Alþýðublaðið - 15.09.1965, Side 15

Alþýðublaðið - 15.09.1965, Side 15
BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala sannar fræðin. BRIDGESTONE veitir aukið öryggi í akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA Verzlun og viðgerffir. Gúmbarðinn h.f. Brautarholti 8 Sími 17-9-84. Látið okkur stilla og herða upp nýju bifreiðina! BÍLASKOÐUN Skúlagötu 34. Siml 13-100 Látið okkur ryðverja og hljóðeinangra bifreiðina með TECTYL! RYÐVÖRN Grensásvegi 18. Síml 30945 EYJAFLUG MEÐ HELGAFELLI njótið ÞÉR ÚTSÝNIS, FLJÓTRA OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERDA. AFGREIÐSLURNAR OPNAR ALLA DAGA. iár SlMAR: VESTMANNAEYJUM 1202 REYKJAVÍKURFLUGVELLI 22120 Lesið Alþýðublaðið Vinstrl flokkar ... Framh. af bls. 1. á hinum 553 kjörsvæðum eru sem hér segir (sambærilegar tölur úr síðustu kosningum innan sviga). V erkamannaf Iokkur inn Hægri flokkurinn Kommúnistar Kristilegir Miðflokkurinn Vinstri flokkurinn Sameiginlegir borgaralistar Sósíalistíski þjóðarflokkurinn Aðrir Kosningaþátttaka á þessum kjör svæðum var 82,6% (77,3% gíðast). Borgaraflokkarnir fá 80 þingsæti en vinstri flokkarnir 70. Þingsæt in skiptast þannig milli flokkanna. Verkamannaflokkuninn 68, Hægri flokkurinn 31, Miðflokkurinn 18, Vinstri flokkurinn 18, Kristilegi flokkurinn 13 og Sósíalistíski þjóð arflokkurinn 2. Einar Gerhardsen forsætisráð herra lýsti því yfir í kvöld að stjóm háns mundi biðjast lausnar þegar þing kæmi saman í næsta mánuði. Hann kvaðst ekki telja að stjórnarskiptin mundu valda praktiskum vandamálum og kvað stjórn sína mundu leggja frarn fjárlagafrumvarp, sem ný stjórn gæti síðan gert athugasemdir við John Lyng, foringi Hægri flokks ins sagði í kvöld, að stjórnarkrepp an yrði fljótlega leyst, að nokkr ir undirbúningsfundir hefðu þeg ar verið haldnir en engin endan leg ákvörðun yrði tekin fyrr en þingflokkar kæmu saman. Jafnaðarmenn á Norðurlöndum eru sammála um, að klofningsstarf semi Sósialistíska þjóðarflokksins (SF) hafa haft mikil áhrif á kosn ingaúrslitin. Jens Otto Krag for sætisráðherra Dana, sagði, að SF hefði boðíð fram í kjördæmum, þar sem fyrirfram væri vitað að einu áhrifin yrðu þau að Verka mannaflokkurinn fengi ekki þing mann kjörinn án þess að SF hefði nokkra möguleika til að koma manni að. Borgaraflokkarnir liafa ekki feng ið fylgi meirihluta kjósenda og ég er ekki í nokkrum vafa um að Verkamannaflokkurinn og leiðtog ar hans munu keppa markvisst að því að endurheimta forystu hlutverk flokksins í stjórnmálum landsins, sagði Krag. Hann sagði að hinni nánu og góðu samvinnu Dana og Norðmanna yrði haldið áfram. Tage Erlander forsætisráðherra Svía sagði í ræðu í Gautaborg, að Verkamannaflokkurinn hefði senni lega tapað jafnmörgum atkvæð um og fylgisaukning SF næmi. Ef þetta væri rétt stafaði þingmanna aukning borgaraflokkanna að miklu leyti af klofningnum í verkalvðshrevfingunni. Sósíilist1 íski þióðarflokkurinn hefði í kosn ingabaráttunni lagt megináherzlu á ofspfengnar árásir á Verkamanna flokkinn og gert baráttu Verka mannaf’okksins seen borgarafiokk unum eríiðari en ella. Þó liefðu borearafiokkarnir ekki fensHð meirihluta atkvæða. Erlander líkti kiofningnum í norsku verkaivðs hrevf’ngunni við klofninginn í sæncku verkalvðshreyfingunni 19í>n_sn. Á saina tíma og horg araf'okkarnii- revndu að dvlia djúnstæðan ágreining sinn og láta líta svo út sem þeir stæðu sam einaðir gegn Verkamannaflokkn um gerði SF allt sem í hans valdi stóð til að valda sundrungu í verka lýðshreyfingunni, sagði Erlanden. 860.540 (844.476) 43.6% (47.0%) 386.336 (339.645) 19.6% (18.9%) 28.388 ( 52.092) 1.4% ( 2.9%) 154.360 (169.384) 7.8% ( 9.4%) 189.847 (124.623) 9.6% ( 6.9%) 200.052 (131.337) 10.1% ( 7.3%) 34.874 ( 92.340) 1.8% ( 5.1%) 118.340 ( 42.375) 6.0% ( 2.4%) 429 ( 475) 0.0% ( 0.0%) Norski jafnaðarmannaleiðtoginn Haakon Lie sagði í útvarpi í kvöld að það sem hann hefði óttast mest hefði nú gerzt. Við höfum fengið borgaralegan meirihluta á Stór þinginu án borgaralegs meirihluta meðal þjóðarinnan sagði hann. Röskunin á þingmannatolunni er miklu meiri en atkvæðatölurnar segja til um. Orsakirnar eru tvær þ.e. samvinna borgaraflokkanna, m. a. sameiginlegir listar, og klofn ingun vinstri manna í þrjá flokka. NTB hermir að leiðtogar borgara flokkanna komi bráðlega saman til fundar um kosningaúrslitin og stjórnarmyndunina. Sennilega veíð ur fynsti fundurinn haidinn á fimmtudag, en fundartími hefur enn ekki verið ákveðinn. Hægri leiðtoginn John Lyng sagði í kvöld að borgaraflokkarnir yrðu að ræða vm's vandamál sem skapazt hefðu vegna kosningaúrslitanna m. a. í sambandi við skipun mann í þing forsetaembætti. hvernia samvinnu borgaraflokkarnir skuli haga á bingi. en svo geti farið að einn leið +oei bingflokkanna verði „efstur meðal jafningja". Þegar stjórn Gerhardsens seg ir af sér í næsta mánuði taka sex ráðherrar úr henni sæti á þingi, þeir Halvard Lange, utanríkisráð erra, Magnus Aandersen fiskimála ráðherra, Olav Gjarevoll, Leif Granli landbúnaðarráðherra, Jens Haugland sveitastjórna- og verka lýðsmálaráðherra og Gerhardsen sjálfur. Átta aðrir ráðherrar hverfa til sinna gömlu starfa. Áskriffasíminn er 14900 Kasmír... Framhald af 3. síðu. unum í Peshawar og Kohat í Pak- istan, að því er skýrt var frá í Nýju Delhi. í Rawalpindi er sagt, að lítið tjón hafi orðið í loftárás- unum. Bandarískar herflugvélar áttu að hefja í dag brottflutning 1100 —1300 bandarískra borgara frá Pakistan. Tilraunum til að koma á vopna- hléi var haldið áfram í dag í Nýju Delhi og Rawalpindí, en ekki verð- ur vitað um niðurstöður viðræðna U Thants, aðalframkvæmdastjóra SÞ við indverska valdamenn fyrr en á morgun. Góðar heimildir herma hins vegar, að Indverjar séu fúsir að fallast á tillögu U Thants um vopnahlé gegn þvl skilyrði að trygging verði veitt gegn nýjum árásum af hálfu Pakistana. Nanda innanríkisráðherra bar til baka orð róm um, að vopnahlé yrði tafar- laust komið á. Shastri forsætisráðherra ræddi Kasmírmálið við þingflokk Kon- gressflokksins í dag og var lýst yf- ir fullum stuðningi við stefnu hans í deilunni við Pakistan. Shastri ræddi einnig við leiðtoga stjórnar- andstöðunnar og sýnt þykir, að öll ábyrg öfl í Indlandi styðji stefnu stjórnarinnar. Ekki er Ijóst hvort Pakistanar fallist á vopnahlé með skilyrðum Indverja, en hófleg bjartsýni er ríkjandi í Nýju Delhi. Plaströr... Framhald af 2. síðu einnig mjög sterk, lágmarksending er 50 ár. Framleiðslustjórinn, Jón Þórðar son, sýndi að síðustu framleiðslu á rörunum hjá Reykjalundi og styrk leika þeirra. Meðal annars voru tvö rör tekin og skeytt saman, með svokallaðri butt-suðu. Rör- in voru síðan þolprófuð og var suðan sízt veikari en rörin sjálf. Síðast voru rörin þrýstiprópuð og reyndust þau þola fimm-sinnum meiri þrýsting en gefin var upp, sem eðlilegur vinnuþrýstingur. Bék nim stjórn ... Framhald af 3. síffu á Alþingi. Hannes hefur verið að með þessa bók í undirbúningi í mörg ár, og er meginuppistaða hennar úr erindum sem flutt hafa verið á vegum félagsmálastofnun arinnar. Hún er 328 bls. oð stærð og kostan 225 krónur. Kjósandinn. stjórnmálin og valdið er sjötta bókín í bókaflokki Félagsmála stofnunarinnar. Farþegum fjölg- aðí um 2 þús. FLUTNINGAR Sameinaða gufu skipafélagsins milli Færeyja og íslands jukust um 65 af hundraði á fyrstu niu mánuðum þessa árs miðað við árið áður. S.l. sumar voru farþegar um 2 þús. fleiri en sumarið áður. Er þetta því að þakka,, að Kronprins Olav leysti Drottninguna gömlu af hólmi, sem áður hafði fastar áætlunarferðir á þessari leið. í viðtali við J. Fog Petersen forstjóra sem birtist ný lega í dönsku blaði sagðist hann vera mjög ánægður með þann á rangur hem náðst hefur með því að setja nýrra og stærra skip á þessa leið, en samt sem áður hefúr Kronprins Olav ekki reynst sem, skyldi og hin 15 jan n.k. tekur Kronprins Frederik við á þessa^i leið, en það er enn stærra nýrra skip en fynirrennari han Unnið er að endurbótum á skipir^U til að það verði hæfara til að sigla á Norður Atlantshafi, Bætt verður við hliðarskrúfum til að auðyekta skipinu að leggja að og frá bryggj|u í Þórshöfn og Klakksvík án dð stoðar dráttarbáta. Þá verða sett ir sérstakir tankar í skipið þar sem sett verðun ballest eftir þvi sem við á hverju sinni. Salt CEREBOS1 HANDBÆGU BLÁU DÓSUNUM. HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA Fæst í næstu búö ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. sept, 1965 ]£

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.