Vísir - 06.04.1959, Side 11
Mánudaginn 6. apríl 1959
VtSIB
1B
Veiddu 25 þúsund rauð-
maga.
FEateyingar em búnir a5 fá „sneira en nó§.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í gær.
í Flaíey á Skjálfanda liefir
verið þvílíkur uppgripaafli af
rauðmaga, að Flateyingar telja
markaðinn fylltan og eru því
hættir veiðum.
Alls hafa Flatejúngar veitt
um 25 þúsund rauðmaga, en
telja sig hafa getað veitt miklu
meira, ef þeir hefðu kært sig
um og ef þeir hefðu talið
markað fyrir hendi.
Grásleppuveiðar eru þegar
hafnar, um það bil hálfum
mánuði fyrr en venjulega og
lítur vel út með þær.
Bátar úr Eyjafirði, einkm
Hi'íseyjarbátar, hafa stundað
handfæraveiðar við Flatey
undanfarið og aflað sæmilega.
Grímseyingar hafa aftur á
móti allt aðra sögu að segja af
aflabrögðum. Þar hefir verið
lítil rauðmagaganga undanfar-
ið og um það bil helmingi
minni afli heldur dn í fyrra.
Þorskveiði hefir engin verið
fram til þessa. Stormasamt hef-
ir verið við Grímsey og ógæft-
ir miklar.
Mislingar ganga nú í Gríms-
ey í fyrsta skipti um rúmlega
20 ára skéið. Er þar því margt
fólk, sem getur tekið þá og
óttast, að þetta kunni að hafa
slæmar afleiðingar í för með
sér við sjósókn og önnur störf.
Flestallt roskið fólk í eynni
ihefir áður fengið mislinga.
Bæði um Flatey og Grímsey
er það sameiginlegt, að þar hafa
verið hlýviðri undanf arið,
þannig að með fádæmum má
teljast um þetta leyti árs. Þar
hafa verið vorhlýindi um langt
skeið og tún tekin að grænka.
Elztu Flateyingar telja sig ekki
muna aðra eins afbragðstíð á
þessum tíma árs.
100 manns í Ámtannsskála
um páskaJielgina.
Nægur snjór í Bláfjöllum.
í skíðaskála Ármanns í Jós-
efsdal dvöldu rúmlega 100
manns yfir páskahátíðina.
í Jósefsdal var lítill snjór, en
nægur snjór í Bláfjöllunum og
suður um Heiðina há, enda fóru
Ármenningar á hverjum degi í
lengri og skemmri ferðir um
Bláfjöllin. Á laugardaginn fyr-
ir páska snjóaði nokkuð efra,
og á páskadagsmorguninn, þeg-
ar skíðafólkið kom í Bláfjöllin
til þess að taka þátt í hinu ár-
lega páskamóti, var glampandi
sólskin og silkifæri.
Keppt var í fjórum flokkum:
kvennafl., telpnafl., karlafl., og
drengjaflokki, með samtals 26
þátttakendum.
Úrslit í kvennaflokki urðu
þau, að Ásthildur Eyjólfsdóttir
sigraði á 58,6 sek., önnur varð
Halldóra Árnadóttir á 69,4 og
þriðja Margrét Ólafsdóttir á
93.6 sek.
í telpnaflokki varð sigurveg-
ari Gyðrún Björnsdóttir á 81.6
og önnur varð Kristín Björns-
dóttir á 101.4 sek.
Þessir flokkar kepptu í sömu
braut. Brautarlengdin var um
200 metrar, 12 hlið.
í karlaflokki varð fyrstur
Ingólfur Árnason á 82,4 sek. 2.
Elías Hergeirsson á 85,3 og 3.
Eiríkur Kristinsson á 88.7.
Brautarlengdin var 350 m.,
25 hlið.
JÞatM tiansa, i Austurhœjarhúói
í drepgjaflokki varð fyrgtur
Björp.Bjarnaspn á 72.1 sek., 2":
Brýnjólfur Bjamason á 86.2 og
.' Guðmundur Sigurjónsson.
Braut þeirra var um 250 m.,
með 15 hliðum. -— Verðlaunin
voru afhent sigurvegurunum á
kvöldvökunni á páskadags-
kvöldið. — Kvöldvökur, með
leikþáttum, upplestrum og ým-
iskonar leikjum, voru haldnar
á hverju kvöldi í skálanum, og
fullyrða má, að fátt sé hollara
ungu fólki, en að dvelja í frí-
stundum sínum í góðum félags-
skap upp til fjalla.
Ný söngvariís á
Hótel Borg.
Hótel Borg hefur fcngið til
sín nýja söngvadís. Ungfrú
Marshall er farin aftur til Eng-
lands, en í hennar stað syngur
ungfrú Margaret Kose fyrir
gesti veitingahússins.
Delld um vöruflutnÍBiga
Deila hefur risið meðal vöru-
flutningabílstjóra út af flutn-
inguin milli Reykjavíkur og
Keflavíkurflugvallar.
Samkvæmt upplýsingum sem
Vísir fékk í.morgun hjá Vinnu-
veitendasambandinu var samið
við Vörubílstjórafélagið Þrótt í
Reykjavík um þessa flutninga
og samkvæmt þeim samningum
hafa þeir forgangsrétt að flutn-
ingunum.
Nú hafa bílstjórar á Suður-
nesjum krafizt hlutdeildar í
þessum flutningum og hafa
þeir skrifað Varnarmálanefnd
um þetta og sett fram kröfur
sínar.
Að því er Visi var tjáð af
Varnarmálanefnd í morgun, er
mál þetta nú til athugunar hjá
ráðherra.
PASSAMYNDIR
teknarí dag —
tilbúnar á morgun.
Annast myndatökur á
ljósmyndastofunni, í heima-
húsum, samkvæmum,
verksmiðjum, auglýsingar,
skólamyndir o. fl.
Pétur Thomsen,
kgl. hirðljósm.,
Ingólfsstræti 5. Sími 10297.
Pappírspokar
allar stærðir — brúnlr ö
kraftpappír. — ódýrari er
erlendír pokar.
Pappírspokager5m
19.R7I)
RIMLATJÖLD
fyrir hverfiglugga.
^ScdllýU
C—/ g£uggaljö('d
Lind. 25. — S: 13743
Þetía glæsilega dansfólk er eitt af þeim mörgu sem koma fram
á miðnæturskemmtun Jóns Valgeirs, danskcnnara cg nemenda
Iians í Austurbæjarbíói n.k. miðvikudag kl. 23,30. Á myndinni
eru, talið frá vinstri, Haraldur og Sylvía, Jón og Edda, Þór og
Rannveig.
Ungfrú Rose er ákaflega geð-
ug stúlka og býður af sér sér-
lega góðan þokka. Hún er 23
ára gömul, rauðhærð, með
grænleit augu. Ensk, fædd í
Yorkshire en býr nú í London.
16 ára gömul hætti hún námi
og tók til að læra sönglist. Ætl-
aði sér upphaflega að verða ó-
perusöngvari, en hætti við þá
hugmynd, er hún komst að því
að dægurlagasöngur gat verið
ábatameiri.
Ungfrúin hefur sungið með
ýmsum frægum enskum hljóm-
sveitum og á mörgum þekktum
stöðum, svo sem Mayfair, Sav-
voy, Dorchester, Grosvenor
House, Cumberland Hotel og
víðar.
Eftir fjögurra vikna dvöl hér
lendis mun hún fara til Kaup-
mannahafnar, en þar mun hún
dveljast í sumar við söng og
sólskin.
Þegar blaðamenn spurðu hana
hvernig henni litist á ísland,
sagði hún að hún hefði orðið
þægilega undrandi þegar hún
kom hingað. Hún hélt nefnilega
að íslendingar væru Eskimóar
og byggju í snjóhúsum. Hvort
hún hefur haldið að Hótel Borg
væri geysistórt snjóhús upp á
fimm hæðir skal látið ósagt.
Nokkrar leiðbein-
ingsr unt
Bókaval til
fermingar-
Málflutningsskrifstofa
Páll S. Pálsson, hrl.
Bankastræti 7, simi 24-200.
FYRIR PILTA
OG STÚLKUR
Iiit Þorsteins Erlingssonar
I.—HI. Verð kr. 600. —
Ljóðmæli Matthíasar I.—II.
(tæpl. 1500 bls.)
Verð kr. 500. —
Sögur herlæknisins I.—IIL
Verð kr. 525. —
Ljóðmæli og Laust mál
Einar Benediktsson I.—V.
Verð kr. 450. —
Islandsferðin 1907,
(með 220 myndum frá
íslandi fyrir 50 árum).
Verð kr. 225. —
Endurminningar
Sveins Björnssonar,
fyrsta forseta lýðveldisins
Verð kr. 240. —
Ljóðmæli
Guðmundar Guðmunds-
sonar. — I.—II.
Verð kr. 160. —
Rit Kristínar Sigfúsdóttur.
I.—III. - Verð kr. 240. —
Brafnhetta, skáldsaga eftie
Guðmund Daníclsson.
Verð kr. 185. —
Sleðaförin mikla, eftir
Knud Rasmussen. ,
Verð kr. 100. —
Opinberun Jóhannesar,
eftir Sigurbjörn Einars-
son próf. Verð kr. 140. —
Trúarbrögð mannkyns,
cftir Sigurbjörn Einars-
son próf. Verð kr. 95. —
Sögur ísafoldar, I.—V.
Verð kr. 320. —
Einhver nytsamasta ferm-
ingargjöfin, sem þér gctið
gefið, eru orðabækur vorar,
dönsk-íslenzk,
íslenzk-dönsk,
ensk-dönsk, '
þýzk-íslenzk
1 T
og
frönsk-íslcnzk.
Verðin eru frá kr.
120.— í kr. 340. —
ISAF0ÞLÐ