Alþýðublaðið - 04.12.1965, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 04.12.1965, Blaðsíða 8
Þessi ívö litlu systkin eru sakleysisleg- og hátíffleg á svipinn, og er engu líkara, en stelpan sé aff hugsa um, hvaff hún eigi nú aff kaupa handa litla bróffur í jólagjöf — fyrir pening- ana, sem hún er búin aff safna í sparigrísinn sinn. Allt þvegið fyrir jólin HÉR ÁÐUR fyrr hafa jólin verið íslendingum mikil hrein lætishátíð, og jafnvel þótt hrein lætinu hafi sums staðar verið nokkuð ábótavant, var þó alls staðar gert hreint fyrir jólin. Fram að jólunum höfðu flestir nóg að gera, því að allur bærínn var venjulega þveginn fyrir jól og einnig húsgögn og fatnaður. Þaff þótti sjálfsagt, að allt væri hreint og fágað um jólin. Byrjað var að þvo klæði, nærföt og rúm föt nokkrum dögum fyrir jól, en fæstir áttu rúmföt til skiptana og varla nærföt heldur. Var það trú manna, að þurrkur yrði þrem dögum fyrir jól eða á Þorláks messu. Var það nefndur fátækra þurrkur eða fátækraþerrir. Sumir menn vildu aldrei láta þvo askinn sinn nema fyrir jólin Þeir trúðu því, að það spillti auð sæld þeirra, ef askurinn væri þveginn, kölluðu þeir það að Þvo af sér auðinn. En þessir gömlu menn létu samt þvo askinn sinn fyrir jólin, því að það þótti ófært að borða úr óþvegnum aski á jafn dýrðlegri hátíð og jólahátíð inni. Oft var fólk í sömu flíkun um allt árið um kring og lét aldrei þvo þær nema fyrir jól NÚ Á DÖGUM finnst öllum sjálf sagt, að borðað sé hangikjöt, svið, rjúpur eða aðrir vinsælir réttir á aðfangadagskvöld eða jóladagana. Mataræði okkar ís- lendinga hefur mikið breytzt frá því sem áður var og til gamans höfum við aflað okkur upplýs inga um algengan jólamat á síð ustu öldum. Á aðfangadagskvöld var mat ur borinn fram að loknum sálma söng og jólalestri og kenndi þar margra grasa. Helzta hnossgætið hefur verið magálar, sperðlar og bringukollar, en auk þess þótti nauðsynlegt að hafa með svonefnt pottbrauð og hinn ó- missandi jólagraut. Var hann ým ist af þeirri gerð, er spaðgraut ur nefndist, stundum banka- byggsgrautur með sýrópsmjólk útá eða hnausþykkur grjónagraut ur með rúsinum í. Sums staðar hefur þó að öllum líkindum þótt meira nýnæmi að fá fisk eða hákarl um jólin í ' stað hins sífellda kjötmetis. Víðast hvar Utan við sig... BINDUR þú stundum hnút á vasaklút- inn til þess að gleyma ekki einhverju? Ef svo er þarft þú ekki að skammast þín fyrir það. Jafnvel gáfuðustu menn geta verið mjög gleymnir og viðutan. Allir kann- ast við hinar mörgu sögur um viðutan prófessora. Eitt sinn þegar Frans l. keisari veitti Beethoven áheyrn fór tónskáldið allt í einu að slá taktinn með fingrunum á hergum hans hátignar. Hann samdi nýtt lag. Robert Schumann mætti eitt sinn of seint í veizlu. Gestirnir voru setztir að borðum. Þegar hann kom inn úr dyrunum flýtti hann sér að píanóinu spilaði lagið, sem hann hafði samið á leiðinni, og yfirgaf herbergið án þess að mæla orð. Eðlisfræðingurinn Ampere átti von á heimsókn en-þurfti að skreppa í búðar- ferð. Hann hengdi því miða á hurðina og þar stóð: „Ég ér farinn." Þegar Ampere kom aftur las hann það sen\ stóð á mið- anum, varð steinhissa, gekk kring um húsið og fór burtu á ný. Danski dýrafræðingurinn Adolf Jen- sen var einnig mjög utan við sig. Hann var háskólakennari og í kennslustund kom hann með lítinn böggul, lagöi hann á kennsluborðið og sagði: „Ég kom með fræ til þess að sýna ykkur hvernig það er að innan". Síðan opnaði hann böggulinn og fjórar brauðsneiðar komu í Ijós. .Einkennilegt," tautaði prófessorinn, „mig .minnir að ég sé búinn að snæða morgunverð!" Isac Newton, sem fann upp þyngd- arlögmálið, var einnig svo viðutan að ráðskona hans varð að gæta hans eins og smábarns. Dag nokkurn varð hún að Framh. á 15,-síðu. hefnr verið gefið laufabrauð, en það er því miður að verða sjald- gæft hérlendis. Eftir að kaffi kemur til sög unnar, upp úr 1760, var farið að veita það á aðfangadagskvöld ýmist á undan matnum eða eftir. Sums staðar mun öllum hafa ver ið .gefinn kaffisopi bæði fyrir og eftir matinn. Með kaffinu voru helzt borðaðar lummur með sýr ópi eða pönnukökur. í Gilsbakka þulunni frægu er getið um te með sýrópi , en þar er senni lega átt við íslenzkt grasate. Á jóladag hefur fólki oft verið fært kaffi og ýmis’egt góðgæti í rúmið, en þann dag var venju lega skammtaður aðaljólamatur inn: Hangikjöt, pottbrauð, ostur hangiflot og smér. Stundum fvlgdi með heil flatbrauðskaka, og var hún þá lögð yfir ailt hitt. Á sumum hæium mun þó þessum matarskammti hafa verið úthlutað á aðfangadagskvöldið. Oftast var maturinn svo vel úti lát.inn, að hann entinst öll jólin, en skammturinn aUur gekk und ir nafninu „jólarefur". ÞAÐ SKAL GEFA ... Það skal gefa börnum'brauð að bíta i á jólunum, kertaljós og klæðin rauð, • svo komist þau úr bólunum, væna flís af feitum sauð, sem f jalla gekk á hólunwm, Nií er hún gamla Grýla dauð, gafsí hún upp á rólunum. Og svo var það ... kennarinn, sem vildi gjarnan gefa nemanda einum eins góðán vitnisburff og mögulegt var, en gat ekki gert betur en aff skrifa þetta. „Honum hættir til aff sofna í túnum, — en hann hrýt ur yfirleitt aldrei.“ áttunda síða ALÞÝÐU^ AÐÍÐ in, en Það þótti ekki sæma, að nokkur hiutur væri óþveginn á jólunum. — Þá þurfti allt að vera hreint. Á aðfangadag var farið snemma á fætur, öll matarílát þvegin, síðan rúmstokkarnir og hillur og stoðir, sem voru í bað stofunni. Börn fægðu hnífa spæni, skeiðar, kertastjaka og annað slíkt. Hangikjötið var soðið á Þorláksmessu eða á aðfangadag og sums Staðar voru matarílát þvegin upp úr hangikjötssoðinu. Það var márgt öðru vísi hér áð ur fyrr, heldur en það er núna, en íslendingar gera þó enn hreint hjá sér fyrir jólin. Mannsæfin Tíu ára, tel ég barn, tvítugur, umboffsgjarn, þrítugur, þrekiun maður, fertugur fullharffnaffur, fimmtugur, í staff stendur, sextugur, elli kenndur, sjötugur, hæruhvítur, áttræffur, ónýtur, níræffur, niðjaháð, tíræffur, grafarsáff. (Gamalt) Jólamatur á síBustu öldum

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.