Alþýðublaðið - 15.09.1965, Side 8
sÞegar verkalýðsmálaráðstefnunni á Sauðárkróki lauk síðastliðinn sunnudag, hafði blaða-
maður frá Alþýðublaðinu tal af nokkrum fulltrúanna, sem hana sátu, og spurði þá um állt
þeirra á þessari fyrstu verkalýðsmálaráðstefnu Alþýðuflokksins utan Reykjavíkur.
MJÖG VEL HEPPNUÐ
VERKALÝÐSRÁÐSTEFNA
Eggert G. Þorsteinsson
félagsmálaráðherra:
— Mér finnst ráðstefnan hafa í
alla staði tekizt mjög vel, og sanna
það, að þörf er fyrir fleiri svip-
aðar ráðstefnur úti um landið, ut-
an Reykjavíkur. Aftur á móti tel
ég nauðsynlegt, að Reykvíkingar
sæki þessar ráðstefnur, til að
skilja sjónarmið þeirra, sem úti á
landsbyggðinni búa. Sjónarmið
þeirra, eru gjörólík og miðast við
lífsbaráttu þeirra. Hugmyndin er
að koma á slíkum ráðstefnum víð-
ar, og er mikið atriði að það verði
gert, bæði samtakanna vegna og
til að auka mönnum skilning á
aðstöðu hvers annars.
Hálfdán Sveinsson,
Akranesi:
— Þetta var mjög þarfleg ráð-
stefna og hefði það gjaman mátt
vera fyrr, að framámenn í verka-
lýðsmálum hittust, — einmitt
utan Reykjavíkur. Bezt væri að
þetta yrði endurtekið I hverjum
landsfjórðungi eða hverju kjör-
dæmi. Við, sem búum við næga
atvinnu, og jafnvel svo mikla, að
fólk fær ekki frítima, — höfum
sannarlega gott af að hlusta á mál
þeirra manna, sem búa við árstíða
bundið atvinnuleysi. Það er okkur
lærdómsríkt, að kynnast kringum
stæðum þessa fólks hér á Norður-
og Norðausturlandi, sem er svo
ákveðið í að yfirgefa ekki þá
staði, sem það býr á, heldur vill
reyna að byggja upp nýjar atvinnu
greinar, þegar undirstöðuatvinnan,
sjávarútvegurinn, bregzt, eins og
nú hefur átt sér stað. Núverandi
ríkisstjórn hlýtur að gera það, sem
í hennar valdi stendur til að leysa
vanda þessa dugmikla fólks.
Kolbeinn Helgason,
Akureyri:
— Þessi nýbreytni í starfi
flokksins hefur gefizt mjög vel,
og er vonandi að áframhald verði
á þessu sviði. Ráðstefnan hefur
orðið til að lífga upp þessi mál
og hvetja menn til starfa. Mín á-
hugamál eru hjá.samtökum verzl-
unarmanna, en þeir hafa átt litl-
um skilningi að fagna meðal
þeirra, sem stjórna verkalýðsmál-
unum. Verzlunarmennirnir hafa
algera sérstöðu, og eru nú bjart-
sýnir á framtíðina, því að nú er
verið að sverfa þá agnúa, sem
verið hafa á þessum málum.
Kristján Dýrfjörð,
Hafnarfirði:
— Ráðstefnan hefur verið góð,
og má segja, að hún hafi verið
nauðsynleg til að hrista upp í
pokahorninu, og vekja menn til al-
varlegrar umhugsunar um verka-
lýðsmálin. Allir þeir, sem ég hef
talað við, hafa verið þakklátir fyr-
ir það framtak forystumanna okk-
ar, að koma þessari ráðstefnu á
fót. Þessi verkalýðsmálaráðstefna
hefur tekizt vel og hún er góðs
viti.
Sigurður Gunnarsson,
Húsavík:
— Eg get ekki sagt annað, en
að ráðstefnan hafi tekizt sæmi-
lega vel, þótt æskilegra hefði ver-
ið að við hefðum haft lengri tíma
til að ræða svona mikilsverð mál.
Svo vonum við að eitthvað verði
gert meira í atvinnumálunum, en
umræðurnar eru góð byrjun. Það
verður að gera eitthvað í þessum
málum áður en fleira fólk flytzt
frá þeim stöðum, sem búa við at-
vinnuleysi hér fyrir norðan, en
skipulagning atvinnumálanna verð
ur að vera númer eitt.
Q 15. sept. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ