Vísir - 20.04.1959, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heitn — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
'WISIS.
Mánudaginn 20. apríl 1959
Munið. að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta
Sími 1-16-60.
Harftar bæjar- og sveitarstjórn
nrkosningar í Alsír.
Á fyrsta kosningadeginum, í gær
biðu 20 bana en 70 særðust.
l»etta er myndarlegasti knöttur, sem drengirnir eru með á
myndinni. Þetta er belgur, sem notaður er til að lyfta veður-
athugunartækjum hátt í loft og var til sölu hjá sölunefnd
varnarliðseigna. Rétt er að geta þess, að loftbelgir af þessu
tagi eru ekki lengur til sölu hjá nefndinni. (Ljósm. St. Nik.)
Byggingajijónustan hefur þegar
tekii til starfa.
Vekur mikla athygli.
Bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningar hófust í gær í Alsír
og standa alla vikuna. Til ó-
eirða kom, einkum á 3 stöðum,
og biðu 20 menn bana, en yfir
70 særðust.
Mest manntjón varð, er upp-
reistarmenn réðust á þorp eitt
nálægt landamærum Túnis.
Biðu þar 10 menn bana, en í
Constantine 4, tveir þeirra
börn, af völdum sprengjukasts,
og tveir í Algeirsborg.
Kosningaþátttaka var dauf
víðast hvar, enda hvöttu bæði
uppreistnarmenn og þeir land-
nemar, sem andvígir eru stefnu
De Gaulle, til þess, að menn
sætu heima og neyttu ekki at-
kvæðisréttar síns.
Hvað eftir annað var útvarp-
að áskorunum til manna um að
fara á kjörstað og neyta kosn-
ingarréttar síns og í Algeirs-
borg voru kosningarnar stöðv-
aðar meðan farið var um göt-
urnar í bifreiðum og hvatning-
arorð hrópuð í gjallarhorn.
Massu hershöfðingi var með-
al þeirra, sem talaði í útvarp
og hvatti menn til þess að
kjósa.
Örlggisfyrirkomulag.
í öryggisskyni er fyrirkomu-
lag haft þannig, að kosið er í
■einu þorpinu nokkrar klst., og
svo í því næsta o. s. frv., og
geta þannig öryggissveitir kom
izt milli bæja og þorpa til eftir-
lits, en nægt lið er ekki fyrir
hendi, til þess að hafa það alls
staðar samtímis.
Sundrung?
Fregnir hafa borizt um, að
Herter skipaður utan-
ríklsráðherra.
Skipan Cliristians A. Herters
í embætti utanríkisráðhcrra
Bandaríkjanna hefur verið lögð
fyrir öldungadeild þjóðþingsins
til staðfestingar.
Er það gert lögum og venjum
samkvæmt og er talið víst, að
hún verði staðfest einróma. —
Því er yfirleitt ákaflega vel tek-
ið í öllum vestrænum löndum
að Bandaríkjunum sjálfum með
töldum, að Herter varð fyrir
valinu.
Herter virðist jafn vinsæll
meðal demokrata sem republik-
ana í Bandaríkjunum.
Fangarnir í Montana
gáfust upp.
Fangarnir í ríkisfangelsinu í
Montana gáfust upp um helg-
ina, er hermenn og lögreglu-
menn gerðu árás á þá.
Gislamir, sem þeir höfðu í
haldi, sluppu lifandi og ómeidd
ir, en fangarnir höfðu hótað að
„brenna þálifandi eða hengja“.
Aðalforsprakki fanganna og
zmnar til frömdu sjálfsmorð.
útlagastjórnin serkneska í Al-
sír sé klofin og vilji meirihlut-
inn fallast á vopnahlé að tillög-
um De Gaulle, en harðskeyttur
minnihluti sé því andvígur.
Fyrstu fregnir um kosninga-
úrslit benda til, að íylgi De
Gaulle sé rénandi í Alsír.
Fimm kvainingar
slökkviiiðs um helgina.
Slökkviliðið var nokkrum
sinnum kvatt út um helgina, eða
fimm sinnum alls, en hvergi um
alvarlega eldsvoða að ræða.
Á laugardagsmorguninn,
klukkan rúmlega 8 kviknaði
eldur í lítilli skúrbyggingu að
Hlíðarvegi 73. Eldurinn var
fljótt kæfður og skemmdir ekki
tilfinnanlegar. -
Klukkan hálffjögur sama dag
kviknaði í gastækjum Slippsins
við Mýrargötu, en búið var að
slökkva þegar slökkviliðið kom
á vettvang. Tjón varð ekki.
Tveim stundum seinna var
slökkviliðið beðið að slökkva
eíd, sem krakkár höfðu kveikt
í rusli í Hamrahlíð.
í fyrrinótt var slökkviliðinu
■tilkynnt um eld í Örfirisey
skammt frá olíu- og lýsisgeym-
unum, sem þar eru staðsettir.
Þegar komið var á staðinn var
eldur þar í sorphaug og rusli
og var hann strax kæfður.
Síðasta kvaðningin var að Ein
holti 2, en þar hafði kviknað í
reykháfsmótum.
Góður afti á
færi þegar gefur.
Frá fréttaritara Vísis.
Akranesi í morgun.
Það var ekki nema helming-
urinn af bátunum á sjó í gær.
Aflinn var sæmilegur, 137 tonn
af 11 bátum. Trillurnar voru
ekki á sjó í gær.
í fyrradag var góður afli hjá
netabátum. Þeir sem voru norð-
ur undir Jökli hafa nú flutt net-
in og eru nú allir með þau i Mið-
nessjó. Á laugardag komu 14
trillur með 11 lestir. Þeir sem
voru á Hrauninu höfðu mestan
afla og beztan fisk. Annars hafa
trillurnar verið á víð og dreif út
af Borgarfirði, Hvalfirði og víð-
ar. Það virðist vera talsvert af
fiski, en hann er smár upp við
landið.
Aflahæstu bátarnir eru Sig-
rún með 675 lestir, Sigurvon
með 622 og Sæfari með 535. Þá
eru nokkrir komnlir á fimmta
hundraðið. Þetta er miðað við
aflann eins og hann var í gær.
Sanddæluskipið bætir nú dag-
lega við skeljasandsbinginn hjá
Sementsverksmiðjunni. Veður
hefur ekki tafið sandtökuna
undanfarið.
Hygghigaþjónusta Arkitekta-
félags Islands var opiiuð á laug-
ardag og var einnig' opin í gær.
Aðsókn var geysirpikil báða
dagana, oft samtímis á annað
liundrað gesta.
Þeir voru margir, sem sögðu,
að þetta væri svo þarft fyrir-
tæki, að það hefði átt að vera
komið á fyrir löngu. Var við-
kvæði margra þeirra einstakl-
inga sem staðið hafa í húsbygg-
ingum: „Betur hefði farið, ef
Enn ólga í blóð-
inu á Kýpur.
Enn virðist nokkur ólga í
blóði Kýpurbúa og hefur brotist
út seinustu daga.
M. a. hefur „vinstri“ og
„hægri“ Kýpur-Griggj um lent
saman í þorpi einu. Var grjót
óspart notað, en til venjulegra
vopna var ekki gripið. — Tvær
brezkar konur voru grýttar í
baðfjöru og tveir brezkir her-
menn særðir hnífsstungum í
Famagusta. t— Kakarios hefur
fordæmt árásir og ofbeldi.
Bylting í Bofivíu
bæíd niður.
Bolivíustjórn tilkynnir, að
hæld hafi verið niður bylting-
artilraun, sem gerð var í gær,
hin sjöunda á sjö árum, til þess
að reyna að velta núverandi
valdhöfum.
Það voru falangistar, sem
stóðu að byltingartilrauninni
og hefir uppgjafa-ofursti úr
þeirra flokki verið handtekinn.
— Kunnugt er að 22 menn biðu
bana, en um 30 særðust. Bylt-
ingarsinnar náðu útvarpsstöð-
inni á sitt vald og reyndu að
ná ráðhúsinu í höfðuborginni
La Paz, þar sem aðaltilraunin
var gerð, en mistókst það, því
að herinn var á bandi stjórnar-
innar. í tveim öðrum borgum
kom til smávægilegra átaka.
eg hefði getað leitað til slíkrar
þjónustu sem þessarar, þegar
eg var að byggja.“
Eins og áður hefur verið sagt
hér í blaðinu, eru allir sýning-
arbásar útleigðir, en enn hefur
ekki verið komið fyrir sýninga-
vörum í 4 bása, þar eð beðið
er éftir sýnishornum frá út-
löndum.
Byggingaþjónustan, sem er
til húsa að Laugavegi 18 (Liv-
erpool) uppi, verður opin dag-
lega kl. 13—18 og væntanlega
einnig tvö kvöld í viku, sem
tilkynnt verður síðar. ______
Fram í Hafnarflrðl
heldur fund í kvöld.
Landsmálafélagið Fram í
Hafnarfirði heldur fund í Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld kl. 20,30.
Framsögu á fundinum hafa
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði, Matthías Á.
Mattiesen, sem ræðir stjórn-
málaviðhorfið, og ennfremur
Páll Daníelsson bæjarfulltrúi,
sem talar um bæjarmál og segir
frá afgreiðslu síðustu fjárhags-
áætlunar.
Fallinn er annar Hæstarétt-
ardómur í okurmálum, að þessu
sinni yfir Herði Ólafssyni hér-
aðsdómslögmanni, og var hann
dæmdur í nærri 200 þús. kr.
sekt til ríkissjóðs og 8 mánaða
varðhalds til vara, verði sektin
ekki greidd innan 4 vikna.
Hæstiréttur þyngdi refsing-
una lítið eitt frá því, sem dóm-
ur í héraði fór fram á, en þar
var Hörður dæmdur í 188.100
króna sekt. Samkvæmt dómi
Hæstaréttar greiði hann kr.
Akureyrarfeið fær
stórum bdum.
Fært er orðið öllum stórum
og kraftmiklum bifreiðum á leið
inni milli Akureyrar og Reykja-
víkur.
Báðar heiðarnar, Holtavörðu
heiði og Öxnadalsheiði, sem
lokuðust á dögunum voru rudd-
ar fyrir helgina og síðan hafa
: stærri bifreiðir komizt yfir þær.
En vegna djúpra hjólfara og
fleiri annmarka eiga litlir og
lágir bílar örðugt með að kom-
: ast leiðar sinnar eins og sakir
standa, en sennilega verða báð-
ar heiðarnar heflaðar fljótlega
ef þíðviðri helzt og ekki snjóar
að nýju.
Vaðlaheiðin er lokuð og senni
lega verður hún ekki rudd
strax. Hins vegar komast bílar
leiðar sinnar milli Eyjafjarðar-
og Þingeyjarsýslna um Dals-
mynnisveginn í Fnjóskadal, sem
er góður yfirferðar. ,
----•----
Vantar leðju
fyrir borinn.
Stóri jarðborinn liefur snúizt
svo til hvíldarlaust, síðan liann
kom til landsins, en nú verður
nokkurra daga hlé, meðan beð-
ið er eftir leir, sem nauðsyn-
legur er við borunina.
Meðan leirinn er ókominn,
verður tíminn notaður til lag-
færinga og árlegs viðhalds á
bornum. Leirinn hefur verið
fluttur inn frá Bandaríkjunum,
en næsta sending mun verða frá
Póllandi. Þetta er sérstök teg-
und af leir, eins og hann kem-
ur úr jörðinni. Hann er notað-
ur við að ná upp svarfinu úr
holunni og til að kæla borinn.
Reynt hefir verið að nota ís-
lenzkan leir en ekki tekizt.
Æsusnu fjýs.
Eldfjallið Asama gaus á
þriðjudag s.I., segir í fregn frá
Tokio.
Öskufall var í Tokio og víðar
og var hvítt öskulag á húsa- og
bílaþökum og á götum og í
görðum.
191.625.00 Það hefur komið í
ljós á vaxtareikningum löggilts
endurskoðanda, að lögfræðing-
urinn ákærði hefur tekið í vexti
af víxillánum nál. 48 þús. krón-
um umfram 8% ársvexti, sem
leyfðir eru að lögum.
Þá greiði ákærði allan á-
frýjunarkostnað sakarinnar, þar
með talin málflutningslaun,
sækjanda og verjanda fyrir
Hæstarétti, 5 þúsund krónur til
hvors.
Hæstaréttardómur í okurmáli:
Hörlur Ólafsson greiði
200 þús. krónur.