Vísir - 03.04.1959, Page 10

Vísir - 03.04.1959, Page 10
VÍSIR Föstudaginn 3. apríl 1959; SLISAN INGLIS: ^^^•^^^☆☆☆☆☆☆☆^ Fyrst í staö íannst henni ekkert athugavert viö þetta. því aö útihús voru þarna allt í kring. Ef til vill voru einhverjir að koma úr hesthúsunum, eða þá úr þorpinu fyrir neöan. En svo heyrði hún mannamál líka, og er hún hlustaði betur stirnaði hún af skelfingu. Hún heyröi að þetta var rödd Mercedes Herrera. Hún var heit- ari og ástríöufyllri en Penny hafði nokkurntíma heyrt hana áður. „Þetta er brjálæði, Andrew,“ sagði hún. „Þú þykist verða að giftast þessari ensku kvensnift og gera heiðarlega frú úr henni, aðeins vegna þess að þið hafið verið eina nótt saman, undir beru lofti. En við lifum ekki á átjándu öld núna. Þá hefði það kannske verið nauðsynlegt. En á vorum dögum....“ Hún þagði og Penny beið skjálfandi eftir svarinu. Svo heyrði hún rödd Andrews, þurra og kuldalega. „Þó að þér finnist það ótrúlegt þá tel eg eigi að síöur nauð- synlegt að eg giftist Penny Mayne.“ Nóttin sem Penny hafði fundist svo dásamleg fyrir örstuttri stundu, varð allt í einu dimm og köld. Hún fór úr glugganum og fálmaöi fyrir sér að rúminu. Og þar hneig hún njður. Eg tel engu að siður nauðsynlegt að eg giftist Penny Mayne. Það var þá alls ekki af því að hann elskaði hana, sem hann hafði beðið hana að verða konan sín. Aðeins vegna þess, að hann taldi nauðsynlegt að gera heiðarlega konu úr henni, eftir að hafa verið með henni heila nótt við varðeldinn. Háðið í rödd Mercedes Herrera hljómaði enn í eyrum hennar. Nú var draumahöll hennar hrunin í rúst. Hún leitaði að ein- hverju í endurminningunni, sem hún gæti haft huggun af, en fann ekkert. Fyrst nú fann hún með sárri beiskju, að Andrew Brand haföi aldrei nefnt á nafn að liann elskaði hana. Nokkrum sinnum hafði honum tekist að láta hana segja, að hún elskaði hann. En hann hafði aldrei sagt: „Eg elska þig. Hún hafði haldið, að augun í honum segðu það og kossarnir hans og sterkir hand- leggirnir, sem höfðu faðmað hana. Henni hafði fundist svo auð- velt að trúa þessu, vegna þess hve heitt hún slskaði hann sjálf. Hvað átti hún að gera? Hún þurfti vitanlega ekki að gera neitt. Hún gat haldið áfram eins og ekkert hefði í skorist og gifst Andrew Brand. Hún gat orðið íorrík, hugsaði hún með sér, en það hafði henni aldrei dottið í hug áður. Hún gat haft gagn af auöæfum hans og öðlast allan þann lúxus, sem hægt var að hugsa sér. Hún mundi fá ýmiskonar ytri tákn alúðar hans, því aö þau mundi Andrew Brand óefaö sýna konunni sinni. Og enginn nema hún þurfti að vita.... í öllum þessum ömurlegu hugleiðingum vissi hún að þær skiptu ekki neinu máli, og að hún mundi aldrei giftast Andrew Brand úr því að hann elskaði hana ekki. Hún elskaði hann of heitt til þess. Og svo kom spurningin aftur, sem hún ekki gat svarað: Hvað átti hún að gera af sér? Eg verð að komast burt héðan, hugsaði hún með sér. Bara að þetta hefði ekki gerst hérna! Hefði það gerst í E1 Paradiso hefði eg getað farið til lafði Kathleen og sagt henni frá öllu. Hún hjálpar mér þegar hún veit hvernig í öllu liggur. Hvemig á eg að komast til E1 Paradiso? Hún velti þessu fyrir sér í örvæntingu. Eg get ekki beðið Luis að flytja mig. Hann og Tína ætla að taka þátt í ljónaveiðinni á morgun. Og svo mundi hann segja Tínu frá öllu saman, og það er til of mikils ætlast að hún geti skilið — hún mundi aldrei fallast á að eg færi án þess að segja Andrew frá því fyrst. Og eg vil ekki segja þetta hverjum sem er — eg get það ekki, því að það er ekki allt sem maður getur skýrt.... — En Juan Moreira var þarna. Einhverra hluta vegna haíði hann afráðið að taka ekki þátt í veiðiförinni, en verða heima, kven- fólkinu til félagsskapar. Penny hafði ástæðu til að halda að það væri hennar vegna, sem hann vildi verða heima. Hann mundi vilja gera hvað sem vera skyldi fyrir hana, og hann liafði áður boðist til að hjálpa henni. En var rétt að nota sér tilfinningar hans þegar svona stóð á? Og hvernig gat hún náð tali af honum undir fjögur augu, án þess að það vekti eftirtekt? Og hann hafði komið hingað með Mercedes Herrera! Tilhugsunin um Mercedes gerði hana enn ólmari í að komast burt. Jú, hún ætlaði að biðja Juan. Þaö var eina úrræðið. Hún ætlaöi að biðja hann um að aka með sig til E1 Paradiso, og þar ætlaði hún að fara til lafði Kathleen og biðja hana um að hjálpa sér að ná í farmiða með fyrsta skipi til Englands. Og þeg- ar gengið hefði verið frá því, ætlaði hún að skrifa Andrew og gefa honum frelsi. Þá gat hann gifst Mercedes Herrera, eins og hann alltaf hafði hugsað sér að gera, þangað til lítil ensk ungfrú Ekkineitt, sem hét Penny Mayne, rakst inn á lífsbraut hans og spillti öllu. Fyrir stuttu hafði Penny ekki getað sofnað af því aö hún var svo hamingjusöm, nú lagði svefninn á flótta vegna þess að hún var svo ólánssöm. Henni fundust klukkutímarnir óendanlega langir og hún var glaðvakandi þangað til fór að birta af degi. Fyrir sólarupprás var uppi fótur og fit þarna í kyrrðinni á Los Quebranchos. Þar heyrðust hróp og köll, og hestarnir hneggjuðu og börðu niður hófunum. Allt húsið virtist vaknað, en þó var eins og fólk vildi tala hljóðlega, til að vekja ekki þá, sem enn sváfu. Andrew hafði sjálfsagt skipað fólkinu að hafa ekki hátt, vegna Mercedes, hugsaði Penny með sér. í gærkvöldi hafði hún einsett sér að fara á fætur í býtið og sjá þegar veiðimennirnir legðu af stað, og kannske fylgja Andrew úr hlaði. Nú lá hún hljóð og skjálfandi í rúminu sínu og taug- arnar ætluðu að slitna. Hún reyndi að loka hvert hljóð úti, en samt heyrði hún allt sem gerðist fyrir utan. Nú voru hestarnir teymdir út, nú komu stúlkurnar úr eldhús- inu og Eustacia frænka sagði þeim fyrir nestið. Nú komu Tína og Luis og nú virtist allt tilbúið nema biðið var eftir — já, hver var það, sem biðiö var eftir? Penny gat ekki legið kyrr lengur. Hún var hrædd um að lagt yrði af stað áður en hún gæti séð Andrew Brand bregða fyrir í ^ síðasta sinn. Hún flýtti sér fram úr rúminu og íór í morgunkjólinn — það var svalt í herberginu ennþá — og gekk út að glugganum og faldi sig bak við gluggatjaldið. Það gat hún séð yfir hlaðið. Fimmtán — tuttugu reiðmenn höfðu safnast saman þar. Þarna voru vöðvastæltir hrossasmalar með barðabreiða hatta. Þeir voru síkjaftandi og undu sér vindl- inga og reyktu meðan þeir biðu. Svo kom hún auga á Tínu og Luis, sem stóðu utan við hópinn og voru að tala við Eustaciu frænku, sem auðsjáanlega var að gefa þeim heilræði undir ferðina. Penny kreppti ósjálfrátt hnef- ana, og renndi augunum lengra. Og þarna — loksins kom Andrew! Nú sá hún hann í síðasta sinn. Hann tók þegar við stjórninni. Tína og Luis settust á bak, og svo allir hinir. Andrew tók við taumunum á Mandinga af hest- húsmanninum og sneri hestinum út að veginum. En var það tilviljun eða af ásettu ráði sem hann leit við og horfði upp að húsinu áður en trnn reið af stað? Hann renndi dökkum augunum leitandi eftir húsveggnum á annari hæð og dvaldist við gluggann hennar. Penny færði sig lsngra inn í skugg- E. R. Burroughs T A H ? A — 2859 Hinsta stund ykkar er upprunnin, þrumaði töfra- læknirinn. ■— Bíðið! kallaði Tarzan. Eg þarf að tala við þig einslega. Jæia, síðasta óskin, hvæsti Sobito, og vaggaði upp að apamannin- 1 um. Tarzan lyfti fætinum i eldsnöggt og sparkaði í höf- 1 uð Sobitos, sem féll til jarðar. — Létuð þér whiskyið fyrst? spurði Angus og bragðaði á' drykknum? — Vitanlega sagði afgreiðslu- stúlkan hryssingslega. — Það þykir mér vænt um, eg kem þá kannske að því áður en eg drekk í botn. 1 Presturinn: — Lesio þér bænirnar yðar á hverjum rnorgni og lesið kafla úr biblí- unni, .Sandy? I — Já, eg geri það. — Gerið þér það? — Já, fyrir framan hiýjandf eld klukkan 10 á morgnaiia. En’ hvað marga kapitula mynduð þér lesa ef þér ættuð að hirða þrjá hesta fyrir morgunverð? í * Eigandi að stórum Cadillac- bíl kom með hann á viðgerðar- stöð í mjög slæmu ástandi. Viðgerðarmaðurinn spurði „hvað í ósköpunum hefði; gerzt.“ Eigandinn svaraði dap- Jur á svipinn, „að Henry J„ (hefði ekið á sig.“ Viðgerðar- maðurinn skoðaði bílinn betur* og sagði svo: '„Hversu mörgum sinnum?“ ★ Þrír karlar bjuggu í helli, eyddu öllum deginum í að stara. á hellisvegginn og töluðu aldrei orð. Einn dag hljóp stóðhestur fram hjá hellinum. Sex mánuð- um síðar muldraði einn af íbú- |unum: „Þetta var fallegur jarpur hestur.“ Tveim árum síðar sagði annar þeirra: „Þetta var ekki jarpur hestur, hann var hvítur.“ EftLr svo sem ár stóð þriðji karlinn upn, stik- aði út að hellisopinu og sagði: l„Ef þið ætlið alltaf aö vera að< þræta, er eg farinn.“ ! , ★ 1 í tyrkneska bænum Urkule nálægt Smyrna var kona kosin borgarstjóri fyrir nokkru.. Þetta eru miklar framfarir frá þeim dögum þegar flestar tyrkneskar konur földu sig bak við blæjur og grindurnar í kvennabúrinu. I ☆ ' Dr. A. sneri sér að dr. B. og sagði: „Þú lifir ekki viku í við- bót nema þú hættir að elta kvenfólk.“ | Dr. B. barði sér á brjóst eins og Tarzan og sagði „Það geng'- ur ekkert að mér, eg er í ágætu standi líkamlega.“ Dr. A. svaraði: „Já eg veit það. En ein af konunum sem þú eltir er konan mín.“ Hugvitssemi -- Kranih. af 3. síðu. tengingarnar í kæliskápunum, er mundu koma í veg fyrir oliuleka. Það er þessum um- ’ búnaði að þakka, að nú er hægt , nð gera við ýmislegt í kæli- skápum á staðnum, en áður þurfti iðulega að senda vélina til verksmiðjunnar til viðgerð- ar. Alls komu 256.499 tillögur í baukana á sl. ári og þar af reyndust 63.378 hagnýtar og voru teknar upp og tillögu- mönnum veittar viðurkcnning- ar. ■; .

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.