Alþýðublaðið - 05.09.1965, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 05.09.1965, Blaðsíða 6
mm mmsmi " ■ %££&$$</ ksz -fj/ • Í? ?'"';' ^fe-3^í?iM'íÍ'ii/í I ’ l MW*ií •" ;, fy~fíUíi>/h • ■ ’ ■’ . : te ■ ' ■ ■ .’ &&k !Æ') M ífP $4? & t lt@ll§§t«ilp sSgfz:' * $m ' ■• wmmwmm - ; ' ..'■■■ .'. SÉltSÍlÉ ' :' ' .' ■ ■ •’ •'••••'/;••••'•■ ;• / ••'.■ ■••. • • • * ';••'. %5vsv 3. september falla í Diisseldorf í Þýzkalandi dómar í svonefndu Treblinka-máli, réttarhöldunum gegn SS-mönnunum og nazistaböðl unum, sem skipuðu varðsveit Tre- blinkafangabúðanna á stríðsárun- um. I Aðalsökunauturinn, hinn fimm- tugi Kurt Hubert Franz, er alls ó- snortinn af ákærunni um fjölda- morð og alla mannvonzku og lýsti yfir sakleysi sínu með þessum orðum: „Allar ásakanir, sem bein- ast að þeim manni, sem fangarn- Leikur meb James Bond Mótleikarar James Bond af „veika“ kyninu virðast sannarlega ekki valdir af verri endanum og svo er einnig um hinn nýjasta þeirra, hina 23 ára gömlu Claudine Auger, en hún er fyrrverandi Ungfrú Frakklands. Mál verkasýnirrg Freymóðs Jóhannssonar I Listamannaskálanum — opin daglega kl. 1 til 10 síðdegis. Kl. 1, kl. 4 — og kl. 8,30, daglega, verða ieikin af segul- bandi ný og eldri lög eftir Tólfta September. Hinn mikil- hæfi píanóleikari, Magnús Pétursson, leikur lögin. Sjáið þessa óvenjulegu sýningu. ir nefna ,,Lalka“ (pólska orðið yfir dúkka) eiga ekki við mig”. Hví svo margir fyrrverandi fanga teldu sig þekkja hann aftur fyrir „Lalka”, svaraði hann á þá leið, að þeir hlytu að vera undir áhrifum blaða og sjónvarps”. Telur Franz, að það hafi ekki verið hann, heldur fangabúðalæknirinn Eberl, sem síðar framdi sjálfsmorð, sem verið hafi „Lalka”. Að undanteknum tveim fyrirskipunum frá fanga- búðastjóranum Wirth, sem hann hafi verið neyddur til að fram- kvæma, hafi hann aldrei mis- þyrmt né drepið neinn. Franz var frá því í október 1942 þangað til í októben 1943, er fang- arnir gerðu hina frægu uppreisn sína, staðgengill fangabúðastjór- ans. Síðar varð hann yfirmaður í Treblinka — en því neitar hann nú algerlega — og þá er talið, að hann hafi látið taka af lífi Gyð- ingana 300, sem ekki flýðu. Þar van um að ræða gamalmenni og sjúklinga. Alls munu um 700.000 manns hafa verið myrtir í Treb- linka-fangabúðunum á einu ári. Ríkissaksóknarinn krefst lífstíðar- fongelsi yfir Franz og sex aðra ákærðu. Aðeins einn ákærðra játaði sekt sína í öllum ákæruatriðum. Heitir hann Augúst Miete, og fer fram á réttlæti sér til handa. Otto Stadie fyrrverandi fangavörður heldur því fram, að hann hafi aldr- ei gert nokkurri manneskju illt. Ákærður Mathes heldur einnig fast fram sakleysi sínu, en hann er sakaður um að hafa hengt Gyð- inga hundruðum saman. Mathes talaði um það fyrir réttinum, að hann „hefði liðið takmarkalausar samvizkukvalir”, meðan hann starf aði í fangabúðunum, og telur sig hafa haft ímugust á öllu, sem snerti „fangabúðir og stríð”. Mentz nokkur, fyrrverandi SS- maður, játar að hafa skotið fanga, en kveðst aðeins hafa gert það eftir skipunum frá Wirth, sem hann lýsir sem grimmum og sam- vizkulausum fanti. Austurríkis- maðurinn Franz Suchmehl neitar þeirri ásökun að hafa skotið móður eina, þegar dóttir hennar neitaði að afhenda brúðuna sína. Sucho- mehl sagði: „Ég gerði ekkert af mér í Treblinka, en ég fyrirverð mig fyrir að fangabúðirnar skuli nokum tíma hafa verið til”. Ákærður Munzenberger neitar að • hafa rekið Gyðingana inn í gasklefana og lokað á eftir þeim, en ríkissaksóknarinn telur það hins vegar sannað. Múnzenberger er einnig gefið að sök að hafa skotið kvenfanga nokkum til bana, af því að ekki var pláss fyrir hana í troðfullum gasklefa. Múr- arinn Lambert annaðist smíði gas- klefanna í Treblinka, en ekki tókst að sanna, að hann hefði framið önnur afbrot í fangabúðunum. — Sjálfur lýsir hann sér sem „ánauð- ugu handbendi” hinna nazistísku yfirvalda. Ákærður Horn er sá eini þess- ara tíu, sem tekizt hefur að sanna að hann hafi gert tilraun til að komast burt frá Treblinka án þess að það heppnaðist. Fangavörður- inn Rum ákvað að vera hlutlaus og hagaði sér eftir því. Hvorki hefur sannast á Horn né Rum, að þeir hafi framið hryðjuverk eða morð. Báðum er hins vegar gefið að sök að vera meðsekir um morð. SHŒESDnDE] Nazistaböðlar neita Gerir allt með tánum KONSTANTIN VELKOV, frá Sofia í Búlgaríu, missti báffa hand leggi fyrir tíu árum, þegar hann varff fyrir rafmagnsstraumi, en síff an hefur honum tekizt aff þjálfa svo tær sínar, aff þær gegna hjá honum svipuðu hlutverki og hendur annarra. Hann getur gert nærri allt meff tánum eins og mefffylgjandi myndir sýna: stagað í sokkana sína, greitt sér og vélritaff. Geri affrir betur! £ 5. sept. 1965 - ALÞYÐUBLAÐID

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.