Vísir - 23.01.1959, Side 11
Föstudagimi 23. janúar 1959
V í SIR
3!
SOLEN \
Svona lííur rússneska eldflaugin út. Myndin er af líkani sem var til sýnis í Prag. Teikningin
sýnir braut eldflaugarinnar. Hún fór fram hj á tunglinu í 7 þúsund kílómetra fjarlægð og
hélt áfram í sólarátt. Rússarnir vona að Iiún fari inn á braut umhverfis sólina og liringsóli
bar eins og punktalínan sýnir.
í Danntörkti eru viðskipta-
horfur taldar óvissar,
þrátt fyrir aukin viðskipti ’58 og
met-gjaldeyrisforða nú.
Frá fréttaritara Vísis.
Khöfn í gær.
Verzlun Danmerkur við
öinuir lönd var að ýmsu leyti
hagstæð á s.I. ári og hafði bæt-
andi áhrif á efnahag landsins,
en óvissa um Vestur-Evrópu-
viðskipti og viðskiptaáætlanir
voru Hess valdandií að verr
horfði um utanríkisverzlun
Dana £ ársbyrjun.
Einn af sérfræðingum lands-
ins í efnahags- og fjármálum,
Hans Muus verzlunarráðsfor-
maður, hefur kveðið svo að orði,
að það sem allt sé í rauninni
undir komið, sé það, hvort á-
fram sé hægt að halda opnum
erlendum mörkuðum fyrir
danskar landbúnaðar- og iðn-
aðarvörur. Stjórnmálalega og
efnahagslega skoðoð, gæti það
haft hinar háskalegustu afleið-
ingar, ef stofnun sameiginlegs
anarkaðs Vestur-Evrópuland-
anna sex (Beneluxlandanna —
Frakklands, Ítalíu, V.-Þýzkal.,
Hollands, Belgíu og Luxem-
bourg), yrði til þess að Evrópu-
þjóðirnar skipuðu sér í flokka
í stað þess að starfa allar sam-
an. Samkomulagsumleitanir
nni frjálsari aðgöngu að mörk-
Oðum eru hinar mikilvægustu,
jneð tilliti til möguleika Dana
á auknum viðskiptum og efna-
hagslegrar framtíðar landsins.
landsins.
Aðrir sérfræðingar hafa rætt
málið mjög í sama dúr, en al-
tnennt virðast menn þeirrar
skoðunar, að hversu erfiðar
*em samkomulagsumleitanir
«m frjálsari viðskipti landanna
i OEEC (Efnahagsstofnun Ev-
rópu) verði, verði að finna
■lausn á vandanum, og það muni
takast.
C. V, Jemert, formaður
Kaupmannafélagsins, segir m.
„Það gæti varla talizt raun-
hæft, að gera ráð fyrir því, aú
Vestua-Evrópa gæti til lengd-
ar verið klofin efnahagslega,
þannig, að þjóðirnar skipuðu
sér í flokka, og hver flokkur
reyndi að vinna að sínum við-
skiptalegu hagsmunum. Stjórn-
málalega er svo mikið í húfi,
að fyrir þetta mun verða girt.“
Viðskipti juk-
ust 1958.
Gjaldeyrisaðstaða Danmerk-
ur gagnvart öðrum löndum
batnaði árið sem leið vegna
aukinna vióskipta, um 750
millj. kr., þrátt fyrir óhag-
stæða verðlagsþróun, að því er
snerti landbúnaðarframleiðslu,
eins og kjöt, flesk, mjólkuraf-
urðir og egg, og talsvert minni
tekjur af farmgjöldum. Á hinn
bóginn var mikil bót að því, að
uppskeran 1957 hafði reynzt
svo mikil, að mjög dró úr eftir-
spurn á innfluttu korni og öðr-
um fóðurvörum og tilbúnum
áburði.
Útflutningur
iðnaðarvarnings.
Útflutningur á iðnaðarvarn-
ingi var vel viðunandi, á að
gizka 4000 milj. kr. að verð-
mæti, að um það bil helm-
ingur alls útflutningsins, en
svo er hins að geta, að það var
ekki fyrr en seint á árinu 1958,
að framleiðslan varð meiri en
hún var sömu mánuði 1957, og
ekki verour um neina verulega
framleiðsluaukningu að ræða
fyrir árið í heild, miðað við
1957. — Aage L. Rytter, for-
maður danska iðnráðsins, hef-
ur vakið athygli á nauðsyn þess,
að iðnaðurinn verði efldur, til
þess varanlega að leysa efna-
hagsvandamál Danmerkur.
Hann Iagði áherzlu á, að sam-
keppnin yrðí harðari,: hyernig
svo sem færi um Vestur-Ev-
rópumarkaðsáformin. í ný-
birtri OEEC skýrslu er og lögð
áherzla á, að hraðari iðnþróun
í Danmörku yrði mikilvægt at-
riði danskrar efnahagsstefnu.
Kaupskipaflotinu.
Hér koma og til greina óviss-
ar- horfur um hag kaupskipa-
ftotans. Tekjur af farmgjöldum
1957 námu kr. 1.750 millj. kr.,
en lækkuðu talsvert árið sem
leið og horfurnar óvissar.
Gjaldeyrisforðinn.
Gjaldeyrisforði þjóðbankans
og verzlunarbankanna nam
1180 millj. kr. um miðbik þessa
mánaðar — og er það met i
þessu andi — en efnahags-
sérfræðingar margir hafa látið
í ljós, að þar fyrir mætti ekki
síaka neitt á ráðstöfunum, sem
gerðar hafa verið fjárhags-
stefnunni til stuðhings.
Engin skattalækkun.
Forsætisráðhen’ann, H. C.
Hansen, hefur í ræðu varað við
oftrausti og lagt áherzlu á, að
farið væri gætilega, og hann
kvaðst ekki geta lofað neinni
skattalækkun hvorki 1960 eða
1961. Verðlagsskilyrði, bæði að
því er varðar útflutning og
innflutning, gætu tekið skjót-
um breytingum, og gjaldeyris-
forðinn þannig etast upp.
Kvefið hefur
ekki komið!
Stærsti lyfjaframleiðandi
í Brctlandi, fíoots Pure Drug
Company, sagði fyrir
nokkru upp 100 manns, sem
starfa þó ekki lijá fyrirtæk-
inu að staðaldri, en vinna í
eirmt vcrksmiðju þess, þegar
mikið er að gera. Mann-
fjölda þessum var sagt upp,
af því að veðurfar hefrr ver-
ið sérstakiega gott í Bret-
laudi til skantms tíma. svo
að kvefIj’f fcafa wér fekkért
FELAG STÓREIGNA-
SltATTStGJAIRfNDA
Framhaldsstofnfundur félagsins verður haldinn í Tjarnar-
oafé (niðri) mánudaginn 26. þ.m. og hefst kl. 8 síðdegis.
Til umræðu verður:
a) Efiing samtaka meðal stóreignaskattsgjaldenda, til þess.
að fá eignatökulögin, nr. 44/1957, numin úr gildi.
b) Hvern.ig réttast sé fyrir stóreignaskattsgjaldendur að
snúast við innheimty hins svonefnda skatts.
Þess er vænst, að sérhver stóreignaskattsgjaldandi vilji að-
stoða félagið í baráttu þess fyrir a-fnámi þessara laga og.
niðurfellingu skattsins. — En bezta og auðveldasta aðstoðin
er, að ganga í félagið, — að mæta á fundum þess, — og
Iiafa samband við skrifslofu þess. Sími hénnar verður fyrst
um sínn 14964.
Frummælandi á fundinum verður Páll Magnússon, lög-
fræðingur.
Stjórn félagsins.
Sjómannafélag Reykjavíkur
AÐALFUNDUR
Sjómannafél. Reykjavíkur verður haldinn sunnudaginn 25-
janúar 1959 í Iðnó og hefst kl. 13,30 (1,30 e.h.)
Fundarefni:
1. Félagsmál.
2. Venjuleg aðalfundarstorf.
3. Önnur mál.
Fundurinn er aðeins fyrir félagsmenn er sýna skírteini við-
innganginn.
Stjórnin.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
AÐALFUNDUR
verður haldinn í Sjómannafélagi Hafnarfjarðar sunnu-
daginn 25. janúar kl. 2 e.h. í Verkamannaskýlinu.
Ftindarefni:
Venjulcg aðalfundarstörf. '
Lagabreytingar.
Stjórai®. * ; .