Vísir - 07.02.1959, Side 1
49. árg.
Laugardaginn 7. febrúar 1959
31. tbl,
Vorveður á Hólsfjöllum.
Flugvél lenti á Grímsstöðum til að
flytja farþega og sjúkling.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri * gær.
Frá Grímsstöðum á Fjöllum
var símað að bar hafi verið
samfellt þíðviðri í heila viku
með 4—7 stiga hita jafnt að
nóttu sem degi.
Sjó hefur mikið til tekið upp,
en jörð er svelluð. Fé hefur
verið beitt á hverjum degi og
er það að mestu leyti fóðrað á
síldarmjöli.
Fyrir nokkrum dögum lenti
Björn Pálsson flugmaður flug-
vél sinni á Grímsstöðum, tók
þar farþega og flaug með hann
til Vópnafjarðar. í bakaleið
lenti hann einnig á Grímsstöð-
um og þá til þess að taka
sjúka konu frá Víðidal, sem
hann flutti itl sjúkrahússins á
Akureyri.
Um síðustu helgi var efnt til
Þorrablóts Fjallamanna að
Grímsstöðum. Hefur þeirri
venju verið haldið við í mörg
ár að efna til Þorrablóts á
Grímsstöðum í upphafi Þorra.
Stundum hefur þó blótdagur-
inn dregizt af völdum óveðurs
eða ófærðar og svo var í ár.
En um síðustu helgi varð kom-
izt á jeppum frá öllum bæjum
á Fjöllum og einnig frá Möðru-
dal og Víðidal, sem annars eiga
oft erfitt með samgöngur að
vetri til.
Varð þarna veizlugleði hin
mesta, enda tjaldað því sem til
var þ. á m. Hólsfjallahangi-
keti, súrum bringukollum og
öðru lostæti. Skemmtiatriði
voru nokkur og stiginn dans
fram eftir nóttu.
Oft koma gestir úr fjarlægari
hreppum á þessi Þorrablót
Fjallamanna, en af því varð þó
ekki að þessu sinni vegna
þungrar færðar.
Það er algengt, að menn dundi við að smíða flugvélalíkön heima hjá sér, en sjaldgæft getur
það víst talizt, að menn smíði þar flugvélar, sem geta borið mann. Það eru þó ensk hjón, John
Taylor og kona hans, að gera á heimili sínu í Essex. Flugvélin er einsessa, og þegar ósvikinn
flugmaður hefur prófað hana, ætlar Jolin sjálfur að bregða sér á loft.
Annar kaldasti janúar hér
á þessari öld.
Aðeins var kaldara í janúar frosta-
veturinn 1918.
Skipstjóri Valafells treysti sér ekki
til ail véfengja mælingar Þórsmanna.
Ratsjá hans var i ólagi og
hann treysti þá á dýptar-
mæli.
Frá fréttaritara Vísis. — Seyðisfirði í gærkvöld.
-Réttarhöldin yfir Ronald Pretious, skipstjóra á Valafell, hóf-
ust ekki fyrr en kl. tvö eftir hádegi í dag, og þegar komið var
fram á sjötta tímann var sýnt, að dómur yrði ekki kveðinn upp
fyrr en á morgun (laugardag).
Meðalhiti janúarmánaðar
1959 í Reykjavík reyndist
—3.8°, og hefur janúar aðeins
einu sinni orðið kaldari það
sem af er öldinni, en það var
1918.
Þá varð meðalhitinn —7.3.
Peron
kominn til Bilbao. *
Fregn barst um það síð-
degis í gær, að Peron fyrrum
einræðisherra í Argentinu, væri
kominn til Bilbao á Spáni.
Kom hann þangað á snekkju
nokkurri, er lét í haf frá Haiti
fyrir rúmum hálfum mánuði.
Ekki var vitað, að Peron væri
á snekkjunni, og var allt á
huldu um hann, þar til það
fréttist, að hann væri kominn
til Spánar. Lýðveldissinnar í
Argentinu óttuðust mjög, að
hann mundi laumast inn í Arg-
entinu og ná völdum, og það
mundi hann sennilega hafa
reynt, ef verkföllin, sem brut-
ust út, um það bil, er Frondizi
forseti fór til Bandaríkjanna,
hefðu borið tilætlaðan árang-
ur.
Nú mun Peron sjá, að von-
laust sé fyrir hann að komast
-aftur til valda, og hefur yfir-
gefið Vesturálfu fyrir fullt og
állt, lagt þar niður laupana,
og hyggst gista að Franco ein-
raeðisherra á Spáni.
Árið 1920 varð janúar álíka
kaldur og að þessu sinni. Alla
daga fram til 24. að 12. undan-
skildum var hitinn neðan við
frostmark allan sólarhringinn
og á hverjum sólarhring fór
fróstið niður fyrir —5°.
Kaldast varð aðfaranótt 21.,
—12.7*. Frá því á nýársdag og
fram til 23. var úrkomulaust,
en síðustu dagana rigndi tölu-
vert og varð heildarúrkoma
mánaðarins 39 mm, en í með-
alárferði mælist úrkoman í
Reykjavík 92 mm í janúar. Á
Akureyri varð mánaðarhitinn
—5.7° og hefur einu sinni orð-
ið dálítið eitt kaldara þar síðan
1918. Þar var 1936, —6.0°.
Sólskin hefur aldrei fyrr mælst
jafn mikið í janúar í Reykja-
vík. Sólskin mældist nú 58.2
klst. Mest áður 39.2 klst. 1955.
Mælingar hófust árið 1923.
Þegar klukkan var farin að
halla í tvö, var bátur sendur
frá varðskipinu Þór út að tog-
aranum, sem hafði ekki enn
lagzt að bryggju, og sóttu
varðskipsmenn Pretious skip-
stjóra, svo að hann kæmi í
réttinn í tæka tíð.
Var komið með skipstjóra í
réttarsalinn, sem er í gömlu
húsi á bakka Fjarðarár,
skömmu fyrir klukkan tvö og
Erlendur Björnsson bæjarfógeti
setti réttinn klukkan tvö. Mik-
ill' ’fjöldi manna hefir verið í
réttarsalnum í allan dag, því
að mönnum leikur að sjálf-
sögðu forvitni á að vita, hvern-
ig hinn ákærði hegðar sér, og
hvaða spurningar verða lagðar
fyrir hann. Sturdum er þögn-
in svo mikil ; salnum, þegar
ritarinn er að bóka það, sem
fram hefir farið, að næstum
má heyra flugu anda. Þó
heyrist dálítill niður frá
Fjarðaránni, ef menn leggja
við hlustirnar.\
Ronald Pretious skip-
stjóri er maður lágvaxinn
| og býður af sér góðan
‘þokka. Hann er af þeirri
gerð manna, sém margir
mundu kalla sveitamann,
og sennilega er óhætt að
segja, að áheyrendur i rétt-
iirsalnum liafi samúð með
honum. Þar eru ill örlög,
sem hafa ráðið því, að hann
er þarna.
Réttarhaldið byrjáði á því,
að lesið var ákæruskjalið gegn
Pretious og lögð fram gögn í
málinu. Eins og' frám hefir
komið, sýna mælingar skip-
herrans á Þór, að Valafell var
0,8 mílur innan 4ra mílna
landhelginnar, og hafði verið
: staðfest af brezkum sjóliðsfor-
i ingjum, að rétt væri mælt af
hálfu íslendinga.
Viðurkenndi Pretious, að
þetta mundi vera rétt, en hafði
þó við það að athuga, að hann
hefði haldið, að hann væri
miklu lengra frá landi eða
hálfa, áttúndu mílu. Hefði
hann ekki vitað betur, því að
Framh. á 2. s.íðu.
Spánverjar slá íslendingum alveg við.
Þeirra svaréamarkaðs-verð a bílum er Iiærra en her.
Þið lialdið, að „prís-
arnir“ hér séu liáir, og
þið segið, að J>eir séu
víst hvergi eins ofsa-
lega ferlegir og hér á
landi. En verið bara
rólegir, gððir hálsar,
því a/3 Spánverjar slá
okkur alveg út — i
svartamarfcaðsverði á
bilum. Spánverjar
liafa nefnUega neyðst
til að draga mjög úr
innflutningi bifreiða,
og eðlileg afleiðing er
stórimi hækkað verð-
lag. Árið 1956 voru
fluttir inn 16,094 bilar,
en árið eftir aðeins
3332, og gert er rúð
fyrir, að iunllutaúng-
urinn hafi MiimukaS
enn á sl. ári. — Og þá
er svo lítið sýnishorn
af verðlaginu, eins og
Sunday Times í Lond-
on sagði frá því sl.
sunnudag. Fyrir stór-
ar gerðir bandarískra
og brezkra bíla borga
meiui nú milljón pes-
eta eöa sem svarar
6M.H0 istewdoun kr..
þegar reiknað er með
yfirfærslugjaldi. —
Lægsta verð á .20 ára
bílum — til dæmis
Austin-7 — er 18.000
krónur, en tíu ára
Morris Minor fer ekld
fyrir minna en 105.000
krónur.