Alþýðublaðið - 02.11.1965, Síða 1

Alþýðublaðið - 02.11.1965, Síða 1
Þriðjudagur 2. nóvember 1965 - 45. árg. — 249. tbl. — VERÐ 5 KR, Húsnæðismálastjórn tíu ára HINN 22. MAÍ 1955 ivoru samþykkt lög frá Alþingx um húsnæðismálastjórn, veðlán til íbúðabygginga og útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Samkvæmt lögurri þessum var Húsnæðismálastofnun ríkisins sett á stofn og voru fyrstu lánin frá stofnuninni afgreidd hinn 2. nóvember það ár. Eru því í dag tíu ár liðin frá því að veðlánastarfsemi þessi til íbúðabygginga í landinu hófst, og af því tilefni hefur Húsnæðismálastjórn gefið nokkurt yfirlit um starfsemina á liðnum áratug. OCOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCOOOO ileiri tækni og ódýrari íbúðir Við athugun hefur komið í ljós, að á þeim tíu árum, sem stofnun- in hefur starfað, hafa verið veitt 25007 lán til íbúða, en heildarupp- hæð þeirra er kr. 834,462 millj. króna. Lánafjöldi tii hinna ýmsu byggðarlaga hefur verið mjög mis- mtinandi en langsamlega flest ián- in hafa verið veitt til íbúðabygg- inga í Reykjavík eða til 4158 í- býða. í Kópavogi hafa verið veitt lán til 906 íbúða, til 413 íbúða á Akureyri og til 407 íbúða í Hafn- arfirði. Húsnæðismálastjórn hefur enn- fremur á sama tímabili annast lán vaitingar vegna útrýmingar heilsu spillandi húsnæðis. í því skyni hafa á sl. tíu árum verið veitt 75 l;jn að upphæð samtals kr. 60,- 750 millj. króna á 612 íbúðir. Er þó þess að gæta, að sem stendur hafa verið veitt bráðabirgðalán að upphæð 16.250 millj. kr. til út- rýmingar heilsuspillandi húsnæð- is og er því heildarupphæðin í rauninni samtals kr. 77 milljónir. Á því tímabili er liér um ræðir liafa lánsupphæðirnar verið mjög misjafnlega háar. Fram til ársins 1962 var heimild í lögum til lána allt að 100 þús. kr. út á hverja íbúð, en yfirleitt var ekki unnt 1965 eiga rétt til 280 þús. króna ' lána. Lánveiting sú, sem nú er hafin verður væntanlega hin hæsta, sem fram hefur farið í sögu stofnunar- innar og aldrei hafa jafn margir umsækjendur fengið lán og vonir standa til, að nú verði unnt að veita. Þýðingarmikill þáttur í starfi Húsnæðismálastofnunarinnar er rekstur teiknistofu, en starf henn- HUSNÆÐISMALASTJÓRN hefur náð mikils 'i verðum árangri í starfi sínu síðastliðinn áratug, # . og eru framfarir siðustu ara serstaklega athygl isveðar, sagði Eggert G. Þorsteinsson, húsnæðis málaráðherra, er Alþýðublaðið átti við hann stutt viðtal í tilefni af afmæli húsnæðismála- stjórnar. Eggert var raunar formaður þeirrar stjórnar um langt árabii. Eggert sagði, að verkefni næstu framtíðar í húsnæðismálum væru að liagnýta fullkomnustu tækni til að lækka byggingakostnaðinn og bæta þannig hag almennings. Væri mikilsvert að sam eina alla krafta í byggingariðnaðinum í sókn að því marki. Þyrfti síðan að auka enn fjárútvegun til byggingamálanna til að tryggja, að íslending ar verði um alla framtíð vei hýst þjóð. <1 Framhald á 15. síðu. OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO Óskar Hallgrímsson, að lána þá nema 70 þús. kr. til hverrar íbúðar, einkanlega fyrst í stað. Árið 1962 var heimild þessi hækkuð í 150 þús. kr. á íbúð og hefur síðan yfirleitt verið reynt að veita umsækjendum liámarks- lán til hverrar íbúðar. í þeirri lán- veitingu, sem nú stendur yfir, eiga þeir umsækjendur rétt á 200 þús. kr. lánveitingu, er hófu byrjunar- framkvæmdir eftir 1. apríl 1964. Þeir umsækjendur sem hófu byrj- unarframkvæmdir eftir 1. janúar Athyglisvert nýmæli tek- ið upp í ákvæðisvinnu Reykjavík. — GO. ÞANN 29. apríl í vor var und- irrilað samkomulag milli Félags löggiltra rafvirkjameistara og Fé- lags íslenzkra rafvirkja um nýtt fyrirkomulag við ákvæðisvinnu. Á- kvæðisgrundvöllurinn er byggður á tímamælingum, sem farið hafa fram á vinnustöðum og einnig er stuðzt við hliðstæðar tímaskrár af norskum, dönskum og bandarísk- um uppruna. í ákvæðisvinnugrund vellinum fylgja ítarleg fyrirmæli um hvernig skila skal verki af sér, þannig að ekki verður hægt að ná meiri afköstum á kostnað vinnu- gæða. Félögin leituðu aðstoðar Iðnað- armálastofnunar íslands um fram- kvæmd ákvæðisgrundvallarins. — Þannig var skipuð ákvæðisvinnu- nefnd beggja félaganna í vor, en oddamaður hennar var skipaður af IMSÍ og er jafnframt formað- ur. Nefndin er skipuð þessum mönnum: Þorláki Jónssyni frá meisturum, Magnúsi Geirssyni frá rafvirkjum og Andrési Andréssyni frá IMSÍ. Nefndin hefur eignx skrifstofu og sér formaður um starfrækslu hennar. Hlutverk nefndarinnar og skrif- stofunnar skal m. a. vera sem hér segir: j Að yfirfara alla ákvæðisvinnu- Framhald á 15. síOu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.