Alþýðublaðið - 29.09.1965, Side 6

Alþýðublaðið - 29.09.1965, Side 6
 m$00m f 0 ■ \ ■ | ■ ■ Hl S vv-sí- mmm Hli wm ; ■ ■ . ■• Pi ' mmiM ■ ■• • Ttrtfftr*: 00^ Wm Hraustlega er tekið til matar síns eftir erfiðau starfsdagr. ■ ■ ’ •' Þrjár konur og 23 börn SJIRALIJ MISLIMOV, 160 ára rússneskur ver'kamaður, sem býr í Kákasus, er nýkominn heim í sveitina sína aftur eftir heimsókn til borgarinnar Baku. Mislimov, sem er sennilega elzti maður Rúss Iands og jafnvel elzti maður í heimi, var beirra erinda í borg- inni Baku að sitja fyrir hjá mynd höggvara nokkrum. Mislomov var við beztu heilsu allan tímann, sem hann dvaldi í borlginni, en samt var hann fegwm að komast heim. Hann var hálfrdnglaður og þreytt ur af öllum hraðanum og öllu þvi nýja, sem hann sá. Mislimov hefur átt þrjár eigin konur um ævina, 23 börn og fjölda bamabarna og barnabarnabarna. verða stjarna JULIE CHRISTIE er engrn venjuleg kvikmyndastjarna. Það kom greinilega í ljós, þegar henni voru flutt skilaboð frá Gary Grant um, íhvort hún vildi gjöra svo vel að hringja til hans. Garv Grant var að ráða leikara í nýja mynd og sá mynd af Julie og langaði til að ráða hana. Julie þakkað* fyrir skilaboðin og sagðist skyldu hringja, en hún hringdi aldrei. Á einu ári hefur Julie leikið í tveim ur myndum, „Eilly, the liar“, sem var sýnd hér í Gamla Bíói nýlega Og „Darling" og nú er hún að leika í þriðju myndinni „Dr. Zhivago“. Þar leikur hún Löru. Julie er aldrei viss um, hvað; klukkan er eða hvar hún er stödd. Hún mætir of seint á stefnumót. Hún er lítil vexti, ekki eins glæsileg og við búumst við. Hún ■er ekki klædd eins og kvikmynda stjarna, fötin em óhirðuleg, blá blússa, ljóst pils og skórnir henn ar em hræðilegir. En andlitið er fjörlegt cg blágrá augu hennai’ eru ögrandi. Julie er nýlega trúlofuð 24 ára kennara Don Bessant. Þegar henni ! er óskað til hamingju, verður hún eins oíg hvuanisa, o.g segir' „Ef ég á að vera alveg heiðarleg, þá get ég ekki ímyndað mér. að ég fáist til að gifta mig. Ég meina þetta, ég er aldrei hrifin af sama mann inum lenigi. Ég er viss um að ég get aldrei bundizt neinum einum manni. Og svo er líka annað, Framhald á 15. síðu. poooooooooooooo< Þrjú börn frjósa i hel ÞRJÚ börn á aldrinum þriggja til fimm ára fundust í fil. viku helfrosin inni í 'gömlum kæliskáp, sem bætt var að nota og stóð inni í birgðageymslu fyrirtækis nokfcuris í Boston. Sex ára gamall leikfélagi barnanna fann þau, er hann af tilvilj- ■un opnaði dyr kæliskápsins. Börnin þrjii voru systkinin William og Marie, fimm ára og þriggja lára og þriggja ára vinur þeirra, Jóseph. Börnin voru vön að leika sér nálægt birgðageymslunni. Það virð- ist vera, að börnin hafi sjálf .farið inn í skápinn og lokað að sér. Síðan hafi þau ekki komtzt út úr skápnum aft- ur, þap eð hann hefur ekki £ : verið hægt að opna innan frá. •ooooooooooooooot NÝLEGA lézt fyrsta konan, sem starfaði sem flugfreyja. Fún hét Marshall og var sextug að aldri, Aldurtili hennar var höfuðkúpu- brot, sem hún hlaut eftir fall af hestbaki. Ellen Marshall hóf starf sitt sem flugfreyja 1930, en áður var húni hjúkrunarkona, og sieinna, þegar hún fékk 7 aðrar flugfleyjur ,sér til hjálpar, voru þær einnig teknar úr hópi hjúkrunarkvenna. Plugmennirnir sjiálfir voru ebkert sérléga hrifnir af því fyrst í stað að konur væru að ráðskast í flug vélunum þeirra, en fljótt komust þeir þó að raun um, að þær voru ómissandi og tækju af þeim marga erfiðleika, t. d. þegar þurfti að róa hrædda farþega, hugga smábörn og annað þvíumlikt. Og núna, 35 árum eftir að fyrsta fluigfreyjan hóf starf sitt, er flugfreyjustarfið bæði vinsælt og eftirsótt starf. Hve gamalt er flugf reyjustarfiö? GLUGGINN Snyrtilegur og duglegur götusópari. Duglegir til almennra verka? ENSKI dýrasálfræðingurinn, dr. Peter Broadhurst, sem er forstöðumaður dýrasálfræðistofnunar Lundúnaháskóla, hef ur skrifað bók um hegðun dýranna og þar heldur hann fram þeirri staðreynd, að dýr séu hæf til aff taka að sér ýmiss konar störf, sérstaklega störf, sem alltaf krefjast sömu hreyfinga. Dr. Broadhurst hefur þá skoðun, að ýmsa vinnu geti dýr innt bet- ur al hendí en menn. Dúfum t. d. leiðist aldrei, þó að þær dag eftir dag safni sömu hlutunum af færibandi. Ef að um er að ræða verk, þar sem þarf krafta og svolitla umhugsun, t.d. að snúa sveif eða skrúfa skrúfur, þá eru aparnir betur hæfir tU þess. Það eina, sem þeir heimta í laun er góður matur og svo- lítið heimili fyrir sig, svo að ekki ætti neinn að kollstinga sér með að hafa þá í vinnu. Og ekki liafa þeir gert með sér nein samtök enn, og þarf því ekki að óttast verkfall af þeirra hálfu. £ 29. sept. 1965 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.