Alþýðublaðið - 20.11.1965, Blaðsíða 11
ÞRJÁR DEILDIR
i Islandsmótinu i ktoattspymu?
í DAG og á morgun verður
háð ársþing Knattspyrnusam-
bands íslands. Ýmis merk mál
I eru á dagskrá þingsins, en tal-
ið er, að tillaga um nýtt fyrir-
komulag deildaskiptingar ís-
landsmótsins muni vekja mesta
athygli.
í tillögunni er gert ráð fyr-
ir, að leikið verði í þremur
deildum og telja verður líklegt
að tillagan verði samþykkt,
með því móti mun knattspyrn
an ná tit enn fleiri og þátt-
taka verði almennari í íslands
inótinu.
Við ræðum þessa tillögu
ekki frekar en birtum hana
eins og hún verður lögð fyrir
þingið frá milliþinganefnd, en
liana skipa Hafsteinn Guð-
mundsson, Jón Magnússon og
Sigurgeir Guðmannsson.
Breytingartillögur við 21. gr.
og 26. grein reglugerðar KSÍ
um knattspyrnumót.
21. grein.
í landsmóti 1. aldursflokks
skal þátttakandi liðum skipt í
3 deildir. 1. deild skal skipuð
6 liðum, 2. deild 8 liðum og
3. deild skal skipuð þeim að-
ilum, sem ekki eiga lið í 1.
og 2. deild.
í öllum deildum er leikin
tvöföld keppni og leikur hvert
lið 2 leiki gegn hverju hinna
liðanna, heima og heiman.
X 2. deild skal skipta liðunum
í 2 riðla. í 3. deild skal skipta
liðunum í riðla eða svæða-
keppni viðhöfð, ef þátttaka er
það mikil.
Keppni er stigakeppni. Verði
tvö eða fleiri lið jöfn og efst
eða neðst í 1. deild og 2. deild
eða efst í 3. deild, skulu þau
leika einfalda stigakeppni eða
úrslitaleik, þar til úrslit fást.
Mótstjórn ákveður keppnisstað.
Sigurvegari í 2. deild færist
næsta leikár upp í 1. deild og 1
sigurvegari í 3. deild upp í 2. j
deild. Það lið, sem fæst stig
hlýtur í 1. deild færist næsta
leikár niður i 2. deild oe neð
stu liðin í hvorum riðli 2. d.
leika aukaleik um þátttöku-
rétt í 2. deild næsta leikár.
Liðið, sem tapar, færist næsta
leikár niður í 3. deild.
Taki aðili í 1. eða 2. deild
ekki þátt í keppninni, færist
hann sjálfkrafa niður í næstu
deild fyrir neðan næsta leikár.
(Fyrsta leikár 1966 skulu öll
lið, sem luku keppni í 2. deild
1965 hafa keppnisrétt í 2. d.
Taki 9 lið þátt í 2. deildinni
1966 falla 2 neðstu liðin niður
í 3. deild næsta leikár á eftir).
26. grein.
Síðari málsgrein A-liðs orð-
ist svo: .... Fjárhagur hverr-
ar deildar og hvers flokks skal
vera aðskilinn.
Stórvibburðir í körfuknattleik:
3 landsleikir og banda-
rísk heimsókn um jólin
ÝMSIR stórviðburðir eru fram
undan hjá körfuknattleiksmönn-
um, ekki síður en handknattleiks
fólki. Dagana 19. til 26. desember
mun dvelja hér úrvalslið frá
Kentucky State Collcge og leika
einn eða tvo leiki. Lið þetta er
mjög sterkt og fróðlegt verður fyr
ir íslenzka körfuknattleiksunn-
endur að sjá Bandaríkjamennina
í leik.
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
félagsins Þróttar var haldinn 14.
nóvember sl. að Hótel Sögu.
Skýrsla fráfarandi stjórnar lá
fjölrituð frammi fyrir fundar-
mönnum ásamt reikningum fé-
lagsins. Að loknum nokkrum um-
ræðum var skýrslan samþykkt sam
hljóða.
Á síðastliðnu sumri fékk félag-
ið gamalt hús hjá Reykjavíkur-
borg, en til stóð að rífa þetta
hús. Félagið sá síðan um flutning
Þá mun pólska landsliðið,. sem
er mjög sterkt dvelja hér dagana
16, —19. janúar og leika tvo lands
leiki, en liðið er þá á leið til
Bandaríkjanna í keppnisför. Pól-
verjar eru með eitt bezta körfu-
knattleikslið Evrópu og til marks
um það má geta þess, að Pólverjar
voru í öðru sæti í síðustu Evrópu
bikarkeppni og í 6. sæti á Olymp
iuleikjunum í Tokyo.
á því inn á félagssvæðið við
Njörvasund og er nú verið að
vinna að því að taka það í notk-
un, sem bráðabirgðarfélagsheim-
ili.
Þjálfarar hafa verið ráðnir fyrir
alla flokka félagsins næsta
keppnistímabil. Mun Örn Steins-
sen úr KR þjálfa meistara og 1.
flokk.
Fráfarandi formaður Jón Ás-
geirsson baðst eindregið undan
Framhald á 10. síðu.
Loks skal þess getið, að verið
er að semja við Skota um lands-
leik eða landsleiki hér í lok jan-
úar. Körfuknattleikssambandið
verður 5 ára 29. janúar svo hér
yrði um einskonar afmælisleiki
að ræða. Ekki er endanlega búið
að ganga frá samningum við Skota
en talið er mjög líklegt að samn-
inffar takist.
Þorsteinn Hallgrímsson — fyr-
irliði landsliðsins dvelst erlend
is um þessar mundir. — Kem-
ur hann heim til að leiða lands
liðið að þessu sinni?
Ágæt starfsemi Þróttar:
Guðjón Sv. Sigurðson
kjörinn form. félagsins
Spennandi leikir
um helgina
Frá leik Vals og KR í kvennaflokki Reykjavíkurmótsins í hand
knattleik, sem lauk með sigri Vals 19 mörkum gegrn 4. í kvöld leih
ur Sigríður Sigurðardóttir 100. leik sinn með meistaraflokki Vals.
REYKJAVÍK URMÓ T/Ð-
REYKJAVÍKURMÓTINU í
handknattleik verður haldið
áfram um helgina. Á Iaugar
daginn verða Ieiknir eftir-
taldir Ieikir.
2. fl. kvenna
Ármann — Fram
Mfl. kvenna
Valur — Fram
Víkingur — KR
3. fl. karla
ÍR — Víkingur
ÍR — Fram
1. fl. karla A.-riðill
KR — Víkingur
B.-riðill
Valur — Þróttur.
Búast má við mjög skemmti
Iegum Ieikjum og þá sér-
staklega í mfl. kvenna milli
Vals og Fram. Þá má geta
þess að í þeim leik mun
fyrirliði Vals Sigríður Sig-
urðardóttir Ieika sinn 100.
leik með mfl. Vals.
Á SUNNUDAGSKVÖLD fara
svo fram 4 leikir. í 2. fl. kvenna
milli Ármanns og KR. Þá fara
fram 3 leikir í mfl. karla ÍR — KR,
Valur — Ármann o,g Víkingur —
Þróttur.
Í.R. frjálsar
Frjálsíþróttadeild ÍR efnir til
fundar á sunnudag í ÍR-húsinu
kl. 4. Sýndar verða kvikmyndir.
Jóhannes Sæmundsson ræðir um
þjálfun og einnig verða almennar
umræður.
Fram hefur nú forystu í mót
inu hefur unnið alla sína leiki tE
þessa en KR og Valur eru næstir,
hafa tapað 1 leik.
■ —-
j fo'- £ “ » i. / ir.Er - a .í H
■mÆ-J-L -^s— f IM «i
GLASGOW RANGERS hafa af-
lyst leik sínum við rússneska lið
ið Dynamo frá Moskvu, sem átti
að fara fram á Hampden Park 2,
desember. Ástæðan mun vera sö
að Rangers á fimm leikmenn J
skozka landsliðinu, sem á að leika
við Italíu í heimsmeistarakeppn- :
inni 5 dögum seinna. Eiga leih-
mennii-nir að dvelja í æfingabúðl;
um landsliðsins fyrir þann leik.
Sömu leikmenn eiga að leika fyr;
ir Skotland í landsleik gegn Waloa
næsta míðvikudag.
Ungverska landsliðið, sem tekur p
þátt í heimsmeistarakeppninni i ;
knattspyrnu, er á æfingarferðalagl
í Evrópu um þessar mundir Liðið
+a,naði í fyrradag leik gegn Lur.íl,
únaliðinu Tottenham Hotspur •
með 4 mörkum gegn 0. Áhorfend |i
ur voru 22000.
Horfur eru nú á því, að fram j
herji sænska landsliðsins og marka |
kóngur. Bo Larsoni, leggji .Vhuga •
jnannsskóna *á hilluna. Þýzka at- Ij
vinnumannaliðið Stuttgart, 'nefur:
áhuga o;g hafa Þjóðverjarnir loit >(
að hófanna á því að fá hann keypt
an.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 20. nóv. 1965
/