Vísir


Vísir - 13.02.1959, Qupperneq 1

Vísir - 13.02.1959, Qupperneq 1
12 síður 12 síður 49. árg. Föstudaginn 13. febrúar 1959 3S. tbl. Bryggjan í Þorlákshöfn var í kafi í óveðrinu í gær. íslelfi bjargað frá ai reka upp. Frá fréttaritara Vísis. Selfossi i morgun. Frátt fyrir suðaustan fárviðri varð ekkert tjón af völdum veð- ursins hér austanfjaUs. Þó mun- aði minnstu að vélbátinn ísleif ræki upp í Forlákshöfn og það var aðeins fyrir harðfylgl skip- verja að bátnum varð bjargað. Þorlákshafnarbátar reru í fyrri- nótt en komu snemma aftur úr róðri og var gengið frá bátun- um eins og venjulega. Storminn herti stöðugt er á daginn leið og fylgdi honum mikið flóð. Á suð- austan stendur beint inn í Þor- lákshöfn, og er það langversta áttin hér. Bátarnir dönsuðu við bólfærin og bryggjan hvarf í hafrótið og kom ekki upp úr klukkustundum saman og braut þá á henni eins og blindskeri. Þegar veðrið stóð sem hæst tóku menn eftir því að Isleifur hafði brugðið sér á kreik og var ekki annað að sjá en að hann ætlaði upp. Brugðu þeir Svavar Karls- son og menn hans skjótt við og Þorpift yfirgefna Svissar bíða í ofvæni. í f jallaþorpi í Sviss um 225 Mlómetrum austur af Genf, er nú mikil snjóflóðahætta. Feikna snjódyngja er þar efra í hlíðunum og talið lík- legt, að hún velti niður hlíð- ina, þar sem þorpið er, þegar fer að hlýna, og sópi því með sér, eða það grafist undir þvi. Hafa allir þorpsbúar, um 200 talsins, nú flúið með allan kvikfénað sinn, eru engir i þorpinu nema nokkrir þraut- þjálfaðir fjallamenn, sem eru þar á verði, til að gefa gætur að öllu. Fregnir frá Sviss herma, að öll þjóðin bíði „spennt' frétta um þetta. H&osseln fer fil iretlands. Hussein Jordaniukonungur er væntanlegur til Bretlands. Hann mun koma þangað innan skamms og dveljast vikutíma í landinu. Þetta er einkaheimsókn og hefur ekkert verið látið uppi um erindi konungs. 299 líflátnir á Kúbu. Fimm lögreglumenn voru tefcn ir af lífi á Kúbu. Þeir höfðu verið dæmdir til lífláts fyrir að drepa nokkra stúdenta. — Tala þeirra, sem teknir hafa verið af lífi, er nú .komin upp í 299. brutust út í bátinn. Kom þá í ljós, að ísleifur var ekki laus heldur hafði hann togað það sterklega í bólfærið, að hann hafði dregið það tiL Tókst að ganga örugglega frá bátnum. I morgun reru Þorlákshafnar- bátar aftur. Hsaníbal keitndl Hermamii em. Frá fréttaritara-Vísis. — ísafirði í gær. Alþýðubandalagið hélt stjórn- málafund hér í gœrkveldi. Frummælandi var Hannibal Valdemarsson. Sagði hann frá slitum vinstri stjórnarinnar og komið hefði verið nokkuð á leið, að hún gengi aftur. Hannibal kenndi Hermanni Jónassyni um fall vinstri stjórnarinnar og andmælti efnahagsaðgerðum ríkíkisst j órnarinnar. Auk Hannibals töluðu Krist- ján Guðjónsson, Guðmundur Guðjónsson, Guðmundur B. Al- bertsson og Jón Jóhannsson. Fundinn sóttu að sögn 70— 80 manns. — Arn. Norræn blöð gegn heimsókn Krúsévs. Blöð á Norðurlöndum gagn- rýna boð forsætisráðherra Norð- urlanda til Krúsévs, að koma í heimsókn til Norðiu’landa. 1 Morgenbladet norska segir, að það sé vitanlega einkamál hverrar þjóðarinnar um sig, hvort slíkt boð sé gert, og Ger- hardssen hefði átt að leita álits Stórþingsins. Blaðið segir Norð- menn ekki hafa gleymt Ung- verjalandi. — Svipuð gagnrýni hefur komið fram í sænskum blöðum. Hussein Jórdaníukonungur hefir Bandaríkjaför í huga; e. t. v. fer hann þangað í næsta mánuði. Þessi óvanalega mynd af rebba, þar sem hann stendur á vatnsbakka og horfir löngunarfullxmi augun á villiendurnar, sem gæta sín að vera hæfilega fjarri honum, var tekin í skemmtigarði í Stokkhólmi, þar sem Stokkhólmsbúar koma daglega til þess að gefa öndunum, og menn eiga á dauða sínum von frekar en að mæta refum, en það gerðist nú samt í vetur, að tveggja refa varð vart í garðinum. Vafalaust hefur sulturinn rekið bá þangað. Víðtæk leit að Julá hefir ekki borið árangur ennþá Fedíir hefir heMur Itegt tí leiiarsvtedinu* Þar gengur á með éljum og er bjart á milli. í gær var haldið áfram leit- inni að togaranum Júlí. Sam- kvæmt upplýsingum Slysa- varnafélagsins var leitað á 30 þúsund fermíla svæði af flug- vélum og skipum, en leitin bar engan árangur. Leitarskilyrði voru slæm, skyggni aðeins um íjórar míl- ur og veður risjótt. Átta flug- vélar tóku þátt í leitinni. Lögðu þær upp frá Halifax,- Af þeim voru fimm frá Kanada og þrjár bandarískar. í morgun var leit- inni haldið áfram. Samkvæmt upplýsingum frá veðurskipum á þessum slóðum var veðrið heldur hægara á þessum slóð- j um, 6 til 7 vindstig og 7 stiga frost. Að sögn flugmannanna voru mörg skip á leitarsvæðinu. Slysavarnafélagið hefur snú- ið sér til sendiráðs Ráðstjórnar- ríkjanna í Reykjavík og beðið um að tvö rússnesk verksmiðju- skip, sem eru stödd við Ný- fundnaland tækju þátt í leit- inni. ísienzku togararnir munu nú flestir vera á heimleið og eru fyrstu togararnir sem voru á miðunum í fáviðrinu væntan- legir heim um helgina. í gærdag fór flugvél frá varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli til Nýfundnalands til að taka þátt í leitinni. Er þetta þriðja flugvélin sem .fer þaðan í leitina. Flugvél þessi er búin mjög nákvæmum leitartækjum. Furðusaga úr fárviðri: Bíllinn fauk og lenfi á hvolfi, og jiá bundu menn hann bara rammlega. Borgarnesi í morgun. Vatnsleiðsla Borgarnesinga, sem liggur ofan úr Hafnarfjalli og yfir Borgarfjörð þveran, komst loks i lag í byrjun þess- arar viku eftir langa bilun. í frostunum í janúarmánuði fraus í leiðslunum úti á leirun- um í sunnanveðrðum firðinum, og varð Borgarnesþorp þá með ölluvatnslaust í nokkurarvikur. | I langvarandi kláloim að und- I anförnu losnaði imi klakann í leiðslunum og þá kom jafnframt í i ljós að þær . höfðu rifnað á nokkru svæði um 800 metra frá landi — þ. e. suðurbakka fjarð- arins. Var kafari fenginn frá Vélsmiðjunni Hamri 5 Keykjavik t$l þess að annast viðgerðir á leiðslunum og síðastliðinn mánu , dag voru þær komnar í lag og Borgnesingar búnir að fá vatn að nýju. I gær var hvassviðri mikið í Borgarnesi og þá skeði sá at- burður í einni vindkviðunni, að bíll, sem stóð uppi á hæð i þorp inu tókst á loft og hvolfdi. Urðu menn að grípa til þess ráðs að binda bílinn niður, þar sem hann var kominn unz lygndi. Nær 30 mm. úrkoma á 24 stundum. Urkoman í gær var mjög mikil, en þó ekki metúr- koma. Frá kl. 8 í gærmorg- un til kl. 5 síðdegis mældist hún 18.5 mm, en frá 5 síð- degis í gær til kl. 8 í morg- un 10.7 mm, alls 29.2 mm á sólarhringnum. Horfur eru á suðaustan kalda og éljum í kvöld, en í nótt suðaustan stormi með rigningu, er líður á nóttina. I morgun var S 3 og 0 stig í Reykjavík. Var þá hæg vestlæg átt víða um land og hiti 0—4 stig, en allhvasst og rigning.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.