Vísir - 17.12.1958, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Lótið hann fœra yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
..IJL
Stmi 1-lfi-fíO
Munið, að þeir, sem gerast éskrifcndur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-tíO.
Miðvikudagir.n 17. desember 1958
Þ¥§ttnr — al ver&næt!
Tvelr éEvað!:
slásast.
Fyrir rúmri viku hvarf þvott-
iir að verðmæti 10—15 þús.
kr .iiur og er lögreglan nú að
lei-.; þvottarins.
Þessu þvottahvarfi er þann-
ig i.áttag að þann 8. þ. m. send-
ir Hótel Akranes þvottasend-
ingu mikla um þorð í m.s.
Akraborg, sem þá var áleið til
Reykjavikur, Þvotturinn átti að
fara í Borgarþvottahúsið og
hafði því verið tilkynnt um að
þvotturinn væri á leiðinni og
það beðið um að vitja hans þeg-
ar skipið kæmi til Reykjavíkur.
Bill var sendur frá Borgar-
þvottahúsinu þegar eftir komu
skipsins, en þá fannst þvottur-
inn ekki og hefur ekki fundizt
svo vitað sé síðan.
í sendingunni var 71 hvítur,
stór borðdúkur, 18 handklæði,
17 sængurver, 29 koddaver og
17 lök ’og verðmæti þvottarins
í heild talið 10—15 þús. kr.
virði.
Lögreglan telur möguleika á
því að þvottasendingunni hafi
verið skipað upp á hafnarbakk-
ann strax við komu skipsins
og þar hafi pakkinn verið tek-
inn í misgripum eða misgán-
ingi.
Biður rannsóknarlögreglan
þá, sem kynnu að hafa orðið
þessarar sendingar varir, eða
gætu gefið einhverjar upplýs-
ingar í máli þessu, að láta hana
vita þegar í stað.
Tveir ölvaðir
menn slasast.
Um hálf tíuleytið í gærkveldi
tilkynnti strætisvagnastijóri lög-
reglunni að í vagni hans væri
ölvaður maður slasaður. Lög-
reglumenn fóru á staðinn og
kvartaði maðurinn þá undan
þrautum í hægra fæti og kvaðst
illa geta hreyft sig.
Maðurinn var fluttur í slysa-
varðstofuna og meiðsli hans
könnuð. Kom í ljós að fóturinn
var brotinn fyrir ofan hné.
Annar ölvaður og slasaður
maður var flutíur í slysavarð-
stofuna til aðgerðar. Hafði sá
brolið rúðu í húsi með því að
reka hnefann í gegnum rúðuna
og skarst við það mjög illa á
hendinni. Varð að sauma
marga stóra skui’ði á hendi
hans saman.
reknetabátum.
Frá fréttaritara Vísis.
Akranesi í morgun.
Ellefu bátar lögðu liér upp
1800 tunnur síldar í gær, en fói-u
ekki út aftur í gærkvöldi vegna
þess hve veður var vont, storm-
ur af norðaustri og frost.
Afli var með ágætum aðeins
tveir bátar voru með minni afla
en 100 tunnur. Nokkrir bátar
urðu fyrir netjatjóni. Vonin 2.
tapaði 35 netum og nokkrir slilu
trossurnar frá sér en fundu þær
þó aftur. Reknetabátarnir voru
aðallega í tveimur hópum og var
síld að finna frá 15 sjómílum að
35 sjómilum út írá Skaga. Mikil
síld virðist enn vera hér við
landið og eru gæði síldarinnar
enn upp á það bezta.
Tvö skip eru að taka sjávaraf-
urðir til útflutnings. Annað lest-
ar 500 lestir af frosinni síld og
hitt tekur 1500 tunnur af salt-
síld.
□ Tvær stúlkur á Kýpur hafn
verið dæmdar í níu niánaða
fangelsi livor fyrir að liafa
liaft sprengjur i fjórum sín-
um.
Islendingar mestu olíu
notemliir í
■
...
Ljón að gjóf til ljónsins, en ljónið sem fær gjöfina er efnaverk-
smiðjan Lövens kemiske fabrik i Kaupntannahöfn. Fyrirtækið
var 50 ára um daginn.
Stóraukin smjör- og osta-
framleiðsla síðustu árin.
A síðasta ári framleiddu Islendingar
530 lestir af sælgæfi..
Smjörframleiðsla mjólkur-
búa á landinu licfir aukizt um
nær þriðjung á árabilinu
1953—57, og framleiðsla á
mjólkurostum um nær hehn-
ing.
í fróðlegu yfirliti, sem nýút-
komin Hagtíðindi birta um
framleiðslu nokkurra iðnaðar-
vara á árabilinu .1953—1957
er skýrt frá, að smjörfram-
leiðslan í landinu hafi auliizt
úr 644 lestum í 940 lestir, og
framleiðsla á mjólkurostum úr
452 lestum í 805 lestir. Aukn-
ing á skyrframleiðslu er nokk-
ur og sama gegnir um undan-
langmest aukning á framleiðslu
undanrennudufts, eða úr 69
lestum árið 1953 í 363 lestir ár-
ið sem leið. Framleiðsla á
mýsuostum hefir minnkað
stórlega á þessu tímabili, eða
úr 72 lesturn í 42 lestir.
Árið 1953 voru framleiddar
458 lestir af sælgæti í landinu,
en á síðasta ári 530 lestir. Mest
hefir framleiðslan aukizt á kon-
fekti og hlutfallslega allmikið
á lakkrís, en minnkað talsvert
á átsúkkulaði.
Framleiðsla á kaffibæti hef-
ir minnkað til muna eða úr 216
lestum í 165 og framleiðsla á
Notkunin er meiri en
árlega — meiri en
íslendingar hafa löngum
beitt liöfðatölu reglunni til að
sanna fyrir sjálfum sér og öðr-
um að þeir standi öðrum þjóð-
um framar, en það eru fleiri
sem nota þessa góðu og gildu
reglu og hér koma þau tíðindi
frá hinu heimsfrœga Shell
olíufélagi að íslendingar eigi
metið í olíunotkun samkvœmt
þessari reglu.
Þrátt fyrir mikla rafmagns-
notkun eru Norðurlönd einna
mestu olíunotendur í heimi og
standa jafnfætis Ástralíu og
3150 ðétrar á marni
í Bandaríkjunum.
Grænlandi. Aðeins Bandaríkin
og Kanada nota meiri olíu en
áðurnefnd lönd. Meðal olíu-
notkun á mann í Bandaríkjun-
um og Kanada er 2475 til 2700
lítrar á ári en íslendingar slá
allt út i þessu þar er olíunotkun
á mann 3150 lítrar á árí.
Heimsframleiðslan á olíu hef-
ur stórlega aukist á síðari árum.
Árið 1920 var hún 100 milljónir
tonna, 19#ívar hún komin upp
í 354 milljónir tonna og á 11
síðustu árum jókst hún upp í
750 milljónir árið 1955.
rennu til kasein-framleiðslu. smjörlíki hefir líka dreg'izt
Hins vegar er hlutfellslega | nokkuð saman. Framleiðsla á
-----------------------------| gosdrykkjúm hefir aukizt
verulega, eða úr 1673 þús. lítr-
um í 2830 lítra og maltoli úr
506 þús. lítrum í 848 þús. lítra.
Framleiðsla á öðru öli hefir að
mestu staðið í stað.
Hér er aðeins getið nokkurra
vörutegunda, en í ýmsum
flokkum vantai’ samanburð á
framleiðslu fyrra árs.
Skáldsaga eftir íslending
í 2. danskri útgáfu.
Árið 1942 kom út í Danmörku
skáklsagan „Dalen“ eftir Þor-
stein Stefánsson og' lilaut höf-
undur II. C. Andersens verðlaun
in fyrir hana það ár.
Tveimur árum siðar var hún
gefin út hér hjá Bókfellsútgáí-
unni í íslenzkri þýðingu Fríðjóns
Stefánssonar.
Nú nýlega hefur bókin, sem
var með öllu uppseld, verið gef-
in út aftur i Danmörku, litið
eitt breytt og ber heitið „Den
Gyldne Fremtid". Nokkur eintök
munu hafa borizt í bókaverzlan-
ir hér.
Jólasveinn færir
mönnum gjafir.
Bókaverzlunin Bókhlaðan á
Laugavegi fitjar upp á því ný-
mæll nú um jóhn, að senda
skrautbúinn jólasvein á að-
fangadag með gjafir, sem
JólabjLdge:
ur sg ja-
hami cfstií'.
Bridgefélag Reykjavíkur
gengst fyrir „jóla-tvímenhings
keppni“ um þessar mundir.og
verða spiiaðar tvær umferðir.
Há peningaverðlaun eru fyrir
þrjú fyrstu sætin og riðilsveiö-
laun au auki.
Eftir fyrstu umferð eru þesr-
ir efstir:
1. Ásmundur Pálsson og Jó-
hann Jónsson 248 stig.
2. Guðlaugur Guðmunss. og
Kristján Kristján.sson 246 stig.
3. Stefán Guðjohsen og
Gunnl. Krisjánsson 244 stig.
4. Róbert Sigmundsson og
Guðjón Tómasson 238 stig.
5. Ingólfur Isebarn og Guð-
mundur Ólafsson 237 stig.
6. Jakob Bjarnason og Rafn
Sigurðsson 229 stig.
7. Ásbjörn Jónsson og Stef-
án Stefánsson 228 stig.
8. Björn Jónsson og Ragnar
Halldórsson 227 stig.
9. Einar Þorfinnss. og Gunn-
ar Guðmundsson 227 stig,
10. Sveinn Ingvars. og Ing-
ólfur Ásmundsson 225 stig.
Flokkaglíman:
Ármann sigr-
aði í 1. fl.
Flokkaglíina Keykjavíkur var
liáð að Hálogalandi í gærkvöldl
og fór í hvívetna hið bezta fram,
en áliorfendur voru þvi núður
næsta fáir.
Úrslit í eiustökum flokkum
urðu sem hér greinir:
1. flokkur (yfir 80 kg.).
1. Ármann J. Lárusson 3 v.
2. Kristján H. Lárusson 2 —
3. Hannes Þorkelsson 1 —
2. flokkur (7n—80 kg.).
1. Gu.ðmundur Jónsson . 4 v.
2. Hilmar Bjarnason 3 —
3. Sigmundur Ámundas'on 2 —
Sigmundur er eini Ármenning-
urinn í þessum hópi, hinir eru
allir úr Ungmf. Reykjavíkur.
Drengjafiokkiir.
1. Guðmundur G. Þórarinss. 3 v.
2. Gunnar Pétursson 2 —
3. Sveinn Sigurjónsson 1 —
Unglingaflokkur.
1. Garðar Erlendsson 3 v.
2. Gunnar Sigurgeirsson 2 —
3.. Jón B. Sigurjónsson 1 —
Mótið hófst með ávarpi Skúla
Norðdahls, en Rögnvaldur Gunn-
laugsson formaður Glímuríðs
Reykjavíkur afhenti verðlaun að
glimu lokinni og sleit að svo
búnu mótinu.
keyptar eru í verzluninni. Er
verzlunin þegar farin að taka
við slíkum bögglum, eða út-
búa þá, sem síðan verða send-
ir heim til fólks kl. 2—6 á að-
fangadag. Verða slíkir pakkar
teknir til afgreiðslu til 22. des-
ember.