Vísir - 06.11.1958, Page 1
T
q
i
y
48. árg.
Fimmtudaginn 6. nóvember 1958
247. tbl.
Var fiugvéíiwri
grandað?
Kúbans’ka flugfélagið tilkynn
ir, að saknað sé einnar flug-
vélar félagsins. Farþegar í
henni voru 25.
Seinast fréttist til flugvélar-
innar yfir landsvæði, sem er á
vaidi uppreistarmanna. — Þess
er skammt að minnast, að far-
þegaflugvél frá sama félagi
fórst í lendingu í flæðrmáli á
landsvæði uppreistarmanna um
seinustu helgi. Sagt var, að flug
maðurinn hefði verið neyddur
til að lenda, en uppreistarmenn
sögðu stjórnarhermenn hafa
skotið hana níður. -
Geislavirkni hefur tífald
azt hér frá 18.
Er ugglaust ai rekja til kjaritorkutiiraúna
Sovétríkjanna á Norður-lshafi.
Þetta var fyrir nokkru árum eitt af vígalegustu orrustuskipum
Breta „Anson“. Æfi þessara stóru bryndreka er ekki löng þótt
til þeirra sé kostað fé sem nemur hundruðum milljóna króna.
Anson var 15 ára gamalt þegar það var dæmt til að höggvast
upp. Orrustuskipin eru orðin úrelt hernaðartæki, segja sér-
fræðingarnir.
3Æœiin«par haia fariö Írattt
hér frá /. sept.
Eins og kunnugt er, hafa fregnir utan úr
heimi borið með sér að geislavirkni hefur
víða aukizt til muna síðustu vikurnar, og
meðal annars hefur þetta átt sér stað á Norð-
urlöndum, þar sem menn fylgjast nákvœm-
lega með þessu.
Vísir vissi til þess, að œtlunin var að hefj-
ast handa um geislamcelingar í lofti hér, og
birti raunar fregn um það á síðasta vori,
fyrstur blaða, að tœki til slíkra mœlinga
vœru í smíðum fyrir okkur í Danmörku. Taldi
blaðið þess vegna rétt að leita upplýsinga
um þetta til prófessors Þorbjarnar Sigurgeirs-
sonar, sem stjórnar þessum athugunum.
Pravda birtir „yfirlýsingu“
frá Pasternak.
Haitn kaliai* verðflaunaveif-
inguna „stjómntáflabreflflu66.
Pravda, annað aðalblað sovét-
kommúnista, hefur birt yfirlýs-
ingu frá Boris Pasternak, þar
sem segir, að veiting Nóbels-
verðlaunanna hafi verið „stjórn-
málabrella." ‘
Verðlaunaveiting þessi hafi
haft hinar óskaplegustu afleið-
ingar, segir Pasternak, og bend-
ir á, að fyrir fimm árum hafi
hann komið til greina sem verð-
launaþegi en þá hafi haffirTekki
verið búinn að skrifa skáldsög-
una um Zhivago lækni. Ennfrem
ur tekur Pasternak fram, að
hann hafi ekkert sagt um þetta
nema af frjálsum vilja!!
Svo virðist sem ofsóknum gegn
Pasternak hafi verið hætt skyndi
lega, síðan hann bað Krúsév og
aðra fyrirgefningar, en þessi yf-
irlýsing Pasternaks bendir til
þess, að stjórnarvöldin hafi neytt
hann til að semja hana eða skrifa
undir hana — hafi hann átt
nokkurn þátt í henni.
Engin innrás í Tunis
að sögn Frakka.
Herstjórn Frakka neitar því
algerlega, að nokk.uð sé hæft í
því, að franskar hersveitir
studdar skriðdrekum hafi farið
inn yfir landamæri Túnis í gær
í leitar skyni.
Birti Tunisstjórn tilkynningu
um þetta og kvað þær hafa farið
inn í nokkur þorp, m. a. þorpið,
sem Frakkar gerðu loftárás á
í febrúar s.l., en það varð mjög
til þess að spilla sambúð
Frakka og Túnismanna um
skeið. — Einn maður er sagður
hafa beðið bana en annar særst
af völdum þessarar innrásar.
Marteínn hafðí
þá ekki strokið.
Marteinn Olscn hafði bá ekki
strokið eftir allt saman. í gær-
kvöldi barst lögreglunni í
! Reykjavík tilkynning frá Litla
Hrauni að Marteinn Olscn
hefði strokið úr hælinu.
Tilkynningin var send út
strax og Marteins var saknað
um 8,30 í gærkvöldi. Síðan
fréttist ekkert þaðan að austan.
í morgun skýrði fangavörður-
inn á Litla Hrauni Vísi frá því
að Marteinn hefði fundist í
húsinu skömmu eftir að til—
kynningin var send til lög-
reglunnar. Kvað hann Martein
vera hinn rólegasta og hefði
hann ekki gert tilraun til stroks,
síðan hann kom að Litla
Hrauni.
Gelslamælingarnar hófust
hér 1. september, eða strax og
tæki þau komu til landsins, sem
von hafði verið á lengi. Var
sannarlega mál til komið, að
mælingar þessar hæfust hér,
því að geislavirkt ryk í lofti
hefur nálega tífaldast síðastliðn-
ar sex vikurnar, að því er Þor-
björn sagði í viðtali 1 morgun.
Þegar mælingarnar byrj-
uðu, var lítið af geislavirku
ryki í loftinu, en um 18. sept-
ember byrjaði það að hækka
ískyggilega og hefur síðan
tífaldast, eins og áður segir.
Reyndar hoppar þetta upp og
niður, og einnig er það að
taka fram, að tækin hafa
ekki verið stöðugt í gangi
allan tímann, því að bilun
varð á þeim og nokkuð hefur
dregizt að fá varahluti í þau.
Ekki eru enn hafnai geisla
mælingar á vatni hér, sagði pró-
fessor Þorbjörn, en sýnishorn-
um vatns hefur verið safnað um
nokkra hríð, og munu mæling-
ar á þeim hefjast á næstunni
Á Norðurlöndum hefur geisla
virkt ský legið í 10 kílómetra
hæð nokkra hríð undanfarið,
eða eftir að hinar áköfu til-
raunir með kjarnorkusprengj-
ur hófust fyrir nokkrum vik-
um. í DanmÖrku hefur það t.
d. komið í ljos, að geislavirkni
regnvatns er tíu sinnum meiri
en eðlileg geislun náttúrunnar.
Þó hafa heilbrigðisyfirvöld þar,
ekki talið þörf á að tilkynna
almenningi um þetta, þar eð
gert er ráð fyrir, að geisla-
virknin hverfi fljótt.
Eins og kunnugt er, hafa
sovézkir vísindamcnn nýlega
sprengt hverja kjarnasprengj
una á fætur annarri fyrir
norðan heimskautsbaug, og
telja Norðmenn, að sumar
sprengingarnar hafi verið
framkvæmdar aðeins um 700
km. frá horðurodda Noregs.
Finnst þeim það að sjálf-
sögðu hættulega nærri landi,
enda _ hefur geislavirkni
F'ramhald á 5. síðu
Milljónir Japana
í kröfugöngum.
Fjórar milljónir manna í
Japan lögðu niður vinnu í gær,
fóru í kröfugöngur, héldu mót-
mælafundi og flykktust að þing
húsinu.
Var þetta allt í mótmæla-
skyni við lagasetningu um auk-
in völd lögreglunni til handa.
Samgöngur lögðust niður og
vandræðaástand varð yfirleitt
á sviði samgangna og víðar.
Þetta voru mestu kröfugöng-
ur, sem sögur fara af í Japan
eftir styrjöldina.
Berjast gegn Bretum og
Oman-soldáni.
Uppreistamenn athafnasamir í Aden.
Limdúnablöðin skýra frá því
nú í vikunni, að uppreistarmenn
í Oman á Arabíuskaga'liafi haft
sig mjög í frammi seinustu daga
gegn Bretum.
Daily Mail segir, að til þeirra
berist daglega birgðir skotfæra
og matvæla frá Saudi-Arabíu og
Yemen, þeim til stuðnings i bar-
áttu þeirra gegn Bretum og sol-
dánum af Oman. Uppreistar-
menn hefjast við uppi í fjöllun-
um í Oman.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í London segir, að mjög
ýktar fregnir hafi verið um
þetta birtar, en Kairoútvarpið
hafi skýrt frá því, að Bretar
hefðu látið fallhlífalið svífa til
jarðar í Oman-fjölium, og að
brezk herflugvél hefði verið skot
in niður. Þessar fregnir hafa
verið lýstar ósannar í London.
Rétt sé að skotið hafi verið af
rifflum á brezka herflugvél, og
komu tvö skot í annan vænginn.