Alþýðublaðið - 02.11.1965, Page 7
Skrifstofan er á Hverfisgötu 4.
Opin 9 — 5, nema laugardaga 9 — 12.
Gengið inn frá Hverfisgötu.
Síminn er 22710.
Pósthólf 805.
| Námskeið í
Ijóstækni
LJÓSTÆKNIFÉLAG íslands
gekkst fyrir kvöldnámskeiði fyrir
forstöðumenn og afgreiðslufólk
raftæk.iaverzlana, dagana 11.—14.
öktóber í Iðnskólanum í Rvík.
Erindi voru haldin um eftirtalin
efni: Eðli ljóssins, hugtök og regl-
ur. Kröfur til góðrar lýsingar. Frá
gangur rafbúnaðar lampa. Ljós-
gjafar og ijósbúnaður. Lýsing í
heimilum. — Auk þess var rætt
um lýsingu í verzlunum, sýningar-
gluggum, skrifstofum, verkstæð-
um, skólum og víðar.
Námskeiðið sóttu forstöðumenn
eða starfsfólk eftirtaldra fyrir-
tækja og verzlana: Dráttarvélar hf.
Electric hf., Lampinn, Rafiðjan hf.
Raforka, Raftækjastöðin, Rafha h-
f., Reykjafell hf.
Haustfundur Ljóstæknifélags-
ins vcrður haldinn 3. nóvember í
Tjarnarbúð og fjallar hann að
þessu sinni um lýsingu í heimilum.
FINNSKUR
STYRKUR
FINNSK stjórnvöld bjóða fram
styrk handa íslenzkum fræði-
manni, rithöfundi eða listamanni
til dvalar í Finnlandi til að stunda
fræðistörf eða kynnast finnskum
bókmenntum og listum. Til greina
kemur að veita tvo styrki, er nemi
hvor um sig 450 — 550 finnskun?
mörkum um allt að 4 mánaða
skeið.
Styrkumsóknum skal komið lil
menntamálaráðuneytisins, Stjórn-
arráðshúsinu við Lækjartorg, fyr-
ir 1. desember 1965. Auk almenn-
ra upplýsinga um umsækjanda
skal í umsókn tekið fram, hversu
lcngi umsækjandi hefur hug á að
dveljast í Finnlandi og greina ít-
arlega frá tilgangi fararinnar. —
Umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu.
ÆSKAN
ÆSKAN, 10. tölublað þessa ár-
gangs, er komin út. Er hún fjöl-
breytt að efni að vanda og prýdd
mörgum myndum. í blaðinu eru
sex framhaldsmyndasögur. Meðal
greina eru ávarp framkvæmda-
nefndar herferðar gegn hungri og
sagt er frá ævintýrum Churchills
í búastríðinu rétt fyrir aldamótin
síðustu. Auk þessa eru margar
sögur og fleira við hæfi barna.
Happdrætti Alþýðublaðsins leyfir sér að minna velunnara sína, sem eru
margir nær og fjær á, að sala miða er í fullum gangi.
Það verður dregið 23. desember og vinningarnir eru 3 bílar.
1. Volkswagen-bifreið kr. 150,000,00
2. Volkswagen-bifreið — 150,000,00
3. Landrover-bifreið — 145,600,00
Þetta er samtals kr. 445,600,00
Það er því til milcils að vinna. -fe Miðinn kostar kr. 100,00.
Miðar eru sendir heim ef óskað er, bara hringja og panta, og miðarnir
sendir um hæl.
Góður ðfli frá
Patreksfirði
Patreksfirði. — ÁP-GO.
HÉR hefur verið sæmilegur
afli á línu, þegar gefið hefur. 2
stórir bátar eru byrjaðir róðia,
þeir Dofri og Sæborg. Einnig eru
tveir byrjaðir frá Sveinseyri 1
Tálknafirði, þeir Sæfari og Guð-
mundur frá Sveinseyri.
Tíðarfar hefur verið risjótt og
blautt, en nú er að þorna til.
TIL SÖLU
4ra herb. íbúð hjá Byggingaj-
félagi verkamanna, Kópavog-L
Félagsmenn hafa forkaupsréit
lögum samkvæmt.
Þeir, félagsmenn er vilja no'a
forkaupsi'étt sinn, tilkynni þa<ý
fyrir 7. þ.m. til gjaldkera ’íé-
lagsins, Helga Ólafssonar f á>
skrifstofu hans á SkjóibrautÍT.
' "■ ftj í
Stjórnin. j|
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 2. nóv. 1965 J