Vísir - 24.02.1959, Blaðsíða 7

Vísir - 24.02.1959, Blaðsíða 7
Þriðjudaginn 24. febrúar 1959 VISIR 34 föcfin heit SKALDSAGÁ EFTIR MARY ESSEX þar úti, líka á þessum tíma dagsin§, glitrandi smáalda á sjón- um en þoka á fjallatindunum enn. Hugh var þar fyrir þegar Candy kom. Hann var alltaf að fitla við vindlinginn, dökkir dílar voru undir augunum. Candy hafði innilega samúð með honum. — Eg er viss um að Diana róast ef móðir hennar kemur, sagði hún. — Það vona eg. Hugh fleygði frá sér vindlingnum, sem hann %’ar nýbúinn að kveikja í, — honum fannst óbragð að honum. — Það er í mikið ráðist að biðja hana um að koma hingað núna, eftir svona langan viðskilnað — lagalega séð er það sama sem að taka hana í sátt aftur. Þessi kona hefur yndi af að gera öðrum bölvun, hún er fædd með þeim ósköpum að hafa gaman af að gera öðrum skapraun. Þetta er mesta fásinna, en eg neyðist til að gera það samt. — Diana þráir að sjá hana.... það er aðalatriðið. Og svo er hitt: — þú elskaöir hana einu sinni, er það ekki rétt? Hugh kinkaði kolli. — Þegar maður er uhgur og ástfanginn gerir maður fáránlegustu hluti. Móðir mín sagði blátt afram að eg væri brjálaður — í rauninni skildi eg alltaf hvað þaö var sem hún átti við. En Amanda er þannig, að undir eins og hún kemur inn í stofu breytist andrúmsloftið þar — þegar hún fer aftur er eins og sólin hverfi bak við ský. Hún gerði mig bergnuminn, hún er svo gerólík öllum öðrum manneskjum. Eg giftist henni í augnabliks vímu. — Ef eg ætti nú að halda samskonar yfirheyrslu yfir þér og þú beittir við vitni, ætla eg að spyrja: — Var nokkur afsökun fyrir hendi þarna? — Getum við ekki reynt að tala um eitthvað annað en mig og yfirheyrslur! Það er ekki beinlínis styrkjandi, einmitt núna. Candy skammaðist sín. Að hún skyldi ekki geta setið á sér — það var lubbalegt af henni að reyna að ráðast aftan að honum á þennan hátt. Hún hafði notað sér aðstöðu sína til þess að hefna sín — fannst henni ennþá að hún yrði að ná sér niðri á þessum manni, sem nú barðist við kvíðann út af Diönu eins og hún? Colin hringdi aftur um miðjan dag. Hann gat ekki skilið að Candy gæti ekki fráskákað sér ofurlitla stund, ekki gat hún verið til neins gagns þegar bæði læknir og hjúkrunarkona voru yfir barninu? Hún pexaði lengi við hann og fánn að hún var að fá sáran höfuðverk og að taugaþreytan var að gera út af við hana. í kvöld mundi Amanda koma — kannske skánaði allt þá. Candy var svo hugsandi að hún tók varlá eftir bílnum, sem nam staðar við hliðið. Hún hélt að þetta væri Hugh, sem væri að koma heim, og leit ekki upp fyrr en hún heyrði fótatakíð í garðinum. Það var fótatak sem hún kannaðist ekki við, og það skrjáfaði í silki. Þetta var kona — og þegar hún sá skæru grænu augun vissi hún að þetta var Amanda, sem var komin þarna — fyrr en hún hafði sagt til um. Amanda horfði á Candy. Þóttalegt bros lék um varir hennar, hálfgert glitt. — Þér munuð vera Candy Grey? sagði hún dræmt. — Já, eg er Candy. Og þér munuð vera frú Jackson? — Alveg rétt. Heyrið þér, hvaöan eruð þér ættuð? Amanda virtist vera í essinu sínu, en Candy leið illa, og var hikandi er hún svaraði, en hin starði grænum augunum á hana. — Frá London. Eg var ráðin til að fara hingað og hjúkia Diönu þangað til hún næði heilsu aftur. — Það er ekki að sjá að þér hafið v'erið athugul í því starfi.... Candy fann að hún roðnaði af reiði. Hún reyndi að stilla sig, en þessi ásökun keyrði úr hófi. — Eg hef gert mitt bezta. Henni hafði líka farið mikið fram, en svo kom þetta fyrir. Eg held að Diana sé sofandi núna og Theresa hjúkrunarkona er hjá henni. — Viljið þér ekki koma inn, það er nokkuð heitt í sólskininu núna. Hún fann sjálf að henni tókst klaufalega og að það sem hún sagði var sundurlaust, en taugarnar voru í ólagi og hún varð enn deigari en ella vegna þess hve Amanda var frökk. Hún gekk á úndan henni inn í stofuna, að stóra sófanum, sem raímagns- loftsnerillinn stóð hjá. — Viljið þér ekki fá yður sæti? Má eg ekki koma með eitthvað handa yður að drekka? — Jú, þökk fyrir. Er nokkurt vodka til á heinrilinu? — Vodka? Nei, eg er hrædd um að það sé ekki til. Candy varð svo hissa á spurningunni að hún vissi varla hvað hún átti að segja. — Herra Jackson kemur víst aftur rétt bráðum, hann skrapp til Cannes til að ná í ferskjur handa henni Diönu. Hann veit hvar þetta er, ef það er til. Amanda sneri sér óþolin að henni. — Hafið þér þá vindling lianda mér — úr því að þér eruð að leika húsmóður á annað borð? Candy gat ekkert sagt en rétti henni vindlingakassann þegj- andi. Amanda tók einn vindlinginn með semingi, handlék hann um stund og leit svo fast framan í Candy. Það var eins og hún væri að skora hana á hólm. En án þess aö Candy gæti áttað sig sagði hún: — Yður fellur sjálfsagt ekki við mig? Þetta var fásinna. Hún hefði ekki átt að segja þetta, það voru ekki nema örfáar mínútur síðan hún hafði séð þessa konu, og það var alls ekki rétt að fara að víkja að andúðinni, sem hún hafði orðið vör af hennar hálfu. En Amanda yptti öxlum, tók kveikjarann og kveikti í vindlingnum. — Svei mér ef eg hef gert mér nokkra skoðun á því. En eftir því sem eg hef heyrt um yður — og eg hef heyrt ýmislegt um yður — skal eg fúslega játa að þér eruð gerólik því, sem eg hafði hugsað mér. Eg vissi að Hugh hafði einhverja stelpu hér syðra, hvernig átti maður líka við öðru að búast. Jafnvel dyggðugustu menn geta ekki neitað sér um gleði lífsins að staðaldri. — Einhverja stelpu hér syðra! Eg tók við þessu starfi, sem systir hans bauð mér í London, og eg fór hingað suöur með Diönu án þess að hafa hugmynd um að Jackson væri faðir hennar. — Þá fékk eg að vita það líka! Amanda sló öskuna af vindl- ingnum og hló. — Var það þess vegna að þér sögðuð þetta? Er það í'jölskyldu- einkenni að hafa yfirheyrslur sem sérgrein? — Já, eg býst við að eg hafi lært margt af Hugh undanfarin ár. Hann þurfti alltaf að blanda lögfræðinni saraan við heimilis- lífið. Þér haldið kannske að þér þekkið hann, nú orðið, en það e KVÖLDVÖKUNNI Nóbelsverðlaununum varð' Pasternak að sleppa, en ekki er það langt frá sanni, að rit- laun hans fyrir bókina sé nú að verða langtum hærri upp- hæð en hin sænsku verðlaun. Það hefir frétzt, að amerísk- ur forleggjari hans hafi lagt inn í svissneskan banka stórfé handa honum. Þá verður spurningin hvort ráðstjórnaryfirvöldin leyfi að peningarnir komi honum £ hendur. ★ Þegar hin fræga filmshetja, Jean Marias, var nýlega í leik- húsinu gat hann ekki komizt hjá því að taka eftir ungri konu, sem starði á hann jafnt og þétt. Ætli eg þekki hana? hugsaði hann, og til þess að vera viss í sinni sök heilsaði hann lienni vingjarnlega. Hún varð himinlifandi, sneri sér að vinkonu sinni, sem með henni var og sagði: „Er þetta nú ekki undarlegt? Eg hefi séð h'ann svo oft í kvik- myndum, að hann er farinn að þekkja mig!“ ★ Lítill drengui’ segir við pabba sinn og sýnir honum hund: „Þetta eru hreinustu kapphlaup! að fá hundinn fyrir 1 % krónu. Hann á nefnilega von á hvolpum.“ Gögnin um Kýpur birt. Eyjan lýðveldi eigi síðar en 1960. Gögnin um Kýpur voru birt igusia og not af flugvellinum í í gær, eins og áður hafði verið 'Siu. Tyrkir og Grikkir boðað. hafa fámennt herlið á eynni og Efni samninganna var í 'Grikkland og Tyrkland ásamt meginatriðum þegar kunnugi. Bretlardi ábyrgjast sjálfstæði að Kýpur skyldi verða sjéif- jlandsins. stætt lýðveldi eigi síðar en í j Makarios erkibiskup gekk á febrúar 1960, að forseti sk Idi fund eridbiskupsins af Kant- úr flokki grískumæl; iidi araborg : gær. Menderes for- manna, en varaforseti af t rk- Isætisráðherra Tyrklands ér neskum o. s. frv. jenn í sjúkrahúsi, en gat farið Það eru 3 herstöðvar. sem jút stutta M nnd í gær. Dr. Bretar halda, eða meginher- iKutchuk er i Ankara, hefur stöð á eynni sunnanverðr að- jtafist þar ! neimleið til Kýpur gangur að höfninni í Fanía- veðurs vegná.' 6 keppa - E. R. Burroughs TARZAIV 2832 JUME LAVEK HAt7 PENOUNCEP1 HEE HUSBANP, CLAlMEP THAT HE WAS KESFONSIBLE FOK THE P’EATH OF THEK WHITE HUNTEIé. ‘I SHOULP LIKE TO HEAK A .'tr SAIÍ7 TAKZAN QUIETLY "CERí'' EEFLIEP- JUNE — . STEtg 70 THE SAGA OF JNE CKAKLES LAVEK— VHOSE MONEY BOUGHT -r/A E'.’EKYTHINS BUT LOUKASeí" Júne Laver hafði formælt > ’.anni sinum og kennt hon- urri um dauða hvíta leið- sögamannsins. Mér þætti gaman að heyra meira af þessari sögu, sagði Tarzan hæglátlega. Vissulega skal eg segja yður það, sagði June. Þér skuluð fá að heyra sögu herra Charles Lavér, sem héfur getað keypt allt iyrii eninga, nema ekki húgrc-’.ki. Frh. af 1. síðu. slitakeppninni. En næstir þeim í A-riðli urðu Eggert Gilfer og Sturla Pétursson með 5 vinninga hvor. Úr B-riðli eru það Benóný Benediktsson með 6 vinninga, Jón Þorsteinsson, einnig meg 6 vinninga og Jónas Þorvaldsson með 5Vz vinning, sem keppa til úrslita. Næstir þeim í B-riðli urðu Bragi Þorbergsson og Gunnar Ólafsson með 414 vinn- ing hvor og Daníel Sigurðsson með 314 vinning. Biðskákir úr 9. umferð verða tefldar annað kvöld, en úrslita- keppnin hefst næntanlega um. næstu helgi. IMýja Bíó: Bedistúdentinn. Nýja Bíó sýnir nú kvikmynd- ina „Betlistúdentinn“ (Der Bett- elstúdent), sem er þýzk músik- mynd í litum, eftir hinni frægu óperettu með sama nafni eft'r Karl Millöcker. Leikstjóri Wér.n- er Jakobs. Aðalhlutverk: Grr- hard Riedman, Elma Karloiv, Waltraut Haas. —, Sagan g.erist á dögum Ágústs sterka Pólver ja konungs, en fjallar aðallega um Ollendorf nokkurn landstjóra í Krakhau, ástamál hans, og við- ureign við stúdenta. Hér rekur hvert spaugilegt atriðið ann.að og mikið er um dans og sö;.g. Hlutverkum eru gerð sérlr a góð skil og myndin afbur a skemmtileg — ein með skemmií- legustu óperettumyndum, srm hér hafa sézt lengi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.