Vísir - 23.02.1959, Side 9

Vísir - 23.02.1959, Side 9
Kíánudaginn 23. febrúar 1959 'PfSIU Frh. af 4. síðu: ar um aukna landbúnaðarfram- leiðslu og óttast að geta ekki | skilað tilskildu framleiðslu- magni árlega og þora ekki að | taka á sig afleiðingarnar, ef ; þeir neituðu að taka þátt í 1 rekstri samyrkjubúanna. Horf- \ ur í þessum málum eru því ekki : taldar vænlegar, og margar milljónir ekra af akurlendi liggja enn í órækt frá stríðslok- um, vegna þess að austur-þýzk-1 ir landbúnaðarverkamenn hafa ekki hreyft hönd við þeim. | Ættingjar fylgja á eftir. Margir ættingjar flóttamanna hafa tekið það ráð að fylgja fordæmi þeirra og flýja land, vegna þess að í austur-þýzkum lögum, sem komu til fram- kvæmda í fyrra, er þeim bann- að fyrir fullt og allt að hverfa burt frá Austur-Þýzkalandi, jafnvel þótt nákominn ættingi, sem alltaf hefur búið í Vestur- Þýzkalandi, veikist hættulega og deyi. Austur-þýzk kona sagði vestur-þýzkum yfirvöld- um eftirfarandi sögu: „Faðir minn lá fyrir dauðanum í Vest- ur-Þýzkalandi. Ég gat ekki feng- ið leyfi til þess að heimsækj-a hann. Mér var sagt, að nægur tími væri til þess, þegar hann væri dáinn ... Seinna var mér sagt, að það væri hægt að jarða hann, án þess að ég væri við- stödd. Sama svar fékk ég, þeg- ar móðir mín lézt.“ Sennilegt er, að flóttinn verði erfiðari í framtíðinni, ef ráð- síafanir þær, sem stjórnin hef- ur á prjónunum, koma til fram- kvæmda. Síðustu áformin, sem heyrzt hefur getið, er að skipta Austur-Þýzkalandi í svæði. í- búum hvers svæðis verða af- hent persónuleg skilríki, með mismunandi lit fyrir hvert svæði, og áritanir þarf til þess að ferðast milli svæðanna. Ef maður, sem ekki hefur slíka áritun, kemur í leitirnar utan þess svæðis, þar sem hann er búsettur, er heimilt að handtaka hann. Flóttamenn eru fleirí. . í skýrslum um þessi mál, sem gefin hefur verið út af þýzku iðnaðarmálastofnuninni í Köln, segir, að sonnu nær væri að bæta einum fjórða við heildar- tÖlu flóttamanna frá austurhlut- anum, vegna þess að fjöldi flóttamanna leiti ekki eftir op- inberri aðstoð, heldur finni þeir sjálfir húsnæði og atvinnu í Vestur-Þýzkalandi og gefi sig því ekki fram við flóttamanna- yfirvöldin þar. Enda þótt þessi aukning sé ekki tekin til greina, þá er flóttamannastraumurinn frá Austur-Þýzkalandi til vestur- hlutans ennþá gífurlegur. Sést það bezt á því, þegar athugað er, að þaðan flýja að meðaltali 100 rnanns á fjögurra klst. fresti ... 600 á dag ... hér um bil 5,000 á viku ... fimmti hluti úr milljón á ári... rúmlega hálf fjðrða milljón frá því í lok síð- Ustu heimsstyrjaldar. Neytendasamtökin hafa orðið: .rffifizt upplýsinga um fram- letðsBustaði smjörs í landinu. JNeyttzmúanwm r&röi eg&rt kieift tiö v&ijfíB þd wöru-9 S&BBB hiiBBBÍ f&skÍB*a Stjórn neytendasamtakanna í Eeykjavik hefur í tilefni af stofn un „Osta- og smjörsölunnar s.f.“ í Keykjavík þótt ástæða til að gera eftirtaldar kröfur: 1. Að upplýsfc verði sem ná- kvæmast, hver séu lágmarks- sidlyrði til þess, að smjör sé flokkað í 1. flokk og nefnt „Gæðasmjör.“ 2. Að á þeim umbúðum, sem Osta- og smjörsalan átíýrv.Lst innihaldið í að vissu marki, sé getið framleiðslu- og pökkunar- staða þangað til þvi marki sé náð um gæði, sem Osta. og smjö,rsalan Iiefur Iieitið neyt- endum að keppa að, og hið op- inbera mynði samþykkja sem 1. flokks smjör. 3. Að nafnið „Gæðasm.jör" verði fellt niður, látlausara nafn tekið upp — eðlilegast virð- ist samheitið eiga að vera „smjör“ og siðan sé gæðaflokk- un tilgremd. Þessar kröfur eru m. a. byggð- ar á þeim forsendum að smjör frá hinum einstöku mjólkur- búum landsins hefur reynzt all- misjafnt hvað bragð snertir og almenningi þar af leiðandi fallið smjör frá hinum einstöku búum misjafnlega vel. Fram til þess tíma, sem Osta- Qg smjörsalan s.f. var sfofnuð bar smjörið jafnan verki framleiðslustaðar, þannig að neytandinn gat valið og hafnað að vild. Með stoínun ofangreinds fyr- irtækis er þetta ekki lengur hægt. Smjöri frá öllum mjólk- urbúum landsins er pakkað inn í sams konar umbúðir og smjör- ið að því búnu kaliað „gæöa- smjör", hvort sem það er með bragði, sem kaupanda líkar illa og getur ekki sætt sig við, eða þá að hann hittir af tilviljun einnig á það smjör, sem hafði óskað eftir. Nú hefur stjórn Nej-tendasam. takanna í Reykjavík sent frá sér ítarlega greinargerð um þetta mál og segir þar m. a.: Það verður rcttlát krafa neyt- enda. um leið og þeim verður leynt héðán í frá, hver fram- leiðslu. og pökkunarstað smjörs- ins er, að þeir fái skýlausar upp- lýsingar um það nú þegar. hve lágmarkskröfur gerðar eru í upphafi til þeirra vara, sem af- greiddar frá Osta- og smjörsöl- unni sem góð var og fyrsta flokks vara. Og hér komum við að því, að það hlýtur að teljast nauðsyn- legt að setja lög.eða reglugerð um flokkun og gæðamat á smjöri. Og þeim mun nauðsyn- legra, sem framleiðendur hafa orðið algjöra „samstöðu um sölu“. Þegar einokun tekur við af samkeppni, og gæðamat á að tryggja vöruvöndun, verður hið opinbera að setja skilyrði um lágmarksgæði hinna ýmsu flokka, sem bera heitiu úrvals- og fyrsti flokkur, gæðavara ó. s. frv. En það skortir einnig löggjöf um gæðamerkingar eða um skyldu til að geía upplýsingar um eiginleika vara, sem neyt- endum eru mikilvægar við vöru val og meðferð á vöru. Sam- kvæmt sjónarmiði neytendans bera að gefa allar þær upplýs- ingar, sem að haldi mega koma og auðvelt er að veita. Þannig á það tvímælalaust að vera skylda, að magns innihalds lokaðra um- búða, framleiðslustaðar o. s. frv. allt eftir eðli vörunnar. En hér er farið öfugt að. Það er dregið úr þeim upplýsingum, sem hing- að til hafa verið gefnar á um- búðum smjörs. Og um leið er farið inn á svo hála braut að kalla allt smjör „gæðasmjör", sem jafnvel má telja vafasamt, að standist lög vegna. skrums. Allt að einu ef nafnið mjög skrumkennt. Hið eina nafn, sem virðist mega kalla slíka vöru, er einfaldlega: „smjör" og siðan að tilgreina gæðaílokk. Ennfremur segir: Það hlýtur að teljast réttmæt krafa neytenda, um leið og þeir eru sviftir möguleikum til að velja milli framleiðsluvai-a ein- stakra mjólkursamlaga, að upp- lýsingar séu gefnar um fram- I leiðslu. og pökkunarstað. Það e auðgert, ef vilji er fyrir hendi Og þetta ætti að gera, þannif til varan er orðin svo „góð o; jöfn“ eins og neytendum er heit ið. að mismunurinn sé svi hverfandi, að hún eigi heima einum og sömu umbúðum. Þac er ekki hægt að misskilja það ^ þegar neytendum er allt í eint sagt, að það sé sama, hvar smér ið sé búið til og hvar það sé seti í umbúðir. Loforð um bót og betrun á vörunni eru afsökun. Okkur hefur verið svo frí «* skýrt, að blöndun á smjöri frá mjólkursamlögunum komi ekk: til gi-eina. Sem sagt, smjörið verður eftir sem áður fram- leiðsluvara einstakra samlaga En það er ógerningur að fá aS vita, hvaðan það kemur. Þess má að lokum geta, a8 mikillar tortryggni hefur gætt meðal almennings út af þessu fyrirkomulagi smjörnökkunar og smjörsölu, sem Mjólkursam- salan og SlS hafa samstöðu um ^annar iö^ur — ejbir Werui- HANN VARÐ ÁSTSÆLASTI FORSETI ÞJÓÐAR SINNAR MYNDASAGA UM ABRAHAM LlNCDLN 9) Síðar á árinu 1863 flutti Lincoln ræðu þá, sem hefur síð- an orðið cin hin frægasta, er um getur í sögunni. Hann var þá viðstaddur vígslu legstaðar, sem gcrður var á vígvelli, og þar mælti hann þau ódauðlegu orð. sem þykja lýsa svo vel hug- sjón lýðræðisins: „ ... stjórn fólksins, mcð því og fyrir það skuli ekki hverfa af jörðinni.“ — Enda bótt vinsældir Lincolns rénuðu talsvcrt á fyrri hluía kjörtímabilsins, var hann samt endurkjörinn forseti þjóðar sinnar árið 1864. Menn báru lionum fyrst og fremst á brýn, að borgarastyrjöldin brauzt út, en að auki voru honum kenndir margir ósigrar Norðurríkja- manna fyrst í stríðinu. En þeg- ar hann gaf út tilkynninguna um lausn þrælanna, óx hann mjög í áliti í Norðurríkjunum. — Árið 1865 Iauk borgarastríð- inu um síðir með sigri Norður- ríkjanna. Fjölskylda barðist ekki lengur gejgn fjölskyldu, en harmleikurinn liafði staðið i samfleytt fjögur ar. Frelsi og friður ríktu og bandalagi ríkj- anna var borgið. Þjóðin varð ör- vita af fögnuði, og hvarvetna áköiluðu menn almættið og þökkuðu, að friður skyldi hafa verið saminn eftir allar blóðs- úthellingarnar. 10) Fyrirætlanir Lincolns varðandi frðiinn og verkefnin, þá báru viturleika hans og mannúð giöggt vitni. Hann gat ckki fallizt á það, að rétt væri að refsa Suðurríkjamönnum, þótt þeir liefðu risið upp gegn stjórninni í Wasliington og haf- ið styrjöldina, cr varð svo sárs- aukafull. Hann hét einmitt á þjóðina að græða sárin með góð- vild I garð allra en engri rang- sleitni, — Lincoln lifði það ekki að sjá fyrirætlanir sínar varð- andi friðinn og eininguna verða að veruleika. Aðeins fimm dög- um eftir að styrjöldin hafði ver- ið á enda kljáð og farginu létt af mönnum, var liann skotinn til bana af ofstækisfullum Suð- urríkjamanni, leikaranum John Wilkes Booth, er hann var í leikhúsi í Washington. Lincoln lifði fáar stundir cftir árásina, en hann hafði lokið stórvirki sínn. — I augiun Bandaríkja- manna og fjölmargra manna aí margvíslegu þjóðerni er Lin- coln hjartfólgið tákn frelsis og mannúðar. Trú hans á mann inn, frelsið, hjartagæzku ein- staklinganna er undirstaða lífs- skoðunar Bandaríkjamanna Þeir, sem kynna sér ævi og stárf Lincolns, komast í snert- ingu við sál þcirrar þjóðar, serr ól hann og hann þjónaði. •[ (Endir.K j

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.