Vísir - 08.12.1958, Side 9

Vísir - 08.12.1958, Side 9
Mánudaginn 8. desember 1958 VlSIIt 9 Ævisaga indversks tneistara. Hvað er bak við myrkur lok- aðra augna? Paramhansa Yogananda: Sjálfsævisaga yoga. íslenzkað hefir: Ingi- björg Thorarensen. Útgef- andi: Prentsmiðjan Leiftur, Reykjavík 1952. 452 bls. Þetta er bók um yoga eftir yoga. Innblásinn bókmennta- viðburður. Hrein opinberun. í þessari bók útskýrir • ieist,- arin Yogananda af vísindalegri nákvæmni hin óræðu en fast- mótuðu lögrriál, sem yogar nota til kraftaverka og til aó cöiast sjálfstjórn. Hér birtist í fyrsta nni ævisaga raunverulegs, nd- versks yoga, rituð af i num sjálfum fyrir lesendur Vestur- landa. Yogananda er fyrsti mikli meistarinn frá Indlandi, sem dvalizt hefir langdvölum (30 ár) á Vesturlöndum. Hann stofnaði tvær óháðar trúar- stofnanir: Sjálfskönnunarfé- lagið (S. R. F.) með alþjóðleg- um höfuðstöðum í Ameríku og Y'ogoda Sat-Sanga (Y. S. S.) í Indlandi. Yogananda kenndi tugþús- undum nemenda frumatriði yoga — vísindalegrar tækni, sem vekur guðdómsvitund mannsins. Ekki aðeins í lífi, heldur einnig í dauðanum færði Yg- ananda sönnur á gildi yoga. Hann lézt í Los Angeles 7. marz 1952. Vikum saman eftir lát hans Ijómaði ásjóna hans af .ó- breyttum og fölskvalausum dýrðarljóma. Líkami hans rotn- aði ekki. Formála bókarinnar ritar W. Y. Evans-Wentz, M. A., L. Litt, Dr. Sc., Jesug. College, Oxford, sem var persónulega kunnugur meistaranurn. Bókin er prýdd fjölda mynda úr lífi Yogananda. Þar eru lit- ríkir kaflar um heimsóknir hans til Mahatma Gandhis, Ra- bindranath Tagores, Lúthers Burbanks, hins ameríska spek- ings, sem bókin er helguð, Theresu Neumann, hinnar ka- þólsku konu, sem ber merki Krists o. fl. Bók þessi hefir verið þýdd á fjölda tungumála. Það er mik- ill fengur að því, að hún skuli nú einnig hafa verið þýdd á vora tungu og eiga allir þeir, sem stuðlað hafa að hinni ísl. útgéfu þakkir skilið og þá ekki sízt frú Ingibjörg Thorarensen, sem hefir unnið hér mikið þrekirki. Haraldur Sigurðsson bókavörður hefir aðstoðað frúna og farið yfir handritið, eins og frá er skýrt í formála þýðanda. ' Allur er frágangur bókarinn- ar hinn vandaðasti og útgef- anda til sóma. Þeir, sem lesa þessa bók, munu geta tekið undir orð Thomasar Manns, Nóbelsverð- launahandhafans, er hann sagði: „Eg er yður þakklátur að hafa leyft mér að skyggnast um í þessari töfrandi veröld.“ Þar er alltaf eitthvað að gerast. „Sjö skip 09 sín ögnjti af hverju11. Sigurður Haralz: Sjö skip og sín ögnin af hverju. 210 bls. Útgefandi: ísafoldar- prentsmiöja h.f., Reykja- vík 1958. Það er senn aldarfjórðungur, síðan fyrsta bók Sigurðar Har- alz kom út, og á tæpum tíu ár- um sendi hann frá sér þrjár bækur — Lazzaróna, Emigranta og Nú er tréfótur dauður — en nú hefir verið algert hljóð úr þeirri átt í fimmtán ár. Þeim, sem lásu fyrri bækur hans, þótti í rauninni leiðinlegt, að Sigucður skyldi hafa lagt penn- ann -til hhðar, en nú er komið á daginn, að hann hefir ekki gert það með öllu. Sigurður hefir sagt svo frá í viðtali í blaði, að hann hafi verið uppreistarmaðyr í æsku, og þess vegna lagði hann land undir fót, eða fór öllu heldur í ■ siglingar, flæktist. um allan heim og lenti í mörgu misjöfnu. Lesendur fyrri bóka hans. eru kunnugir flakki hans, og hér 24 undfrstööuafriöi 100 myndir r ... Ef þér viljið gera starf yðar, eða starfsmanna yðar,,Iéttara og. auðunnai'a. Þá lesið bókina Léttið störfin. Ódýr og nytsöm jólagjöf, sem fæst hjá öllum bóksöium. Útg. IMSÍ. 40 hfcösíður Kostar aBeins 20 kr. SKRIFSTOFUSTULKA ÓSKAST frá næstu áramótum. Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf o. s. frv. sendist Sambandi smásölu- verzlana, Laugavegi 22. segir hann frá nýjum ævintýr- um á sjö skipum, sem hann sigldi á víða um heim. Kaflaheitin í bókinni gefa greinilega til kynna, að margt hefir drifið á dagana, og má geta nokkurra: Þrumuveður — hrátt kjöt og bókmenntir, Uppreisnin út af náðhúsinu, Enskur aðalsmaður og kjálka- brotinn Kínverji, Hjá mellu- konsúl í San Juan, Negraveizla á Haiti, Dýr í búrum — þil- farsfarþegar og margt fleira. í þessari bók Sigurður er alltaf eitthvað að gerast, en það virðist augljóst af öllu, að hann er ekki að lita eða krydda frásagnir sínar til þess að þær gangi betur í lesendur. Hann segir blátt áfram frá, án þess að ýkja, en hann er heldur ekki ragur við að láta allt fara eins og það gerðist, þótt það sýni hann ef til vill ekki I eins skemmtilegu ljósi og margir mundu vilja, sem vilja vera engilhreinir þrátt fyrir volk og slai'k. Þeir eru annars orðnir fáir íslendingar, sem kunna að segja frá slarki, flakki og flæk- ingi eins og Sigurður Haralz. Þess vegna er tilbreyting að bók hans, skemmtileg tilbreyt- ing, sem verður vafalaust mörgum til ánægju, eins og þeim, sem þetta skrifar. Ög ekkert væri á móti því, þótt hann gæfi ísafold kost á að gefa út eitthvað meira af svo góðu. J. Skeyti til Garcia eftir Elbert Hubbard, gefið út árið 1899 mun vera það rit, sem mesta útbreiðslu hefur hlotið af veraldlegum ritum. Eintakafjöldinn nemur um 85 milljónir, og hefur rit þetta verið. gefið út á 25 þjóðtungum. Útdráttur frá ísler.zkum blaðaummælum: „Bókin er hin þarfasta hugvekja til allra borgara þjóðfélagsins“. „Allir ættu að lesa hana, og allir mundu hafa gott af því.“ i „Tii eru menn, sem heíur crðið oftar hugsað til þessarar bókar en flestra bóka annarra, sem þeir hafa lesið. í rauninni eru .til aðeins .þr.ennskonat’ menn. Þeir, sem koma skeyti til Garica,. og hinir, sem ekki herða sig að því, eða eru þess ekki um- komnir.“ „Og einhvern veginn er það svo, að ekki er síður þörf fyrir boðskap hennar nú en áður, nú þegar öldin virðist sérhlífnari en góðu hófi gegnir, en jafnframt kröfuhörð til annars fremur en sjálfs, sín.“ „Þess vegna mætti bcðskapur þessarar litlu en víð- frægu bókar hejzt ekki fara fram hjá nokkru ung- menni — nokkrum manni.“ •Nú er þessi litla en íræga bók. komin út i annari útgáfu einkar snoturri. Fæst hjá bóksölum í Reykjavík og nágremii. Atr. JQLAOJAFIR Estrelía skyrlur Sportskyrtur hvítar.,— mislitar ,;ÐoubIe Tv/o“ Teryleneskyrtur . . sem.aldrei barf að .straua — aukaflibbi Peysur S o k!: a r N æ r I ö t Hálsbindi Fatatöskur Plaat-fatahlífar FALLEG FLSK Æ»AISFÆSTA &JÍÞFSX

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.