfs- mönnum. Gaf þessi fundur á sína vísu athyglisverða mynd af því, hve mikil og margþætt starfsemi félags ins er orðin. Loftleiðir eru taldar lítið flugfélag á heimsmælikvarða, eins konar Davíð sem er sífellt að ögra Golíötum flugsamgangnanna. En á íslenzkan omælikvarða er félagið stórt og sýnir, hvað hægt er að gera með stórhug og dugnaði, því Loftleiðamenn. höfðu lítið annað í vegamesfci. Starfsemi Loftleiða byggist á þeirri staðreynd, að ísland er sjálfstætt lýðveldi, sem nýtur þeirrar við- urkenningar í fjölskyldu þjóðanna, að það eigi rétt ■á loftferðasamningum við nágranna sína. Líklega mundu San Marino, Andorra eða Monacco ekki fá þennan rétt, og virðast mörkin þannig vera skammt fyrir neðan stærð íslenzku þjóðarinnar. Þrátt fyrir þennan rétt hafa Loftleiðir ekki átt sjö dagana sæla. Félagið hefur meitað að gerast aðili að hinum alþjóðlega fargjaldahring og komizt í and stöðu við stóru flugfélögin fyrir þá stefnu að vilja flytja fólk fyrir lægra verð — með nokkru minni þæg indum en aðrir bjóða. Á þessu hafa vinsældir félags ins byggzt, en þetta veldur líka erfiðleikum þess. Þótt íhlutun stjórnmálamanna hafi hindrað fyrir ætlanir SAS um að gera Loftleiðir útlægar af Norð- urlöndum, eru enn margar hindranir á starfsemi fé- lagsins þar og annars staðar. Það hefur ágæta bæki- stöð h.já stórvinum okkar, Lúxemborgurum. en verð ur að lokka til sín farþega úr nágrannalöndum hálf- partinn á laun, og eru til dæmis í Þýzkalandi tak- markanir á frelsi félagsins til að auglýsa þjónustu sína. Nú, en enginn verður óbarinn biskup. Sjálfsagt hafa erfiðleikar og amdspyrna átt mestan þátt í að kalla fram þróttinn í Loftleiðamönnum. og kann svo ■enn að reynast á komandi árum. Draumunnn ÞEGAR ísland er borið saman við önnur byggi- feg lönd, bar eitt á milli öðru fremur. Það er auðm- in. Óvíða má finna neðan við 1500 metra hæð svo •gróðurlaust land, svo uppblásið, slíka eyðimörk, sem víða ber fyrir augu á íslandi. Af þessum sökum er hugsjónin um skógrækt ein hin eðlilegasta og um leið göfugasta, sem íslending- ur getur átt. Draumurimn um að klæða auðnina skógi er draumur um að fegra og bæta allt umhverfi manns ins — og um leið hann sjálfan. UTSALA ÚTSALAN STENDUR YFIR í NOKKRA DAGA. LÍFSTYKKJAVÖRUR og UNDIRFATNAÐUR Notið tækifærið. GERIÐ GÓÐ KAUP. Laugavegi 26. Bréf til blaðsins Hætti fyrir 3 mánuðum Allmikla athygli hefir það vak ið, er fram kom í frásögn dagblaðs um sjóslysið við Reykjanes ,að erindreki sjóslysavarna S.V.F.Í. er hættur störfum. Liðnir eru 3 mánuðir síðan það skeði. Gera verður ráð fyrir að hann hafi sagt upp störfum með þrigja mánaða fyrirvara eins og venja er til, og eru þá sex mánuðir síðan stjórn Slysavarnarfélagsing var þetta kunnugt. Þrátt fyrir það hefir stjórn félagsins ekki ráðið annan erindreka til sjóslysavarna svo að kunnugt sé. Þetta tómlæti kann að verða dýrt og verður vonandi úr bætt hið bráðasta. S.O.S. Munið STEINGfRÐINGAR og SVALAHANDRIÐ í f jölbreyttu og fallegu úrvali. Sendum um allt land. Vel glrt lóð, eykur verðmæti hússins. MOSAIKhf. Þverholti 15. — Sími 19860. Póstbox 1339. [1 11 1: 1 4 5; sept. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.