Vísir - 20.04.1959, Qupperneq 2
VÍSIR
Mánudaginn 20. apríl 195®
r
Bœjarfréttir
wwwwww
■Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Tónlistartími barn-
anna. (Jón G. Þórðarson
■ kennari). — 18.50 Bridge-
þáttur. (Eiríkur Baldvins-
; son). — 19.00 Þingfréttir. —
Tónleikar. — 19.25 Veður-
j fregnir. — 20.00 Fréttir. —
20.30 Einsöngur: Þuríður
Pálsdóttir syngur; Fritz
Weisshappel leikur undir á
píanó: a) „Ein sit eg úti á
j steini“ eftir Sigfús Einars-
! son. b) Tvö lög eftir ísólf
Pálsson: „Kveðja“ og
J „Sumarnótt“. c) „Tonerna“
j eftir Sjöberg. d)„Flickan
kom ifrán sin elsknings
möte“ eftir Sibelius. e)
I „Vilja Lied“ eftir Lehár. —
20.50 Um daginn og veginn.
J (Gísli Kristjánsson ritstjóri)
'! — 21.10 Tónleikar: Leopcld
J Stokowsky stjórnar hljóm-
sveitum (plötur). — 21.30
J Útarpssagan: „Ármann og
Vildís" eftir Kristmann Guð
mundsson; XIV. (Höfundur
les). — 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. — 22.10 Úr heimi
myndlistarinnar. (Björn Th.
i. Björnsson listfræðdngur). —
22.30 Kammertónleikar: Tvö
verk eftir Hándel (plötur).
— Dagskrárlok kl. 23.05.
Kvenréttindafélag íslands.
Fundur verður haldinn í fé-
lagsheimili prentara, Hverf-
isgötu 21, annað kvöld 21.
apríl kl. 8,30 e. h.
Fundarefni:
Útgáfustarfsemi félagsins,
upplestur o. fl.
Náíanskvið í
jiu-jitsuio
Þriðjudaginn 21. apríl hefst
námskeið í Jiu Jitsu á vegum
Glímufélagsins Ármanns. Verð-
KROSSGATA NR. 37G0:
Lárétt: 1 deilan, 6 stallurinn,
8 fangamark stjórnmálamanns,
9 aðgæta, 10 ferð, 12 . . .farir,
13 ending, 14 á verzlunarskjöl-
um, 15 . ..mundur, 16 skepna.
Lóðrétt: 1 í umbúðum, 2
.grannur, 3 álit, 4 .. læti, 5
narta, 7 vinnustaðinn, 11 vopn,
12 lof, 14 . . .konsúll, 15 titilí.
Lausn á krossgátu nr. 3759.
Láréjt: 1 svalla, 6 kópur, 8
sim, 9 gi, 10 kær, 12 haf, 13 ar,
14 dó, 15 fúl, 16 svalur.
Lóðrétt: 1 sakkan, 2 Akur,
3 lóm, 4 LP, 5 auga, 7 riftir, 11
ser, 12 hóll, 14 Dúa, 15 fv.
ur það haldið í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar, Lindargötu 7,
og verða æfingar á þriðjudög-
um og fimmtudögum kl. 7—8
síðd. allt til 1. júní. Kennari
verður japaninn Matsoka Sawa-
mura, og er óhætt að
segja, að það er ekki á hverjum
degi, sem kostur gefst að sjá og
kynnast hinni frægu japönsku
glímu undir tilsögn svo mikils
kunnáttumanns.
Á námskeiði þessu mun hann
aðallega kenna og sýna Jiu Jitsu
sem sjálfsvöi-n, en Jiu Jitsu og
Judo eni svo margbrotnar glím-
ur að ekki er hægt að taka fyr-
ir á svona námskeiði nema lítið
af því, sem þar kemur fyrir.
Allir ungir jafnt og gamlir
geta tekið þátt í þessu nám-
skeiði og ekki síður kvenfólk en
karlmenn geta lært hina mjúku
sjálfsvarnarlist Jiu Jitsu, því
að hún byggist ekki á kröftum
og er ekki nein slagsmál.
Skrifstofa Ármanns verður
opin frá kl. 6,30 á þriðjudaginn
og fimmtudaginn og þurfa vænt
anlegir þátttakendur að mæta
þar og láta skrá sig. En vissara
er að treyggja sér pláss sem
fyrst, því að mikið hefur verið
spurt eftir námskeiðum í Jiu
Jitsu og líklegt að þátttaka
verði mikil.
F.H. og KR keppa tíl úrslita 50 stofauðu BFÖ
í handknattleiksmótínu.
Fram færist niður í 2. deild og
afturelding upp í 1. deild.
Til mikilla tíðinda hefur þeg-
ar dregið í handknattleiks-
meistaramótinu, bví nú hafa
þegar fengist úrslit í 2. deild-
arkeppninni og loks sýnt hverir
keppa til úrslita í meistara-
flokks karla í 1. deild, en það
verða F.H. og K.R.
Um síðustu helgi fóru leikar
í meistaraflokki karla í 1. deild
þannig að F.H. gersigraði Í.R.
með 27 mörkum gegn 15. Kom
sá markamunur mjög á óvart
því flestir bjuggust við hörku-
spennandi leik og litlum marka
mun.
Hinn stóri leikurinn var milli
var milli Fram og K.R. með
24 mörkum gegn 20. Sá leikur
hafði að því leyti mikla þýð-
ingu að með honum fellur
Fram niður í 2. deild og keppir
í henni á komandi vetri.
f 2. deild fór fram úrslita-
leikur milli Aftureldingar og
Keflvíkinga um helgina. Aftur-
elding vann þar stórsigur 40:26
og barst þar með upp í 1. deild.
Um helgina fengust og úr-
slita í 1. flokki kvenna. Þar
hlaut K.R. sigur jTir Þrótti 6:5.
í öllum öðrum flokkum verður
keppt til úrslita um næstu helgi.
Sprengjutilræði
við Rubirosa.
Sprengju var varpað inn í
hús ambassadors Dominikanska
lýðveldisins Havana nú í vik-
unni, og kom gat á svefnlier-
b ergisvegginn.
Sendiherrann, Portforio
Rubirosa, sakaði ekki. — Fyrr-
verandi forseti Kúbu, Batista,
býr nú í Dominikanska lýð-
veldinu — leitaði þar hælis, er
hann flýði land, þegar sýnt var
að byltingin myndi' heppnast.
Nemendahljómleikai'
Demetz á morgun.
ítalski söngkennarinn Vin-
enzo Moria Demetz heldur
hljómleika í Gamla bíói annað
kvöld kl, 7.
Þar koma fram bæði ein-
söngvarar og kór, samtals um
40 manns, en Jón Sigurbjörns-
son leikari, sem er gamall
nemandi Demetz, syngur sem
gestur.
Nemendahljómleika þessa
átti að halda fyrr í vetur, en
sökum veikindaforfalla varð að
fresta þeim. Þá var efnsskrár.
innar getið ítarlega hér í blað-
inu, en hún mun vera hin sama
nú.
Þess má geta, að aðsókn að
söngskóla Demtz hefir verið
mikil og m. a. hefir hann þjálf-
að ýmsa þeirra söngvara, sem
sungið hafa 1 Rakaranum frá
Sevilla.
Lögreglan athugi ald-
ur skemmtikraftanna.
Það liefur verið tilkynnt, að
ætlunin sé að gefa almenningi
kost á að hlusta á hvorki meira
né minna en 17 dægurlagasöngv
ara í Austurbæjarbíói aðra nótt.
í sjálfu sér er ekkért við slík-
an söng að athuga, en myndir,
sem birtar hafa verið af „söngv
urunum“, virðast gefa ótvírætt
til kynna, að lögreglusamþykkt
bæjarins muni geta átt við úti-
vist slíkra skemmtikrafta. Ald-
urinn er nefnilega ekki meiri
en svo, að bæði lögregla og for-
eldrar viðkomandi ættu að at-
huga þær relgur, sem gilda um
útivist barna á kvöldin. Virðist
full ástæða fyrir lögregluna til
að athuga þetta mál og sjá um,
að slíkar barnaskemmtanir sé
á löglegum tíma.
I
Hafnarfirði.
ÍHimiÆái alweMinfá
Hafnarfjarðardeild Bindindis*
félags ökumanna var stofnuð á
fimmtudagskvöld í Góðtempl.
arahúsinu, Hafnarfirði.
Fundurinn var vel sóttur og
stofnfélagar voru 50 talsins.
Kosin var stjórn deildarinn*
ar og er hún þannig skipuðí
Formaður: Ásgeir Long, vél.
stjóri, og meðstjórnendur þeir|
Árni Gunnlaugsson, hdl., og
Jóh. Jóhannesson, trésmiður.
Varamenn eru þeir Pétur Ósk-
arsson, verkamaður og Ólafur,
G. Gíslason, verzlunarmaður.
Sem gestir á fundinum voru
mættir þeir Ásbjörn Stefánsson
framkvæmdastj. B.F.Ö. og Sig-
urgeir Albertsson forseti B.F.Ö,
Fluttu þeir fundinum ávörp og;
deildinni árnaðaróskir.
Mikill áhugi ríkti á fundin*
um á aðalmálefnum Bindindis-
félags ökumanna, sem er algert
bindindi og efling umferðar-
menningar.
VÍKINGUR, knattspyrnu-
félagið, heldur síðasta Bin-
go- og félagsvistarkvöld sit(j
á þessum vetri í Silfurtungl-
inu á mánudagskvöld kl. 9. *
Kvikmyndasýning á eftir.
Ókeypis aðgangur. — Allt
íþróttafólk velkomið meðan.
húsrúm leyfir, — Nefndin.
(000
RIMLATJÖLD
fyrir hverfiglugga.
gtugqaíjöCd
Lind. 25. — S: 13743.
Mámidagnr.
110. dagur ársins.
Ardegisflæði
kl. 3.00.
Lögregluvarðs tofan
heíur sima 11166.
Næturvðrður
Laugavegs Apótek, simi 24045.
Slökkvlstöíttn
heíur siina 11100.
Slysavarðstofa Reykjavikur
i HeilsuvemdarstöðinnJ er opin
allan sólarhringinn. Læknavörður
L. R. (fyrir vitjanlr) er á sama
staö kl. 18 tU kl. 8. — Siml 15030.
Ljös&tml
bifreiða og annarra ökutækja I
Iðgsagnarumdæmi ReykjaWkur
verður kl. 20.40—4.20.
Þjóðminjasafnið
er opið á þriðjud., fimmtud. og
laugard. kl. 1—3 e, h. og á sunnud.
kl. 1—4 e. h.
Landshökasafnið
er opið alia vlrka daga frá kl.
10—12, 13—19 og 20—23, nema
laugard., þá frá kló 10- -12 og 13
—19.
Bæjarbókasafn Reyk.!avkur
siml 12308. Aðalsafnið, Þingiiolts-
stræti 29A. Otlánsdeild: AUa virka
daga kl. 14—22, nema laugard. kl.
14—19. Sunnud. kl. 17—19.
Bamastofur
eru starfræktar í Austurbæjar-
skóla, Laugarnesskóla, Melaskóla
og Miðbæjarskóla.
ByggðasafnsdeUd Skjalasaíns
Reykjavíkur
Skúlatúni 2. er opin aUa daga
nema mánudaga, kl. 14—17.
Biblíulestur: Jak. 1,13—18. —
Gott kemur frá Guði.
ÞJÓÐDANSAFÉL. Rvk,
Aðalfundur félagsins verðug
haldinn í kvöld kl. 9 á Lind-
argötu 50 (Tómstundaheim-
ilinu). Venjuleg aðalfundar-
störf. Stjórnin. (669
TAPAST hefir gullhring-
ur, merktur nafni og dag-
setningu: 24.7.’54 á skrif-
stofu í miðbænum eða í
Hafnarf j arðarstrætisvagnin-
um 10 apríl. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma
23400, —(722
Johan Rönning b.f.
Raflaguir og viðgerðlr i
olltun heimilistækjum. —
Fljót og vönduð vinna.
Simi 14320.
Johan Rönning h.f.
BARNAGLERAUGU hafa
tapast. Finnandi hringi vin-
samlegast í síma 14434. (768
• Fæði •
FAST FÆÐI. Uppl. í síma
14377. — (765
BIFREIÐ AKENN SLA. —
Aðstoð við Kalkofnsveg.
Sími 15812 — og Laugaveg
92. 10650. (536
HITAYATNSDUNKAR
með 60 metra Spíral fyrirliggjandi.
FJALAR H.F., Skólavörðustíg 3. - Símar: 1-79-75 - 1-79-76.